Iðnaðarmál - 01.06.1967, Side 17

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Side 17
sjónum, natríums, magnesíums og brennisteins. Við vitum það af fyrri rannsókn- um hér á landi, að saltvinnsla er mjög háð staðarlegum aðstæðum. Þetta veldur því, að saltvinnslan er nokkurs konar brennipunktur í þessu máli. Fyrsta sérrannsókn Rannsókna- ráðs var því gerð á því sviði. Á tæknilegra máli má orða þetta þann- ig, að sá hluti efnavinnslunnar, sem innifelur fráskilnað á miklu vatns- magni, sé ráðandi varðandi flest önn- ur atriði. Augljóst er, að fráskilnaður vatns ætti að vera svo lítill sem kostur er á að öðru jöfnu. Annars vegar er það þörfin fyrir salt, sem ræður, en hins vegar selta þess sjávar, sem notaður er. Sjór hér við land hefur víða selt- una 34%o, og af þeirri seltu stafa 77,7% frá natríum-klóríði. Miðað við fullar heimtur á þessu salti þarf að nema burtu 38 m3 vatns fyrir hvert tonn af salti. Hins vegar er einnig vitað um einn stað á landinu, þar sem seltan er töluvert meiri en í sjó. Suður á Reykjanesi er þannig hverasvæði, þar sem vatn streymir upp, sem er miklu saltara en venju- legur sjór er. Miðað við þá seltu þarf aðeins uppgufun, sem nemur 25 m3. Augljóst er, að ekki er unnt að ganga framhjá þessu, enda þótt nokkuð víð- tækar rannsóknir þurfi til að prófa, hve miklu rennsli má ná þarna með þessari eða ekki minni seltu. Tillögur liafa verið gerðar um boranir, sem eiga að leiða þetta nánar í ljós. Þótt sú sjóefnavinnsla, sem hér er rætt um, sé í heild afar veigamikið fyrirtæki, er augljóst, að slíka upp- byggingu má gera í þrepum, þar sem hvert þrep út af fyrir sig er fyllilega hagkvæm og fjárhagslega arðvænleg framkvæmd. Hins vegar þarf þegar í byrjun að skipuleggja með fullu til- liti til heildarinnar. Þar í liggur það meginverkefni, sem byrjað hefur ver- ið á. En hvernig lítur svo slíkur skapn- aður út að skipulagi til? Til þess að skýra það nánar skulum við nota orðið stig um hvert þrep í uppbygg- ingunni. Á fyrsta stiginu hér myndu vera framleidd ýmis sölt, svo sem natríum- klóríð, magnesíumklóríð, kalíumklór- íð eða súlfat, og ef til vill fleira. Hér er um að ræða salt- eða saltaverk- smiðjuna, hvort sem menn vilja kalla hana. Auk þess sem hún seldi mikið af framleiðslunni til fjarskyldra framleiðslugreina (salt, kalí o. fl.), myndi hún framleiða hráefnið fyrir annað stigið. Annað stigið myndi taka til fram- leiðslu léttra málma með raforku, svo sem magnesíums og natríums eða fleiri efna. Meginframleiðslan frá þessu stigi er seld beint, en auk þess veitir þetta hráefni fyrir þriðja stigið. Frá málmvinnslunni verður að gera ráð fyrir töluverðu af klóri, sem við hana myndast. Klór má væntan- lega selja sem slíkt, en engu að síður myndi það notað mestmegnis til þess að hyggja upp ýmis lífræn efnasam- bönd úr efnum, sem fást í sambandi við olíu. I þriðja stiginu má þannig framleiða plasttegundir og fleira, sem við myndum hafa áhuga á. Það ann- að, sem kæmi til greina í þriðja stig- inu, er framleiðsla á títaníum, sem er einn hinna nýju léttu málma. Auk títaníum-hráefnis þarf til þess klór og natríum, sem fáanlegt er frá næsta stigi á undan. Á meðfylgjandi yfir- litsmynd hafa þessi atriði verið sýnd sem dæmi um hugsanlegt grunn- skipulag sjóefnavinnslu og vinnslu af- leiddra efna. Séð frá efnahagslegum sjónarhól eru það án alls efa hinir léttu málm- ar, sem liafa mesta þýðingu fyrir okkur. Mér virðist ekki vera efi á, að við getum framleitt þessa léttu málma fyrir óvenjulega lágt verð, ef við skipuleggjum vel uppbyggingu slíkr- ar sjóefnavinnslu sem þessarar, og allir eru þeir í ört vaxandi eftirspurn. Við stöndum líka nokkuð föstum fót- um í iðnaði, sem byggist eingöngu á okkar eigin hráefnum og auðlind- um. Að þessu sinni ætla ég ekki að hafa þetta spjall lengra, en ég vona, að það vekji menn til umhugsunar um athafnasvið, sem er með öllu ó- numið og gæti vel falið í sér heila, nýja og hagsæla atvinnugrein. Norrænn byggingardagur á Íslandí 26. - 28. ágúsl 1S68 Framh. af 74. bls. F. Reymert byggingarverkfræðingur, formaður Noregsdeildar N. B. D. Finnland: Húsnæðiskostnaður (Boligökon- omi). Fyrirlesari er Olavi Lindblom, forstj. Húsnæðismálastofnunar Finn- lands. Umræður verða um hvert erindi. Framsögn hafa fjórir menn fyrir hvert þeirra, eða einn frá hverju landanna. Auk þess verða frjálsar umræður, eftir því sem tími leyfir. Erindaflutningur og umræður fara fram í Háskólabíói fyrir hádegi ráð- stefnudagana. Síðari hluta dags verða farnar kynnisferðir um borgina og nágrenni, en að ráðstefnuninni lok- inni ýmsar lengri ferðir um Suður- og Norðurland. Vegna skorts á gistirými munu um 300 hinna erlendu þátttakenda koma með skipi til landsins og búa þar, meðan í Reykjavík er dvalið. Gert er ráð fyrir, að 1—200 íslenzkir þátt- takendur verði á ráðstefnunni, en hún er opin öllum þeim, er áhuga hafa á, og með einhverjum hætti sinna mál- um byggingariðnaðarins. Upplýsing- ar allar um ráðstefnuna eru látnar í té hjá Byggingaþjónustu Arktitekta- félags Islands, Laugavegi 26. Sími: 14555 og 22133. IÐNAÐARMÁL 87

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.