Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 21

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 21
STEFÁN SNÆBJÖRNSSON: LISTIÐNAÐUR OG IÐNHONNUN Frá fyrstu tíð hefur viðleitni manna beinzt í þá átt að fegra hluti þá, er þeir hafa haft handa á milli og notað frá degi til dags. Jafnvel á allra frumstæðustu hlutum, svo sem ýmsum tækjum steinaldarmanna, má sjá glögg dæmi þess, að miklum tíma og hugkvæmni hefur verið varið til að gera verkfæri og vopn sem hand- hægust. Þessi viðleitni, þar sem nota gildið skiptir meginmáli, bar oft þann árangur, að hlutir þessir búa yfir miklum þokka og jafnvel listrænum eiginleikum. Skreytingar, sem varð- veitzt hafa frá þessu menningarskeiði, bera þess og glöggt vitni, að þrátt fyrir frumstæða lifnaðarhætti leyn- ist með manninum listræn tjáningar- þörf og viðleitni til að fegra umhverfi sitt. Umkomuleysi steinaldarmanns- ins gerir honum auðvelt fyrir að rata heint að kjarna viðfangsefnisins, og aukaatriði og sýndarmennska eiga ekki tilverurétt í heimi hans. Þó að langur þróunarferill skilji okkur nútímamenn frá forfeðrum okkar hellisbúunum þrátt fyrir menn- ingarlegar og stjórnmálalegar bylt- ingar, er setja svip á okkur sjálf, á umhverfi okkar og lifnaðarhætti, er- um við samt sem áður háð hinum mörgu smáu hlutum, er þjóna líkam- legum þörfum okkar og andlegri vel- líðan. Það er einmitt á þessum þörf- um, sem ýmiss konar smáiðnaður og listiðnaður byggir tilverurétt sinn. I öllum menningarlöndum, þar sem iðnaður hefur náð fótfestu og þroska, er lögð mikil áherzla á hönnun iðn- aðarframleiðslunnar. Jafnframt því að gæða framleiðsluna menningar- legum verðmætum felur þetta í sér bætta samkeppnisaðstöðu á sístækk- andi markaðssvæðum. Það er ljóst, að sé ekki lögð áherzla á betri form- sköpun, jafnframt stöðlun og sjálf- virkni, munu þær þjóðir, er van- rækja framangreind atriði, fljótt dragast aftur úr og verða þiggjendur þeirra, er fram úr skara. Hönnun ó NorSurlöndum Undanfarna áratugi hefur skandi- naviskur listiðnaður og iðnaðarvörur átt miklum og síauknum vinsældum að fagna um heim allan. Útflutningur iðnaðar og listiðnaðarvöru frá Norð- urlöndum hefur farið ört vaxandi og verður æ þýðingarmeiri fyrir gjald- eyrisöflun landanna. Hvað er það, sem hefur gert fram- leiðsluvörur þessara smáþjóða svo eftirsóknarverðar í augum milljóna- þjóða, er í mörgum tilfellum standa langt framar í tæknilegu tilliti? Það orkar ekki tvímælis, að það menn- 1. Dolkur og axarhaus frá steinöld yngri, ár ca. 3000—1500 f. Kr. (Þjóðminjasafn íslands). IÐNAÐARMÁL 91

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.