Iðnaðarmál - 01.06.1967, Qupperneq 31

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Qupperneq 31
9. Skortur á upplýsingastarfsemi til neytenda um gildi listiðnaðar. 10. Sá furðulegi misskilningur margra, að hönnun þurfi að hækka vöruverð. Hvað er iðnhönnun (Industrial design) Það er takmark hönnunar að gefa framleiðsluvörunni það form, sem hentar tilgangi hennar, samræmist eðli hráefnisins og framleiðslutækni. Hið fagurfræðilega gildi verður allt- af rakið til þessara undirstöðuatriða. Það er gömul hugmynd, að hlutverk hönnunar sé ekki annað en að gera fullunna vöru girnilega í útliti, að setja skraut og knipplinga hér og þar, til þess að varan gangi í augu væntanlegs kaupanda. Hönnuðurinn er fyrst og fremst hugmyndasmiður, starf hans ætti að hefjast um leið og hugmyndin að framleiðsluvörunni verður til. Hann þarf að vera í nán- um tengslum við tæknimenn fram- leiðandans og þekkja þá möguleika, sem framleiðslutækið (verksmiðja) og þau hráefni, sem vinna á úr, bjóða upp á. Hann er ábyrgur ekki aðeins gagnvart framleiðandanum, heldur einnig hinum almenna neytanda, sem færir sér framleiðsluna í nyt. Ef vel tekst til að leysa hina mörgu þætti, sem hér er um að ræða, er árangur- inn öllum í hag. Menntun og þjálfun þeirra, er að formun iðnaðarvarnings vinna, fer yfirleitt fram í listiðnaðarskólum eða í sérstökum hönnunardeildum há- skóla í byggingarlist. Hér hefur lengi verið til ofurlítill vísir að slíkum list- iðnaðarskóla, þar sem er Handíða- og myndlistaskólinn. Eins og að þess- um skóla er búið í dag, er hann þó engan veginn þess megnugur að standast þær kröfur, er gera verður til slíks skóla. Hann er hins vegar án efa æskilegur forskóli fyrir þá, er hyggja á listiðnaðarnám erlendis. Það er æskilegt, að skóli þessi verði efldur og beint meira en hingað til inn á þá braut, að hann megi koma að gagni í sambandi við hönnun iðn- aðarframleiðslu. Skortur á listiðnað- arfólki getur þó í dag ekki talizt standa í vegi fyrir bættri iðnhönnun. Þeir kraftar, sem fyrir hendi eru, munu hins vegar ekki nýttir sem skyldi, og menntu þeirra og hæfileik- ar fara forgörðum. Iðnaður okkar virðist ekki ennþá undir það búinn, að færa sér í nyt þá þekkingu, sem fyrir hendi er á sviði formsköpun- ar. Ef til útflutnings kemur, er skil- yrði þess, að árangurs megi vænta, að vörutegundir þær, er bjóða skal á erlendum markaði, séu tæknilega og fagurfræðilega samkeppnishæf- ar. Tryggja þarf, að framleiðslugetan standi undir endurnýjun vörubyrgða, ef vel tekst til. Vekja þarf áhuga erlendra kaup- sýslumanna á vörunni. Þetta má gera með þátttöku íslands í alþjóðlegum listiðnaðarsýningum, og er það án efa ódýrara og áhættuminna en að íslenzkir aðilar annist sjálfir dreif- ingu á erlendum markaði. Hafa þarf stöðugt eftirlit með því, að þær vörur, sem fluttar eru út og auglýstar sem íslenzkur listiðnaður eða iðnhönnun, standist ströngustu kröfur, sem gera má til slíkrar fram- leiðslu. Slík viðurkenning á gæðum fengist af iðnhönnunaráði (design council), eins og tíðkast meðal flestra þjóða, er hafa haft augun opin fyrir gildi hönnunar. Hér að framan hefur verið reynt að renna stoðum undir það álit höf- undar, að rík ástæða sé til, að fram- leiðendur, á hvaða sviði iðnaðar sem er, gefi gaum að nauðsyn hönnunar. Það er löngu tímabært, að Islend- ingar vakni til vitundar um þá auknu möguleika, sem hönnun getur fært iðnaðarvörum okkar í samkeppni við aðrar þjóðir, bæði á heimamarkaði og ekki síður, sé hugsað til útflutn- ings. Ég held, að flestir séu sammála um, að margt sé hægt að gera til að gefa íslenzkum listiðnaði gildi og glæða þá möguleika, sem lítil þjóð hefur til að setja svip sinn á um- hverfið. r Stefán Snœbjörnsson húsgagnaarkitekt, er jæddur í Reykjavík árið 1937. Lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík 1959. Stundaði nám í húsgagnagerðarlist við Statens Kunstindustriskole í Oslo 1961—65. Hlaut styrk jrá Norsk exportrád og tók þátt i námskeiði í industrial design, á vegum þess. Starfar nú hjá Skarphéðni Jóhannessyni arkitekt. IÐNAÐARMAL 101

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.