Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 5

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 5
r 'j 'Gfni Norrænn byggingardagur á ís- landi 26.—28. ágúst 1968 .. 74 Samtök vinnumarkaðarins fá fleiri hagræðingarráðunauta — Forystugrein ............. 75 O.R. — Lausn flókinna vanda- mála í rekstri og stjómun .. 76 Léttir málmar og sölt úr sjó .. 85 Meiri sala — færri sölumenn .. 88 Listiðnaður og iðnhönnun .... 91 Tvö merkileg skjöl ........... 102 Tæknibókasafn IMSÍ — Nýjar bækur ..................... 104 Danskar vörusýningar ......... 104 Samband rannsókna ogatvinnu- lífs ...................... 105 Almennir samningsskilmálar um verkframkvæmdir ........ 108 Einkenni drykkjuhneigðar eins og þau birtast í starfi... 109 Utgáfa jöfnunarbréfa ........ 113 Reglugerð um lánadeild veiðar- færaiðnaðar ............... 119 Reglgerð um hagræðingarlán Iðnlánasjóðs .............. 119 Einkaleyfi — Aðkallandi end- urbætur ................... 120 Nytsöm nýjung................. 120 Endurprentun báð leyfi útgefanda. Ritst jórn: Sveinn Björnsson (ábyrgðarm.), Þórir Einarsson, Stefán Bjarnason. Ráðgjafi um íslenzkt mál: Bjami Vilhjálmsson cand. mag. Útgefandi: Iðnaðarmálastofnun íslands, Skipholti 37, Reykjavík. Sími 81533-4. Áskriftarverð kr. 200,00 árg. PRENTSM IÐJAN HÓLAR HF. IÐNAÐARMAL 14. ÁRG. 1967 . 5.-6. HEFTI Samtök vinnumarkaðarins fá fleiri hagræðingarráðunauta Fyrir tveimur árum fór fram í IMSl brautskráning sjö hagræðingarráðu- nauta, sem þá höfðu lokið eins árs framhaldsnámi skv. sérstakri áætlun, sem samin hafði verið að tilhlutan félagsmálaráðuneytisins og komið hafði til framkvæmda 1964 (sjá Iðnaðarmál 4.—5. hefti 1965). Þessi áætlun var til þess ætluð, að kosta og skipuleggja nám ráðunauta til fræðslu- og leiðbeiningastarfa á sviði framleiðni- og hagræðingarmála fyrir aðila vinnumarkaðarins. Stjórn þessarar áætlunar hefur sérstök nefnd, skipuö þeim Pétri Sigurðs- syni fyrrv. form. Vinnutímanefndar, Sigurði Ingimundarsyni forstöðumanni verkstjórnarnámskeiðanna og Sveini Björnssyni framkvstj. IMSÍ, haft með höndum í samráði við félagsmálaráðuneytið. Daglega framkvæmd áætlun- arinnar hefur IönaÖarmálastofnun íslands hins vegar annazt. Hinn 9. des. sl. voru brautskráðir til viöbótar sex ráðunautar, sem lokiö hafa um eins árs samfelldu námi, innanlands og utan, með svipuðum hætti og fyrri hópurinn. Með því að þessir nýju hagræðingarráðunautar taka nú til starfa á veg- um verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitendasamtaka, er á ný undirstrikaö, að samtök vinnumarkaðarins lita nú orðið á það sem hlutverk sitt að stuðla í verki að aukinni framleiðni í atvinnulífinu. Með því að hafa fengið í þjónustu sína sérfróða menn í hagræðingar- tækni eiga samtök verkalýðs og vinnuveitenda að geta starfað á mun víðari grundvelli að hagsmuna- og velferðarmálum meðlima sinna en áður. Svo sterk öfl, sem þessi hagsmunasamtök eru í þjóðmálunum, skiptir þetta miklu máli fyrir hag allra landsmanna, því að vel skipulögö og samstarfshæf sam- tök verkalýðs og vinnuveitenda undir víðsýnni og ábyrgri forystu eru hverri þjóð ómetanleg. Ljóst er, að þegar samtök vinnumarkaðarins í þessu landi taka upp þá nýju stefnu að leitast við að hafa bein áhrif á nýtingu framleiösluþáttanna í atvinnulífinu, er að hefjast þróun hjá okkur, sem á mun lengri sögu að baki hjá grannþjóöunum. Hjá Norðmönnum hófst hún t. d. fyrir um 20 árum og hefur um margt orðið til fyrirmyndar öðrum þjóðum. En miðað við þá jákvæðu afstöðu, sem leiðtogar samtaka vinnumarkaðarins hér hafa tekið til þessa nýja hlutverks samtakanna, er þess að vænta, að með hag- ræðingarráðunautana sér við hliÖ muni samtökin geta áorkað miklu á þessu sviði á fáum árum, svo fremi að áhugi og þrautseigja þeirra, sem að vinna, fái notið sín. Alls hafa nú þrettán hagræðingarráðunautar tekiÖ til starfa skv. áður- greindri áætlun og er þar með kominn allmyndarlegur vísir að nýrri stétt íslenzkra manna með sérþekkingu, sem nauðsynleg er nútíma atvinnulífi í hverju landi. S. B. IÐNAÐAKMÁL 75

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.