Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 12

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 12
kaupa eina af mörgum vélartegund- um. Þá má finna, hver áhrif kaup hverrar og einnar hefði á heildaraf- komuna, og byggja valið á saman- hurði á því og kostnaðarverði vél- anna. Það er alls ekki víst, að af- kastamesta vélin, miðað við verð, sé hagstæðust. Hún kann að rýra nota- gildi annarra véla. Fyrir nokkrum árum kynntist ég malbiksframleiðanda, sem hafði kom- izt að því, að blandarinn í verksmiðj- unni væri of lítill. Hann keypti nýjan, miklu stærri. Þá komst hann að raun um, að útleggingarvélin hafði ekki við. Hann keypti aðra slíka til við- hótar, en nú stóð sú eldri, sem reynd- ar var ekki nema 2 ára, aðgerðarlaus tímunum saman. Hann viðurkenndi, að hann hefði ekki farið skynsam- lega að ráði sínu. Hann hefði átt að líta á framleiðsluna frá upphafi til enda og skoða fj árfestingaraðgerð- irnar í ljósi heildaráhrifa á rekstur- inn innan þeirra marka, er verkin, sem hann var að vinna, settu honum. Ef litið er á langtímaáætlanir um fjárfestingu, kemur í ljós, að þar er um sams konar ramma að ræða, sem vinna verður innan. Fyrirtæki (eða einstök persóna, bæjarfélag eða ríki, jafnvel heilar þjóðir) geta venjulega gert sér nokkurn veginn grein fyrir því, annaðhvort eftir venjulegum hagfræðilegum leiðum eða með öðr- um þáttum 0. R. athugana, hverjar verða muni tekjur þess af þeim arð- berandi þáttum, sem rekstur þess ræður yfir í dag. Enn fremur verður að gera ráð fyrir, að unnt sé að gera sér grein fyrir, hverjar tekjur og hver útgjöld muni stafa af hverri fjárfestingu. Um sumar fjárfestingar gildir, að sé ráðizt í eina, kemur önnur ekki til greina, um aðrar gildir, að óhugsandi er að ráðast í einhverja fjárfestingu (t. d. kaupa síldarnót), nema önnur fjárfesting sé fyrst gerð (kaupa síldarbát). Sá rammi, sem vinna verður innan, er, að útgjöld mega ekki fara fram úr því fé, sem hægt er að afla á hverju tímabili; þetta fé eru tekjur áhverjum tíma af núverandi þáttum rekstrarins, tekjur af þeim fj árfestingum, sem teknar eru að skila arði, þegar þar að kemur, og svo hugsanlegt lánsfé. Innan þessa ramma er vandinn sá að velja úr öllum kostum fj árfestingar þær, sem arðbærastar eru. Flutningafyrirtæki, sem ætlar að gera samanburð á ýmsum gerðum vörubifreiða, getur t. d. komizt að raun um, að bifreiðirnar eru misafl- miklar og meðalhraði þeirra því breytilegur frá einni gerð til annarr- ar. Burðarmagn er mismunandi, verð er mismunandi. Hugsanlegur notkun- artími á sólarhring getur verið breyti- legur, t. d. vegna þess að í einhverri tegundinni er svefnpláss fyrir auka- bílstjóra. Jafnframt því að fé til um- ráða er takmarkað, hefur fyrirtækið aðeins úr vissum fjölda bifreiða að moða og getur ekki fengið viðgerðar- þjónustu nema fyrir ákveðinn fjölda vagna. Þótt sagan hafi verið sögð af flutn- ingafyrirtæki og bifreiðaflota, gæti hún allt eins hafa verið af öðrum tækjum fyrir annars kyns fyrirtæki. Ég get ekki stillt mig um að benda á, hve hliðstæða sögu er að segja af fiskiútgerð og vali á fiskiskipum. Hér gæti verið um einstakt fyrirtæki að ræða eða samanlagða bátaútgerð heils landshluta eða jafnvel þjóðar- innar allrar. Þau dæmi, sem nefnd hafa verið hér í kaflanum um hagnýtingu fram- leiðsluþátta, flokkast undir það, sem enskumælandi þjóðir nefna „Pro gramming“. „Programming" skiptist í „Linear“, „Non-linear“ og „Dyna- mic Programming“, eftir því hver sambönd stærða eru. Verður ekki farið nánar út í það hér. Þess skal einungis getið, að t. a. m. dæmið af eldavélunum og ísskápunum var af gerðinni „Linear-Programming“. Ég minntist lítillega áhirgðavanda- mál fyrr í erindinu. Sú tækni, sem kennd er við „Programming“, hefur reynzt vel á sumar gerðir birgða- verkefna. Ef framleiðandi vöru selur hana á markaði, sem háðir eru forsegjanleg- um sveiflum í eftirspurn, eða ef hrá- efni það, sem hann notar, berst að í hryðjum, vaknar spurningin, hvort arðbærara sé að mæta sveiflunum með sveiflum í vinnu eða safna birgð- um eða gera hvort tveggja í nokkrum mæli. Hugsum okkur til dæmis, að fram- leiðandi geti áætlað eftirspurn eftir vöru 12 mánuði fram í tímann. Hann verður að ákveða, hve mikið eigi að framleiða í hverjum mánuði, svo að allur breytilegur kostnaður sé sem lægstur. Hann getur framleitt meira en eftirspurnin er á hverjum tíma og safnað birgðum. En það er kostnaður því samfara að safna birgðum. Hins vegargeturhannfram- leitt jafnmikið á hverjum tíma og eftirspurnin er, en þá verður hann að borga yfirvinnutaxta. Þegar eftir- spurnin er minni en framleiðslugeta í dagvinnu, mætti framleiða vöruna á dagvinnukaupi og geyma hana, þar til eftirspurn fer fram úr afköstum. Vandamálið er þannig fólgið í því að ákveða framleiðslu á hverjum tíma svo, að geymslukostnaður og yfirvinnukostnaður vegist á, þ. e. a. s. svo, að samanlagður kostnaður af hvorutveggja sé sem lægstur. Enn fremur getur verið, að það borgi sig að vinna yfirvinnu á vissum tímum og safna birgðum, jafnvel þótt eftir- spurn sé lítil þá, þar eð t. d. hráefnis- kostnaður er lágur á þeim tíma. Dæmi um fjárfestingarákvörðun Þið hafið vafalaust veitt því at- hygli, að hvort heldur litið var á rekstur eða framkvæmdir, er um að ræða val milli ýmissa leiða að settu marki, innan þess ramma, sem fyrir- tækinu er settur af aðstæðum, sem það hafði ekki vald yfir. Slíkt val er eiginlegt allri stjórnun, og fram hjá því verður ekki komizt. Yandinn er að velja rétt. Rafveita í Frakklandi stóð eitt sinn frammi fyrir slíku vali í sambandi við uppbyggingu aflstöðva. Eins og kunnugt er, geta aflstöðvar verið mis- munandi að gerð og rekstrarformi. Það var ljóst af öðrum rannsóknum, að rafmagnsframleiðslan þyrfti að uppfylla eftirtalin skilyrði: 1. Tryggt afl (Guaranteed Power) varð að ná vissu marki (1692 MW). 82 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.