Iðnaðarmál - 01.06.1967, Síða 6

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Síða 6
O. R. - Lausn fflókinna vanda- mála I rekstri og stjórnun Eftir Kjartan Jóhannsson, verkfrœðing KJARTAN JÓHANNSSON, verkfrœðingur. Stúdent Rvík 1959, próf í byggingaverkfræði frá Kunglinga Tekniska Högskolan (KTH) í Stokkhólmi 1963. Nám í rekstrarhagfræði við háskól- ann í Stokkhólmi, skipulagi framkvæmda við KTH sama stað 1964 og í rekstrarverkfræði við Hlinois Institute of Technology, Chicago, 111. 1964—65 og lauk þaðan MS-prófi 1965. Hefur verið ráðgefandi verkfræðingur í Reykjavík frá 1966. Kjartan hefur fengizt við ýmis konar ritstörf varðandi byggingar og framkvæmdir. Vandi stjórnenda eykst með vaxandi tækni Það er haft eftir Bismark kanslara, að það sé ljóta starfið að vera ráð- herra, því að sífellt þurfi að taka á- kvarðanir um mál, sem lítið sem ekk- ert sé vitað um. Takist vel til, sé stjórnvizku hrósað. Takist illa til, sé heimska stjórnandans höfð í hámæl- um. „Þó er það svo,“ sagði Bismark, „að sams konar vitneskja og sama stjórnvit liggur að haki báðum á- kvörðunum.“ Bismark kanslara var greinilega ljóst, hverri tilviljun það var háð, hvort hann tæki rétta ákvörðun eða ekki, með því að honum virtist ógjör- legt að sjá fyrir afleiðingar þess að velja einn kost frekar öðrum. Frá því að Bismark var kanslari, hafa tímarnir breytzt. Tækniöldin hefur hafið innreið sína. Það stendur eftir sem áður óhaggað, að rétta á- kvörðun er ekki unnt að taka, nema kleift sé að segja fyrir um afleiðing- ar þess, að ein leið sé valin frekar en önnur. Hins vegar hefur tækni og efna- hagsþróun síðustu áratuga haft það í för með sér, að þær leiöir, sem fara má að settu marki, hafa margfaldazt að fjölda og eru orðnar svo marg- brotnar, að það kann að vera ærið verkefni að finna þær og skilgreina, hvað þá að segja fyrir um afleiðing- ar hverrar einnar. Á sama tíma og af sömu orsökum verða ákvarðanir í stjórnun ogrekstri æ afdrifaríkari. Stóraukiö fjármagn er bundið í vélum, tækjum og verk- smiðjuhúsum. Samkeppnin á vöru- markaði, vinnuaflsmarkaði og fjár- magnsmarkaði er harðari en áður var. Skökk ákvörðun getur riðiÖ fyr- irtæki að fullu. Enn er það, að þróunin síðustu áratugi hefur verið svo ör, að reynsla manna við stjórnun hefur orðið úr- elt á tiltölulega skömmum tíma. Reynsla Bismarks við ákvarðanagerð og stjórnun var honum vafalítið gott leiðarljós. Hann gat fundið hliðstæð- ur með svipuðum vandamálum. Á okkar tímum verður ekki að sama skapi byggt á reynslunni. Sú reynsla, sem stjórnandi öðlaðist fyrir einum til tveim áratugum, kann að vera mjög lítils virði í dag: Viðhorf- in eru gjörbreytt. Tæknin er önnur. Hraðinn er meiri. Leyfið mér að vitna í orðKennedys Bandaríkjaforseta til þess að skýra þetta nánar. Ummæli hans varða stjórnun lands og ríkis, en ég er þess fullviss, að viðstaddir munu finna af eigin reynslu, að svipaða sögu er að segja af þeim fyrirtækjum og stofn- unum, sem þeir þekkja til. Kenncdy sagði: „Á nítjándu öld fengust forsetar, senatorar og kongressmenn við sömu vandamálin, þegar þeir luku þing- ferli sínum og þegar þeir hófu hann. Nú verða Bandaríkin að fást við vandamál á viku hverri, sem eru stór- um flóknari en þau, sem nítjándu aldar menn voru allt sitt líf að glíma við. Þetta eru ný vandamál, algjör- lega óskyld þeim, sem við blöstu á tímum Eisenhowers, Roosevelts eða Wilsons .. . ný vandamál, sem krefj- ast nýs fólks, nýrra lausna, nýrra hug- mynda.“ Svar vísindanna við þeim vanda- málum, sem vísindaþróunin skapar 0. R. hefur þróazt til lausnar á vandasömum viöfangsefnum. Með 0. R. aðferðum er kleift að leysa vanda- mál á breiðari grundvelli og með meiri yfirsýn en áður var unnt. í rauninni má segja að 0. R. sé svar vísindanna við þeim vandamálum, sem vísindaþróunin sjálf hefur skap- að okkur. Greinin er víxlun milli hagfræði, tölfræði, stærðfræði og verkfræÖi. Við allar þessar greinar er stuðzt í 0. R. auk venjulegra hag- fræðilegra og hagsýslulegra aðferða. Það er þróun þessara greina, svo og tölvutækni, sem hefur gert fram- gang 0. R. mögulegan. Tækni- og efnahagsþróunin hefur á hinn bóg- inn skapað þörf fyrir nýrri og hald- betri aðferðir við rekstrarskipulagn- ingu, stjórnun og áætlanagerð. Sú þörf hefur verið eggjandi hvati á framvindu greinarinnar. Ég vil taka það fram, að 0. R. leysir auÖvitaö ekki allan vanda, sem fyrirtæki og stjórnendur eiga við að glíma, og hún gerir ekki heldur úr- eltar þær eldri greinar hagsýslu, sem haslað hafa sér völl. 0. R. tekur við, þar sem þær þrýtur, og byggir oft á athugunum, sem gerðar eru með venjulegum hagsýslulegum aðferÖ- um. Greinin er mjög ung. Upphaf hennar er rakið til síðustu heims- 76 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.