Franskir dagar - 01.07.2013, Page 22
Texti:Albert Eiríksson
Myndir: Albert Eirtksson
og Helena Stefánsdóttir
A sólríkum degi íbyrjun sumars hitti ég nýstofnaðan saumaklúbb
nokkurra Fáskrúðsjjarðarkvenna sem allar eru fæddar 1963 og
eiga pví stórafmœli í ár. Þær búa allar á höfuðborgarsvæðinu og
eru pekktarfyrir mikinn matar- og tertuáhuga. Það er afar létt
yfir hópnum og mikið hlegið.
Fjölmargar sögur af áhyggjulausum ungdómsárum eru rifjaðar
upp með tilheyrandi hlátrasköllum. I Ijós kemur að a.m.k. tvær í
hópnum eiga „frystihúshnífa“ og nota pá oft. „En í óllum bænum
ekki takapað fram igreininnipópessir hnífar hafi óvart endað
hjá okkur“ segir ein og nú er hlegið enn hærra.
Saumaklúbburinn er svo nýr að þær hafa ekki einu sinni gefið sér
tíma til að velja honum nafn. Fram kemur sú hugmynd að kalla
hann Súper '63 enda skrifi Jónína Óskarsdóttir það ávallt undir
afmæliskveðju til jafnaldra sinna á netinu. Kristín kom með tösku
með saumadóti, um leið og hún skutlar henni á stól í eldhúsinu
segir hún að klúbburinn verði að standa undir nafni - við látum það
svo liggja milli hluta hvort saumadótið var tekið upp úr töskunni.
Þar sem listin í sinni fjölbreyttu mynd á hug klúbbfélaga er ekki
ólíklegt að þeir eigi eftir koma miklu í verk í framtíðinni hvort
sem það verður í formi málverka eða hönnunar.
Kristin Albertsdóttir, Elva Hildur Hjaltadóttir, Stefanía Herborg Finnbogadóttir, Helena Stefanía Stefánsdóttir
og Helga Jóna Óðinsdóttir.
Klúbbfélagar ræddu um hvort greinarhöfundur væri til í gerast
„verndari" klúbbsins þar sem upphringing frá honum varð til þess
að klúbburinn varð að veruleika - það er auðvitað auðsótt enda
ekki á hverjum degi sem miðaldra karlmaður tekur þátt í að stofna
saumaklúbb þó óbeint sé :)
Kaldur brauðréttur
Rífið skorpulaust brauð í form (ca Vi brauð).
Ein lítil dós ananaskurl með safa.
2-3 msk. majones.
Eitt box sýrður rjómi.
Blandið þessu saman og hellið yfir brauðið.
Brytjið Dalabrie eða annan góðan ost og setjið ofan á.
Dreifið 4-5 bollum af rækjum yfir.
Dreifið saxaðri papriku, gulri, rauðri og grænni, yfir
(hálf paprika af hverjum lit).
Skerið vínber og setjið ofan á.
Kaldur brauðréttur.
Þessa uppskriftfékk Elva Hildur í vinnunni á rannsóknarstofu Landspítalans. jíþeim góða vinnustað feer maður
upplýsingar um allt sem skiptir máli enda vinnaþar konur á öllum aldri“.
22