Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 123
lífsstíll
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 123
loksins, loksins
Fáir bílar hafa hlotið eins góða dóma og vakið
eins mikla athygli undarfarið og Fiat 500,
Cinquecento, bíll ársins í Evrópu. og loksins er
hann á leiðinni til Íslands, fyrir rúmlega sextán
hundruð þúsund krónur.
Fiatverksmiðjan í Tychy í Póllandi hefur ekki
undan. Það er búið að selja yfir hálfa milljón
Cinquecento á rúmu hálfu ári. Nýjasta viðbótin er
Abarth, sportútgáfa með 135 hestafla túrbóvél
og væntanleg á markað í júlí næstkomandi.
Bíllinn er aðeins þrír og hálfur metri að lengd,
hannaður af Roberto Giolito hjá Fiat í Tórínó. og
Fiat hefur stór plön, jafnvel að selja hann í Banda
ríkjunum, á markaði sem til þessa hefur ekki
verið ginnkeyptur fyrir smábílum. Hver veit nema
það sé að breytast, bensínlítrinn er kominn í rúm
lega 45 krónur fyrir vestan.
Ríkisstjórnin setti nefnd til að endur
skoða skattheimtu á bifreiðar. Það
hefur lekið út að nefndin hafi fyrst
og fremst horft til frænda vorra á
Norðurlöndum varðandi skattheimt
una. Umhverfisvænir bílar, sem og
smábílar, njóta forgangs.
Það getur ekki verið vitlausara.
Hér í lýðveldinu gilda allt önnur lög
mál en í Gamla Stan í Stokkhólmi
eða í Árósum. Hér eru fjallvegir og
vetrarríki; hálendisvegir og hálendi
með óbrúuðum sprænum og ám sem
hæfa ekki bílum nema með fjórhjóla
drif; jeppum og jepplingum.
Það er ekki aðeins að þeir séu
hentugir til að njóta þess besta
sem landið býður upp á, ósnortin
öræfin, heldur eru þeir þjóðhagslega
hagkvæmir. Þeir eru öruggari, á
allan hátt. Veita betri vernd vegna
stærðar sinnar og fjórhjóladrifið
kemur sér vel hvort heldur á Stein
grímsfjarðarheiði um hávetur eða
Hellisheiði vestur.
Umhverfisvænt er auðvitað gott.
En að ferðast um landið á ekki ein
vörðungu að vera fyrir þá efnameiri;
þá sem hafa efni á því sjálfsagða
öryggistæki sem fjórhjóladrifið er.
Hér gilda önnur lögmál heldur en
að komast frá Árósum til Álaborgar.
Hér eru fjöll og fagrir fjallvegir.
Leyfum sem flestum að njóta þeirra.
Hálendið á ekki að bara að vera fyrir
þá efnameiri.
hálendið fyrir þá efnameiri?
Þrjárkommafimm í 100
Það eru fáir bílar sem beðið er eftir með eins mikilli spennu og
Nissan GTR. Hann kemur samt ekki á markaðinn fyrr en eftir eitt
ár. En þegar eru öll bílablöð með lofgreinar um þennan ofursport
bíl, sem er hraðskreiðari en Porsche 911 Turbo og Corvette Z06,
en kostar miklu minna.
Saga GTR nær alveg aftur til 1969 en þeir voru bara seldir með
hægrihandar stýri og einungis í Japan og Ástralíu en þar fékk
hann viðurnefnið Godzilla. Ekkert hefur verið til sparað við gerð
þessa ofursportbíls. Vélin er V6 3799cc og gefur 473 hestöfl. Við
prófanir tókst ökumönnum Nissan að fara Nürnburgerhringinn á
7 mínútum og 38 sekúndum. Það er ellefu sekúndum hraðar en
Porsche 911
Turbo og átta sekúndum hraðar en Lamborghini Gallardo og
Ferrari 599 GTB.
Nissan GTR er fjórhjóladrifinn og byggður úr áli. Framleiðslan
takmarkast við aðeins eitt þúsund bíla á mánuði. Svo það er bara
að panta einn, strax. Verðið undir 10 milljónum króna; hingað kom
inn.
NissanGTR.
Fiat500,bíllársinsíEvrópu.