Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 43

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 43
Útgáfa jöfnunarbréffa Eftir Árna Vilhjálmsson, prófessor ÁRNI VILHJÁLMSSON, prófessor, er fæddur í Reykjavík árið 1932. Hann lauk prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1951 og prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla íslands 1954. Var við hagfræðinám í Harvardháskóla í Bandaríkjunum og lauk M. A. prófi þaðan 1957. Frá 1961 hefur Ámi verið prófessor í viðskiptadeild Háskóla íslands, en áður hafði hann gegnt ýmsum sérfræði- og kennslustörfum innanlands og erlendis. 1. Inngangur Jöfnunarhlutabréf eru ein tegund fríhlutabréfa (d. gratis aktier), þ. e. hlutabréfa, sem afhent eru hluthöfum án endurgjalds. Jöfnunarhlutabréf greinast frá öðrum fríhlutabréfum í því, að móttaka þeirra felur ekki í sér skattskyldar tekjur. Nokkurrar ó- vissu hefur gætt um áhrif útgáfu jöfnunarhlutabréfa á efnahag og af- komu bæði hlutafélags og hluthafa, og er það ætlunin hér að varpa nokkru ljósi á þessar verkanir og leit- ast við að setja fram nytsamar al- hæfingar. Fyrst verður rætt um heim- ildir hlutafélaga til útgáfu jöfnunar- hlutabréfa. í öðrum aðalkafla verður rætt um hag hluthafa af útgáfu slíkra bréfa. Eru þar gerðir útreikningar, sem hvíla á ákveðnum forsendum, m. a. um arðsemi rekstrarins og um arðgreiðslustefnu félagsins. í loka- kafla verður svo rætt um gildi niður- staðnanna. 2. Heimildir til útgóíu jöfnunar- hlutabréfa Með lögum um tekjuskatt og eign- arskatt nr. 70 1962 var fyrst veitt heimild til útgáfuhinna„skattfrjálsu“ jöfnunarhlutabréfa. í reglugerð nr. 245 31. des. 1963 segir svo (14. gr. C. 3.): „Ekki telst þó til arðs úthlutun jöfnunarhlutabréfa, sem ekki hefir í för með sér breytta eignarhlutdeild hluthafa í hlutafélagi og telst því ekki til skattskyldra tekna hluthafans, enda sé útgáfa bréfanna byggð á raunveru- legum verðmætum í sjóðum, öðrum en skattfrjálsum varasjóði, eða öðr- um eignum félagsins, er verið hafa í eigu þess minnst þrjú ár og sé samanlagt nafnverð jöfnunarhluta- bréfanna, miðað við hlutafé félags- ins, ekki hærra en svarar til almennr- ar verðhækkunar frá stofnun félags eða frá innborgun hlutafjár. Almenn verðhækkun í sambandi við útgáfu j öfnunarhlutabréfa skal miðuð við þær breytingar, sem orðið hafa á verði vöru og þjónustu, með hliðsjón af breytingum á launum og verði fastafjármuna, frá þeim tíma, sem hlutafélag var stofnað eða hluta- fé innborgað og til þess tíma, er út- gáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin. Ríkisskattstjóri skal reikna út vísi- tölu þessa fyrir ár hvert. Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu þess árs, sem hluta- félag var stofnað eða hlutafé inn- borgað, en hins vegar við vísitölu ársins áður en útgáfa jöfnunarhluta- bréfa er ákveðin. Hlutafélag getur gefið út jöfnunar- hlutabréf svo oft sem framangreindra ákvæða er gætt. Nú ákveður hlutafélag að gefa út jöfnunarhlutabréf skv. 2.—4. mgr., og getur þá félagið leitað álits ríkis- skattstjóra um, hvort framangreind- um skilyrðum sé fullnægt. Beiðni um slíkt álit skulu fylgja nauðsynleg gögn.“ Samkvæmt ofangreindum ákvæð- um eru sett tvenns konar skilyrði (hámörk) fyrir útgáfu jöfnunarbréfa og ráða þrengri mörkin úrslitum hverju sinni. Onnur mörkin ákvarð- ast af þeirri vísitölu, sem ríkisskatt- stjóri reiknar út fyrir hvert ár. Vísi- tala þessi var síðast birt með auglýs- ingu í Lögbirtingablaði 14. jan. s. 1. (1967). Vísitalan gildir í sambandi við útgáfu bréfa á árinu 1967, og er þá miðað við, að vísitala ársins 1966 sé 100. Hér er útdráttur úr töflunni, sem sýnir gildi vísitölunnar: Ár Vísitala 1963 148 1962 162 1960 198 1955 305 1950 459 1945 786 1940 2193 1935 3102 1930 2959 Samkvæmt vísitölutöflunni ætti fé- lag, sem stofnað hefði verið árið 1955 með 100.000 kr. hlutafé og ekki hefði aukið við hlutaféð síðar, að geta gefið út j öfnunarhlutabréf að fjárhæð 205 þús. kr. (allt hlutaféð eftir aukningu ætti að geta orðið 100 þús. kr. X 3,05). í reglugerð segir, að miðað skuli við það ár, er félag var stofnað eða hlutafé innborgað. Nú geta liðið mörg ár frá því, að hlutafélag er stofnað og skrásett (a. m. k. hlutafjár þarf að vera greidd- ur, til þess að félag fáist skrásett), þangað til upphaflega ákveðið hluta- fé er að fullu greitt, og sams konar dráttur á greiðslu getur átt sér stað við síðari aukningu hlutafjár. Verð- ur að ætla, að ártal innborgunar skipti öllu máli'í sambandi við hluta- IÐNAÐARMÁL 113

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.