Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 10

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 10
Markaður 1 Markaður 2 Markaður 3 Markaður 4 Markaður 5 Myndin sýnir mögulegar flutningaleiðir frá 3 verksmiðjum (A, B, C) til 5 markaða (1—5). Tölur gefa afkastagetu verksmiðja og sölumagn markaða. Undirbúningur og uppsetning lík- ansins tók að sj álfsögðu langan tíma, en þær viðbætur, sem gera þarf, þeg- ar ný fyrirtæki eru stofnsett eða nýj- ar hráefnislindir uppgötvaðar, eru til- tölulega fljótgerðar, og tölulegar upplýsingar um áhrifin fást nær sam- stundis úr tölvu. Svipaðar aðferðir hafa verið not- aðar til þess að áætla æskilega þróun í landbúnaðarmálum, þ. e. a. s. hve mikið sé æskilegt að rækta á hverjum stað af ýmsum tegundum landbúnað- arvöru, þannig að kostnaður sé sem minnstur og ákveðinni eftirspurn sé mætt. Enn fremur hafa 0. R. aðferð- ir af þessu tagi verið notaðar til þess að skipuleggja samgöngukerfi. Hagnýting framleiðsluþótta Hagnýting framleiðsluþátta hef ég nefnt það, sem á ensku kallast „alloca- tion of resourses“. Framleiðsluþáttur er hér mjög lauslega skilgreindur. I sumum verk- efnum getur framleiðsluþáttur verið skilgreindur sem ein deild af mörgum í fyrirtæki, stundum eru framleiðslu- þættir hér notaðir sem einstakar vél- ar, mannafli eða fjármagn. Oft er þess kostur að framleiða fleiri en eina tegund vöru með þeim framleiðsluþáttum, sem fyrirtæki hefur á að skipa. Er þá úr að ráða, hve mikið skuli framleiða af hverri gerð vörunnar, þannig að heildar- arðurinn sé sem mestur eða heildar- nýting fyrirtækis sem bezt. Oft á tíð- um heyrist talað um nýtingu einnar vélar. Þó getur það verið svo, að full nýting ákveðinnar vélar eða tæk- is sé alls ekki hagstæðust fyrir fyrir- tækið sem heild. í rauninni er oft tómt mál að slíta þannig hlutina úr samhengi án þess að taka tillit til heildarafkomu, þótt það sé oft gert af því, að það er auðveldara að líta á einn þátt en heildina. Sem dæmi af þess konar nýtingu framleiðsluþátta má taka fyrirtæki, sem framleiðir 2 tegundir vöru: ís- skápa og eldavélar. Framleiðsla fer fram í 4 deildum: framleiðsla blikk- hluta fer fram í einni deild, fram- 80 leiðsla rafmagnshluta í annarri, eldavélin er sett saman og pökkuð í þeirri þriðju og ísskápurinn settur saman í þeirri fjórðu. Afköst blikk- deildarinnar samsvara blikki í 2500 eldavélar árlega, ef einungis væru framleiddar eldavélar. Eins mætti framleiða efni í 3500 ísskápa. Raf- magnsdeildin gæti framleitt í 3333 eldavélar eða 1667 ísskápa. Afköst samsetningardeildanna eru 2250 eldavélar og 1500 ísskápar. Hagnaður af einni eldavél er 300 krónur, og hagnaður af ísskáp er 250 krónur. Nú er spurningin, hve mikið á að framleiða af hvorri vörutegund. Ég ætla að leyfa mér að setja upp líkan af þessu dæmi til þess að veita örlitla innsýn í hugsanagang- inn. Ef litið er á þær tölur, sem nefnd- ar voru að framan, kemur í ljós, að til framleiðslu á einni eldavél verður að nota: 0,04% af afköstum deildar 1 0,03% - — — 2 0,0444% — — 3 0,0% - — — 4 A sama hátt þarf til framleiðslu á einum ísskáp að nota: 0,0286% af afköstum deildar 1 0.06% — — 2 0,0% — — 3 0,0667%- — — 4 íNytmg deildar 1 verður því: 0,04 X (fjöldi eldavélaframl.) t 0,0286 X (fjöldi ísskápa framl.) Á sama hátt fæst fyrir deild 2, að nýting er: 0,03 X (fjöldi eldavéla) + 0,06 X (fjöldi ísskápa) og nýting deildar 3 er: 0,004 X (fjöldi eldavélaj og deildar 4 er: 0,0667 X (fjöldi ísskápa) Ef við nefnum fjölda eldavéla A og fjölda ísskápa B, fæst þannig: 0,04 X A + 0,0286B 0,03 X A + 0,06XB 0,0444A 0,0667 X B < 100 (minna en + 100 eða jafnt og) + 100 < 100 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.