Iðnaðarmál - 01.06.1967, Side 23
af þeim tilgangi, er þeir eiga að
þjóna, efni og framleiðsluaÖferð
standa í rökréttu samræmi við hann.
Þetta er tími einfaldleika og léttleika
í formi og efni.
Á þessum árum hafa Norðurlanda-
þjóðirnar tekið funktionalismann
upp á arma sína. Meðan aðrir Evr-
ópumenn glíma við stál og gler,
sækja Skandinavar hráefni sitt í
skógana, áherzla er lögð öðru fremur
á að láta hráefnið njóta sín.
Nokkrir frumlierjar
Alvar Aalto gerir tilraunir með
„laminerað“ (samlímdar viðarþynn-
ur) finnskt birki, nærtækan efnivið,
sem með þessari tilverkun fól í sér
styrkleika stálsins, en bauð jafnframt
upp á mannlegan hlýleik. Mörg þess-
ara frumsmíða hans eru ennþá fram-
leidd. Þó að Alvar Aalto verði hvorki
talinn fyrsti né eini spámaður skandi-
navisku stefnunnar, er hann þó gott
dæmi um þá viðleitni, sem er merg-
urinn málsins, það er að byggja á
og hreinrækta þá möguleika, sem fyr-
ir hendi eru, leggja áherzlu á aðal-
atriði, en leiða hjá sér yfirborðs-
kennda lausn viðfangsefnisins.
Svíinn Carl Malmsten er óumdeil-
anlegur frumherji nútíma sænskrar
húsgagnagerðar. Þegar fyrir fyrri
heimsstyrjöld hefst liann handa, og
1917 dregur hann að sér athygli fyrir
húsgögn sín, einföld furuhúsgögn,
yfirleitt máluð í Ijósum litum. Ekki
aðeins húsgögn, heldur og hugmynd-
ir Malmstens, sem leit á bóndabæinn
sem hinn raunverulega kjarna sam-
félagsins, vöktu menn til umhugsunar
um frumstæð verðmæti á þeim tím-
um, sem vélmenning og fjöldafram-
leiðsla var flestum hið eftirsótta tak-
mark.
Kaare Klint er talinn einn helzti
brautryðjandi í danskri húsgagna-
gerð seinni tíma. Árið 1924 er hann
útnefndur yfirmaður þeirrar deildar
Listaakademiunnar í Kaupmanna-
höfn, er fjallar um húsgagnagerðar-
list.
Þeir, sem hæst hefur borið í Dan-
mörku undanfarið á þessu sviði, hafa
verið lærisveinar hans á sínum tíma
og átt ríkan þátt í þeirri fullkomnun,
sem ekki aðeins dönsk húsgögn, held-
ur listiðnaður, hvaða nafni sem nefn-
ist, hafa náð.
IÐNAÐARMÁL
93