Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 30

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 30
30. sé undir það búinn að vinna mark- aði. Það er alltítt um íslenzka at- vinnuvegi, að erfiðleikar eru raktir til aðgerða eða aðgerðaleysis stjórn- valda. Það er sjaldnar um það rætt, að orsaka sé að leita eða endurbóta að vænta innan frá, ef svo má að orði komast. Þrátt fyrir rekstrarfj ár- skort í iðnaðinum er vitað, að um mikla fjárfestingu hefur verið að ræða í tækjum og byggingu iðnaðar- húsnæðis. Það er því ekki óeðlilegt að vænta þess, að þessar endurbætur komi brátt til góða í afkastaaukningu og hagstæðara vöruverði. Af fjöl- mörgum vandamálum, sem iðnaður- inn mun þurfa að glíma við í frjálsri samkeppni eða ef til útflutnings kem- ur, er krafan um frambærilega hönn- un. ISnhönnun er nær algjörlega óplægður akur hér, og þeir mögu- leikar, er hönnun kynni að opna ís- lenzkum iðnaðarvörum, eru gjörsam- lega ókannaðir. Það er ekki úr vegi að gera sér grein fyrir þeim ástæðum, er kunna að valda því, að hönnun hefur verið það olnbogabarn, sem raun ber vitni. 1. Iðnaðurinn hefur átt fullt í fangi með að gera sig þess tæknilega umkominn að framleiða iðnaðarvör- ur, sem eru samkeppnisfærar við er- lendan iðnað. 2. Fjárhagsörðugleikar gera fram- leiðendum erfitt fyrir að eyða fé í hönnun og nauðsynlegar tilraunir með frumgerðir (prototypur), er kynnu að krefjast auglýsinga og langs sölutíma vörubirgða. 3. Auðvelt hefur verið, þar eð ísland keppir ekki með iðnaðarvörur á öðrum markaði en innlendum, að fá framleiðslurétt ýmissa erlendra hugverka, sem þegar eru vel auglýst af erlendum framleiðendum og hafa sannað söluhæfni. 4. Af sömu ástæðu hefur og oft reynzt auðvelt að framleiða vörur án leyfa. 5. Ekki eru enn til nein lög um verndun hugverka og því lítt fýsilegt fyrir framleiðendur og hönnuði að eyða fé og tíma í nýjungar, þar eð umráðaréttur þeirra yfir hugverkum er ekki tryggður. 6. Verndartollar. 7. Hátollun hráefnis. 8. Smæð markaðar og takmörkuð sérhæfing. 30. „Stafl-stólar", Halldór Hjólmarsson. 31. Hurðarhúnn úr ólblöndu, Björn A. Larsen. Ljósmyndir: Ingimundur Magnússon: nr. 1, 9, 11, 13, 19, 20, 21, 22, 23, 24, 25. Andrés Kolbeinsson: nr. 11, 15, 30. Leifur Þorsteinsson: nr. 27. Kristjón Magnússon: nr. 17, 18. 100 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.