Iðnaðarmál - 01.06.1967, Síða 51

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Síða 51
REGLUGERÐ um lánadeild veiðariæraiðnaðar 1. gr. Stofna skal í Iðnlánasjóði lánadeild veiðarfæraiðnað- ar, er hafi þann tilgang að efla og styrkja innlendan veiðarfæraiðnað. 2. gr. Stofnfé lánadeildar veiðarfæraiðnaðar er skuldabréf Síldarverksmiðja rikisins, dags. 6. desember 1952, að eftirstöðvum 11,6 milljónir króna, og tekjur lánadeild- ar verðjöfnunargjald af innfluttum veiðarfærum, sam- kvæmt 1. tl. 1. gr. laga nr. 31, 29. apríl 1967, svo og aðrar tekjur, sem gert er ráð fyrir í sömu lagagrein. 3. gr. Iðnlánasjóði er heimilt, að fengnu samþykki ríkis- stj órnarinnar, að taka allt að 10 milljón króna lán til starfsemi lánadeildar veiðarfæraiðnaðar, og er ríkis- sjóði heimilt að ábyrgjast slík lán. 4. gr. Lánadeild veiðarfæraiðnaðar styrkir innlendan veið- arfæraiðnað á eftirfarandi hátt: a) með lánum til allt að 15 ára með vöxtum, sem mega vera allt að 3% lægri en almennir útlánsvextir Iðn- lánasjóðs, b) með styrkjum eða vaxtalausum lánum til ákveðins tíma til að stofnsetja veiðarfæragerðir eða til verð- jöfnunar innlendri veiðarfæraframleiðslu, vegna er- lendrar samkeppni, enda njóti hin innlenda fram- leiðsla ekki tollverndar. Heildarupphæð styrkja á ári hverju má eigi nema hærri upphæð en hreinum tekjum veiðarfæradeild- ar. Þó er heimilt, ef nauðsyn þykir til bera, að verja tekjum fleiri ára til styrkja á sama árinu. 5. gr. Umsókn um lán eða styrk skulu fylgja ítarlegar upp- lýsingar á rekstri fyrirtækisins og á hvern hátt lán eða styrkur verði til að tryggja afkomu þess. Umsókn um styrk til verðjöfnunar skal fylgja sund- urliðuð skýrsla um óseldar birgðir fyrirtækisins eða framleiðslu og sölu þess frá því að birgðaskýrsla var send lánadeild veiðarfæraiðnaðar síðast, og einnig rök- studdur samanburður á kostnaðarverði einstakra teg- unda birgða og verði samskonar, innfluttra veiðarfæra. Enn fremur skulu fylgja umsókn eftirfarandi gögn: a) eignar- og veðbókarvottorð, b) vátryggingaskírteini eða óyggjandi vottorð um vá- tryggingu eigna fyrirtækisins, c) vottfestar upplýsingar um það, hverjum sé heimilt að skuldbinda fyrirtækið og veðsetja eignir þess, d) rekstrar- og efnahagsreikningur fyrirtækisins s.l. 2 ál, Framh. á 118. bls. REGLUGERÐ um hagræðingarlán Iðnlánasjóðs 1. gr. Iðnaðarlánasjóði er heimilt, að fengnu samþykki rík- isstjórnarinnar, að taka allt að 100 millj. kr. lán til þess að mynda nýjan lánaflokk í því skyni að veita sérstök hagræðingarlán, til viðbótar almennum lánum. 2. gr. Hagræðingarlán Iðnlánasjóðs skulu veitt í þeim til- gangi að auka framleiðni og bæta aðstöðu iðnfyrir- tækis til þess að aðlaga sig nýjum viðhorfum vegna breyttra viðskiptahátta, svo sem tollabreytinga og frjáls- ari innflutnings. Umsókn skal fylgja ítarleg lýsing á fyrirhugaðri hagræðingu, og á hvern hátt hún verður til þess að auka framleiðni fyrirtækisins. Þá skal jafn- framt gerð fullnægjandi grein fyrir því, hvernig um- beðið hagræðingarlán stuðli að því að gera fyrirtækinu kleift að mæta tollalækkun eða fríverzlun. Enn fremur skulu fylgja umsókn eftirfarandi gögn: a) eignar- og veðbókarvottorð, b) vátryggingaskírteini eða óyggjandi vottorð um vá- tryggingu eigna fyrirtækisins, c) vottfestar upplýsingar um það, hverjum sé heimilt að skuldbinda fyrirtækið og veðsetja eignir þess, d) rekstrar- og efnahagsreikningar fyrirtækisins s. 1. 2 ár, e) aðrar upplýsingar um rekstur og efnahag fyrirtækis- ins, sem óskað kann að verða eftir. 3. gr. Vextir af hagræðingarlánum Iðnlánasjóðs skulu á- kveðnir af stjórn hans, að fengnu áliti Seðlabanka ís- lands og með samþykki iðnaðarmálaráðherra. Þegar um ótollverndaðan iðnað er að ræða eða iðn- að, sem hefur óverulega tollvernd, mega vextir vera 3% p. a. lægri en almennir útlánsvextir sjóðsins. 4. gr. Hagræðingarlán til vélakaupa mega vera til allt að þremur árum lengri tíma og í sambandi við fasteignir til allt að því fimm árum lengri tíma en hin almennu lán úr Iðnlánasjóði. Skulu þau vera jafngreiðslulán (annuietslán) og mega vera afborgunarlaus fyrstu 2 árin. 5. gr. Að öðru leyti gilda ákvæði laga nr. 45, 3. apríl 1963, um Iðnlánasjóð. Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 25, 22. apríl 1966, um breytingu á lögum nr. 45, 3. apríl 1963, um Iðnlánasjóð, til að öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. IÐNAÐARMÁL 119

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.