Víkurfréttir - 17.01.2008, Page 23
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 17. JANÚAR 2008 23STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Gamla hlaðan Skjaldbreið,
s e m r e i s t v a r u m á r i ð
1850 og stendur á hlaðinu
á Kálfatjörn, varð f yrir
m i k l u m s k e m m d u m í
óveðri á dögunum þegar
suðurveggurinn gaf sig og
þakið losnaði og lyftist af
veggjunum. Aðrir veggir
sem allir eru hlaðnir eru
uppistandandi en illa farnir.
Skjaldbreið hefur umtalsvert
menningarsögulegt gildi um
aðstöðu og l i fnaðarhætti
útvegsbænda á 19. öld auk
þess að vera ómissandi hluti
af umhverfinu við kirkjuna
o g m i k i l v æ g u r þ át t u r í
sögu staðarins. Samkvæmt
aldursákvæði Þjóðminjavarðar
er Skjaldbreið friðuð.
Minjafélag Vatnsleysustrandar
v i n n u r a ð e n d u r b ó t u m
hennar í samvinnu við Húsa-
friðunarnefnd ríkisins og
hefur hluti hlöðunnar verið
endurhlaðinn.
Uppbyggingu Skjaldbreiðar
v e r ð u r h a l d i ð á f r a m á
komandi sumri, að því er fram
kemur á vef Sveitarfélagsins
Voga. Þar segir að verkinu
þurfi að ljúka fyrr en áformað
hafði verið og er stefnan sett á
að endurhlaða veggina og loka
hlöðunni á árinu.
Skjaldbreið verður
endurbyggð eftir veðurtjón
Minjafélag Vatnsleysustrandar:
Eins og sjá má er Skjaldbreið illa leikin eftir óveður en Minjafélag
Vatnsleysustrandar hyggst koma henni aftur í fyrra horf.
Skjaldbreið var reist um 1850 og hefur staðið af sér óveður
og tímans tönn þangað til í desember.
FRÉTTASÍMI VÍKURFRÉTTA
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222