Iðnaðarmál - 01.06.1967, Síða 32
Tvö merkileg skjöl
í 1.—2. tölublaði þessa árgangs
Iðnaðarmála var birt frásögn af 100
ára afmæli Iðnaðarmannafélagsins í
Reykjavík og getið um afmælisrit fé-
lagsins í tilefni þess.
Þar er þess getið, að 36 menn hafi
verið kjörnir heiðursfélagar félagsins
á þessum 100 árum. Nýlega barst rit-
stjórninni ljósprent af einu slíku
heiðursbréfi, þar sem Jón Guðmunds-
son, málfærslumaður og ritstjóri
„Þjóðólfs“, er kjörinn heiðursfélagi
Handiðnamannafélagsins 12. janúar
1871 og er bréfið undirritað af Sig-
fúsi Eymundssyni, þáverandi forseta
félagsins og Arna Gíslasyni, ritara
þess. Jón Guðmundsson ritstjóri er
ekki meðal þeirra 36 manna, sem
taldir eru heiðursfélagar í afmælisrit-
inu, og birtist þetta hér því til leið-
réttingar ásamt mynd af kjörbréfinu.
Sennilegt er, að Jón Guðmundsson
hafi verið fyrsti kjörfélagi félagsins,
þótt það verði ekki séð með vissu,
enda er líklegt, að Jón sem þáverandi
málfærslumaður í Reykjavík kunni
að hafa aðstoðað við stofnun félags-
ins.
,, /t'/'rnJ //,/ ,/r
jj" r„/,/ÍSt/r,,
'""’Ay /í/ rfL
/<//>yZ'/-
Árni Thorsteinsson
Bæjarfógeti í Reykjavík og
Landfógeti á Islandi
kunngerir: að ár 1865 þann 18. October,
mætti fyrir mjer herra timbursmiðsmeistari
Jón Jónsson hjer úr bænum ásamt meðlæri-
sveini hans Jóni Þorkelssyni, 24 ára að
aldri, fæddum í Reykjavík og bar velnefnd-
ur timbursmiðsmeistari fram, að tjeður
lærisveinn hans væri búinn að enda út
kennslutíma sinn og orðinn fullnuma í trje-
smíði og að hann um kennslutímann hefði
reynst sjer sem ástundunarsamur og dug-
legur maður, ennfremur fram lagði hann
vottorð tveggja af mjer útnefndra manna
snikarameistara H. Jónssonar og E. Jóns-
sonar um að prófsmíði nefnds Jóns Þor-
kelssonar væri svo vel gjörð, að hann fyrir
það gæti fengið sveinsbrjef.
I tilefni af framanrituðu lvsi jeg því
hjermeð yfir, að tjeður herra Jón Þorkels-
son hjer eptir hefir rjett sem timbursmiðs-
sveinn, til að leita sjer atvinnu sem trje-
smiður hjer á landi, samkvæmt tilskipan
17. Nov. 1786 og 13. Júní 1787 samt opnu
brjefi 18. Aug. 1786.
Skrifstofu bæjarfógeta í Reykjavík, 18.
October 1865. Til staðfestu nafn mitt og
embættisinnsigli.
A. Thorsteinsson
Sveinsbrjej
fyrir timbursmiðssvein, herra Jðn Þorkels-
son
Borgun 1 rd
einn ríkisdalur er mjer
borg. A. Thorsteinsson
102
IÐNAÐARMÁL