Iðnaðarmál - 01.06.1967, Síða 37

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Síða 37
hlutverki stofnananna væri sinnt á þennan hátt, mundi það leiða til þess, að rannsóknastofnanirnar yrðu í starfsemi sinni virkari gagnvart ein- stökum atvinnuvegum. Þá kom fram í umræðuhópnum sú skoðun, að sú dreifistýring, sem á sér stað í dag á rannsóknum í þágu atvinnuveganna, leiddi til þess, að einstakir fagráðherrar væru færir um að sjá stofnunum sínum fyrir stærri fj árframlögum en annars, ef þær heyrðu undir rannsóknaráð. 4. Hópurinn reyndi að gera sér grein fyrir raunverulegum áhrifum stjórna og ráðgjafanefnda á starf- semi stofnananna. Hjá öllum stofnun- unum störfuðu ráðgj af anefndirnar aðeins sem viðtakendur upplýsinga um starfsemi stofnananna, en ekki sem raunverulegur ráðgefandi. Hins vegar mátti greina ákveðin áhrif frá einstökum atvinnuvegum á starfsemi stofnananna fyrir tilstilli stjórnanna. Hið óformlega samband milli rannsókna og atvinnulífs 1. Þessu sambandi er að mestu leyti haldið uppi með persónulegum tengslum milli rannsóknasérfræðinga og stjórnenda eða tæknimenntaðra manna fyrirtækja. Rannsóknasér- fræðingarnir ætlast yfirleitt til, að frumkvæðið að slíkum tengslum komi frá fyrirtækjum, þ. e. fulltrúar þeirra leiti uppi hinn rétta sérfræð- ing fyrir lausn ákveðins vandamáls. Þar sem tregðu gætir hjá atvinnu- rekendum til að leita eftir tengslum við rannsóknastofnanir, er nauðsyn- legt að efla virka upplýsingastarf- semi hjá stofnununum. Kanna þyrfti nánar, hvort hagnýta mætti hugmynd A. King um, að við rannsóknastofn- anir starfi a. m. k. einn sérfræðingur, sem gegni stöðu upplýsinga- eða nýj- ungafulltrúa. Sé starfssvið hans að hafa frumkvæði að því, að samband komist á við fyrirtæki og þeim miðl- að nýjungum, sem tiltækar eru og öllum aðgengilegar, og aðstoða fyrir- tækin við að komast til réttra sér- fræðinga við lausn á vandamálum sínum. Reynist ekki heppilegt að hafa slíka stöðu, þyrftu einstakir sérfræð- ingar eða fyrirsvarsmenn stofnana að hafa frumkvæði að betra sam- bandi við atvinnurekendur. Ein af leiðunum fyrir rannsóknastofnanirn- ar í því sambandi er að efna til ráð- stefnu fyrir einstakar atvinnugreinar um möguleika þeirra til að hagnýta sér og fylgjast með í tækni- og vís- indaþróun nútímans. 2. Einstakar stofnanir gefa út rit, þar sem birtar eru helztu rannsókna- niðurstöður þeirra. Umræðuhópur- inn gagnrýndi hlédrægni sérfræðing- anna og var þeirrar skoðunar, að þeir gerðu ekki nægilega mikið til þess að setja rannsóknaniðurstöður sínar fram á alþýðlegan hátt og kynna í fjölmiðlunartækjum einstök verkefni, sem unnið er að. Taldi um- ræðuhópurinn, að hér væri um að ræða afstöðu og viðhorf, sem væru mjög algeng hjá háskólamenntuðum mönnum yfirleitt, en þeir yrðu að leggja niður í þágu sinna eigin hags- muna, þar sem þeir hefðu enn ekki fengið almenna viðurkenningu þjóð- félagsins á störfum sínum. 3. Erfiðleikar á málfarslegum tjá- tengslum (kommunikation) milli rannsóknarsérfræðinga og atvinnu- rekenda virtust ekki vera miklir, en þó voru nefnd dæmi í umræðuhópn- um um algeng faghugtök hjá sérfræð- ingum, sem misskildust oft. Nauðsynlegar breytingar í skipulags- byggingu rannsókna, svo að bæta megi samband þeirra viS atvinnulífið Aðalvandamál rannsóknastofnana í þágu atvinnuveganna varðar sem stendur hvorki stj órnskipulag þeirra né tekjuöflunarmöguleika, heldur lúta þau að framhaldsmenntun, starfs- kjörum og starfsaðstöðu rannsókna- sérfræðinganna. Verulegar hreyting- ar á þessu sviði eru algjör forsenda fyrir því, að rannsóknastarfsemin geti bætt samband sitt við atvinnulíf- ið. Hin eiginlega fagmenntun (kandi- datspróf) raunvísindamanna á sér stað í erlendum háskólum. Ýmsir þeirra hafa einnig starfað áfram við einstakar stofnanir háskólanna. Það eru einkum eftirfarandi þætt- ir, sem gera það erfitt fyrir sérfræð- ingana að afla sér frekari þekkingar og þjálfast frekar í vísindalegum vinnubrögðum: 1. Skortur á fagumhverfi (fag- mileu). Rannsóknarstarfsemin er ekki það umfangsmikil, að rann- sóknasérfræðingar með sömu sér- kunnáttu séu nægilega margir til, að hægt sé að tala um fagumhverfi. Tengslin á milli rannsóknasérfræð- inganna verða því frekar milli manna með ólíkar fræðigreinar að baki heldur en manna með sömu fræði- grein að baki. 2. Skortur á vísindalegum og tæknilegum upplýsingum. Hver stofn- un hefur sitt eigið bókasafn, og rannsóknasérfræðingarnir verða sjálfir að eyða allt of miklum tíma til þess að afla nauðsynlegra upplýs- inga. 3. Rannsóknasérfræðingar við stofnanirnar eru opinberir starfs- menn með tiltölulega lágar tekjur. Margir neyðast til þess að taka að sér aukavinnu í frítímum sínum, sem er venjubundin (rutine) og eykur ekki á rannsóknahæfileika þeirra, heldur frekar hitt, að þeir veikjast. Umrœðuhópurinn gerði eftirfar- andi tillögur til úrbóta: 1. Aukin tengsl við erlendar stofn- anir og starfsmannaskipti við þær. 2. Framkvæma þarf tillögur Kjeld Klintöe frá Dansk Teknisk Oplysn- ingstjeneste (sjá Iðnaðarmál, 6. hefti 1963) um tæknilega og vísindalega upplýsingaþjónustu á vegum rann- sóknaráðs fyrir stofnanir og sérfræð- inga. 3. Sérfræðingarnir séu ráðnir á sérstökum samningum við fagfélög þeirra, á svipaðan hátt og tíðkast í Danmörku. IÐNAÐARMÁL 107

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.