Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 28
24.
form og litir, sem á boöstólum eru
í þessari skemmtilegu efnismeðferð.
Gull- og silfursmíð
Gull- og silfursmíð hefur lengi ver-
ið með ágæturn á Islandi. Gömul
hefð og þær tæknilegu kröfur, er hún
gerir, hafa fært okkur hina ágætustu
handverksmenn. Gull- og silfursmíð
hefur þó á seinni árum oft borið
keim minjagripagerðar, þar sem
helztu náttúrufyrirbæri landsins
hafa ráðið formi skeiða og hnífa.
Sem betur fer eru þó margir gull- og
silfursmiðir, sem meðhöndla þessa
eðalmálma af virðingu og gefa hlut-
um sínum gildi í listrænu og per-
sónulegu tjáningarformi.
Leirkeragerð
Leirkeragerð er ekki gömul iðn-
grein hér. Fyrsta leirkeragerð, sem
24. ,,Lava keramik", Glit hf.
25. Kertastjaki (leir), Kjarval og Lökken.
26. Bókagerð. Opna úr „Limrum", útgefandi
Heimskringla.
að kveður, er stofnuð af Guðmundi
Einarssyni árið 1927. í dag munu
nokkrir aðilar fást við leirkeragerð,
og að minnsta kosti einn framleið-
andi flytur muni sína á erlendan
markað. Það mun einkum vera svo-
kallað hraunkeramik, sem athygli
vekur erlendis. Þó að íslenzkt kera-
mik sé þannig ekki gömul eða rót-
gróin framleiðslugrein og deila megi
um form einstakra hluta, hefur hún
til að bera sérkenni, sem gera hana
frambærilega við hlið þeirra, er lengi
hafa lagt stund á leirkerasmíð og
byggja á hefð og reynslu.
Bókagerð
Ekki ósjaldan heyrist því fleygt, að
Islendingar séu meðal mestu, ef ekki
mesta bókaþjóð heims. Sennileg er
þessi niðurstaða, sé reiknað eftir
höfðatölureglu og fjölda útgefinna
bóka. Síðan má deila um það, hvort
bókmenntaþjóðir skulu dæmdar eftir
blaðsíðnatölu eða innihaldi þeirra
hóka, sem út eru gefnar.
Bókband er ein þeirra iðngreina,
er skipað hefur veglegan sess hér á
landi um langan aldur, og má segja,
að bókband hafi verið viðurkennd
listgrein hér. En bók er meira en
kjölur og spjöld. Bókin er fyrst og
fremst innihaldið og sá boðskapur,
er það hefur að flytja. Það er rit-
verkið, er gerir kröfur til vandaðs
frágangs, pappírs og umbrots eða
heimilar, að minna sé í umbúnaðinn
lagt. Það getur engan veginn staðizt,
að ekki sé í einni svipan hægt að
greina milli Heimskringlu og James
Bond í hókahillunni. Félag auglýs-
ingateiknara gekkst fyrir nokkru fyr-
26.
98
IÐNAÐARMÁL