Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.06.2008, Qupperneq 36

Víkurfréttir - 12.06.2008, Qupperneq 36
36 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 24. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali - Hafnargata 27 - 230 Keflavík s: 421 1420 og 421 4288 - fax 421 5393 - Netfang: asberg@asberg.is Blikabraut 7, Keflavík Góð 104 fm 4ra herbergja íbúð á 2 hæð með sérinngangi, 21 fm bílskúr sem fylgir. Búið að endurnýja eldhúsinnréttingu, alla glugga, svalahurð og gler, þakjárn á bílskúr. Getur verið laust fljótlega. Góður staður. 21.000.000,- Heiðarendi 4, Keflavík Mjög góð 104m2 nýleg íbúð á 1 hæð með sérinngangi í átta íbúða húsi á góðum stað. Allar innréttingar úr eik, flísar og parket á gólfum. Laus strax. Uppl.á skrifstofu Vallarbraut 6, Njarðvík Mjög góð 3ja herbergja 86m2 íbúð á 1 hæð í fjölbýlishúsi fyrir eldri borgara, svalir og sérgeymsla. Parket og flísar á gólfum. Teppi og flísar á sameign. Stutt í alla þjónustu. 17.500.000,- Heiðarbraut 5, Keflavík 156m2 2 hæða raðhús ásamt bílskúr. 3 herb. parket og flísar á gólfi, nýjar neysluvatnslagnir, nýjar úti og innihurðar, baðherbergi nýtekið í gegn. Eignin er á mjög góðum stað. Laus fljótlega. 25.300.000,- Lækjarmót 57-59, Sandgerði Tvö parhús í byggingu samtals 123m2 að stærð. Húsin verða seld fullbúin að utan en tilbúin undir málningu og spörslun að innan. Lóðin með þökum og plan steypt með hitalögn. Góð lán áhvílandi. 17.600.000,- asberg.is Kirkjuteigur 11, Keflavík Vel staðsett 143m2 einbýlishús á tveimur hæðum. Í húsinu eru 4 svefnh. Búið að endurnýja þakjárn, skolplögn og neyslu- vatnslagnir. Miðstöðvarlögn lögð í eir. 26.000.000,- Heiðarbraut 19, Keflavík Stórt og gott 188m2 einbýlishús ásamt bílskúr. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, nýjar eikar innihurðir og eikar parket. Steypt bílaplan með bomanik. Stutt í skóla og alla þjónustu. Laus fljótlega. 37.000.000,- Kirkjuvegur 48, Keflavík Eldra einbýlishús sem stendur á eignalóð á góðum stað í bænum, eign með mikla möguleika fyrir verktaka og aðra. Við húsið eru tveir geymsluskúrar sem fylgja. Uppl. um verð á skrifstofu. Í viðtali á vefmiðlinum visir. is þar sem fjallað er um 33. fund bæjarstjórnar Sveitar- félagsins Voga fer oddviti minnihlutans Inga Sigrún Atladóttir mikinn og full- yrðir gegn betri vitund að meirihlutinn hafi hafnað því að „búa til nýja lóð fyrir kven- félagið niðri við höfnina“. Staðreyndin er hins vegar sú að sameiginleg umsókn smá- bátafélagsins og kvenfélagsins hlaut eftirfarandi afgreiðslu bæjarstjórnar: „Með vísan til 5. liðar fundargerðarinnar leggur meirihlutinn til að bæj- arstjórn fresti afgreiðslu máls- ins þar til ítarlegri gögn liggja fyrir.“ (sjá vogar.is). Í vinnu okkar í meirihluta E- listans hefur verið lögð á það rík áhersla að vanda til allra verka og ekki síst hvað lýtur að skipulagsvinnu í sveitarfé- laginu. Því þykir okkur eðlilegt að aflað sé frekari gagna um fyrirætlanir smábátafélagsins og kvenfélagsins jafnt og ann- arra félaga eða einstaklinga, áður en farið er út í vinnu við breytingu á gildandi skipulagi með tilheyrandi kostnaði fyrir íbúa sveitarfélagsins. Hvað varðar samstarf milli listanna tveggja hefur það að okkar mati verið með ágætum og verðum við að játa, að log- andi illdeilur í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hafa farið fram hjá okkur. Vissulega hefur okkur greint á en allt tal um að bærinn logi í illdeilum er ofsögum sagt. Birgir Örn Ólafsson Inga Rut Hlöðversdóttir Hörður Harðarson Bergur Álfþórsson bæjarfulltrúar E-listans Meirihlutinn í Vogum skrifar: Af hverju segir bæjarfulltrúinn Inga Sigrún Atladóttir ósatt? KÆRAR ÞAKKIR fyrir FRÁ- BÆRA þátttöku í Kvenna- hlaupinu á laugardaginn! Markið var sett hátt og 424 hraustar konur í Reykjanesbæ náðu settu marki. Til ham- ingju með það! Það var stórkostlegt að sjá allan þennan fjölda á laugar- dagsmorguninn þrátt fyrir rokið og rigninguna. Sigga í Perlunni sá um upp- hitunina, kærar þakkir elsku Sigga. Margir starfsmenn fyrirtækja fjölmenntu og hlupu/löbbuðu í minni eða stærri hópum. Mömmur, ömmur, systur, mæðgur, vinkonur og frænkur fjölmenntu líka. Þátttakendur komu blautir og sælir í mark og voru ánægðir með framtak sitt:-) Bói á Kaffi Duus bauð hlaupur- unum snittur í Sundmiðstöð- inni á eftir, hjartans þakkir elsku Bói. Þeir sem vilja hlaupa/skokka í sumar, geta mætt kl. 17.30 á mánudögum og miðviku- dögum, á laugardögum kl. 10 og sunnudögum kl. 11 á íþróttavellinum. Á mánudögum er hlaupið upp hjá Reykjaneshöllinni, framhjá Kasko og áfram í gegnum Eyja- byggðina og Garðahverfið. Á miðvikudögum er hlaupið niður Faxabraut, að Lífsstíl, meðfram sjónum, upp Vestur- götuna og endað á íþróttavell- inum. Um helgar er hlaupið inn í Njarðvík, að ÓB og til baka eru 5 km, að TOYOTA og til baka eru 7 km og að leik- skólanum Akri, niður að sjó, að Stekkjarkoti og til baka eru rúmir 10 km. Skokknámskeiðið vinsæla byrjar síðan aftur 18. ágúst. Með hlaupakveðju, Guðbjörg Jónsdóttir, verkefnisstjóri Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ í Reykjanesbæ 2008 Frá kvennahlaupinu um helgina. VF-mynd: elg METÞÁTTTAKA í Kvennahlaupinu í Reykjanesbæ Ólafur Þór Ólafsson hefur verið ráðinn í nýtt starf frístunda- og menningarfulltrúa Sveitarfé- lagsins Voga. Hann var valinn úr hópi átta umsækjenda um starfið. Ólafur er stjórnmálafræðingur að mennt, með framhaldsmenntun í stjórnsýslu- fræðum, og hefur mikla reynslu af íþrótta- og tómstundarmálum auk viðamikillar þekk- ingar á málefnum sveitarfélaga. Hann var íþrótta- og tómstundafulltrúi í Sandgerði í 8 ár og forstöðumaður félagsmiðstöðvar í Hafnarfirði í 4 ár. Auk þess hefur hann sinnt ýmsum félagsstörfum, m.a. gegnt for- mennsku í Samfés og Íþróttafélaginu Reyni í Sandgerði. Vogar: Ólafur Þór Ólafsson frístunda- og menningarfulltrúi

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.