Víkurfréttir - 04.12.2008, Page 33
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 4. DESEMBER 2008 35TAKIÐ ÞÁTT Í JÓLALUKKU VÍKURFRÉTTA OG VERSLANA2008
Kornflexsmákökur
4 eggjahvítur
2 bollar púðursykur > stífþeytt.
4 bollar kornflex
2 bollar af kókosmjöli
blandað saman við
100 gr af smáttsöxuðu suðusúkkulaði
1 tsk af vanilludropum
Sett með teskeið á
bökunarpappirsklædda plötu í
smá toppa. Bakað við 150
gráðu hita í ca 15 mín.
Marsipankökur
500 gr marsipan
300 gr flórsykur
1-2 eggjahvítur
2msk hveiti.
Hveitinu er sáldrað á
borðið, marsipanið rifið þar
ofan á og vætt í með
eggjahvítunum. Hnoðað vel í nokkuð
fast deig. Flatt frekar þykkt út og
stungnar út kökur með
piparkökumótum. Bakaðar
ljósbrúnar við vægan hita.
Bræddu súkkulaði smurt ofan á.
Lion bar kökur
100 gr Lion bar
100 gr saxað suðusúkkulaði
150 gr púðursykur
80 gr smjörlíki
1 egg
160 gr hveiti
1/4 tsk natron
1⁄2 tsk salt
1 tsk vanilludropar
Allt hrært vel saman, lion
bar sett saman við síðast
smátt saxað. Sett á bökunarpappír með
teskeið uþb 1⁄2-1tsk í hverja köku.
Hafið bil á milli því þær renna dálítið
út. Bakaðar í ca 8 mín við 180
gráður. EF þær eru of lengi í
ofninum verða þær grjótharðar.
Kókossúkkulaðikökur frú Jónu
2 egg
2 dl sykur > Þeytt vel saman
3 dl kókosmjöl
2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
50 gr brytjað súkkulaði
Blandað saman við eggjahræruna og
sett með teskeið á plötu og bakað við
160°c. Þessu uppskrift er
á u.þ.b. 2 plötur.
Súkkulaðidropakökur
3 egg
2 bollar sykur
2 bollar púðursykur
300 g smjörlíki
6 1/2 bolli hveiti
2 bollar kókosmjöl
2 tsk natron
1 tsk salt (má sleppa)
Súkkulaðidropar til
skreytingar eftir bakstur.
Deigið er hnoðað og búnar til litlar
kúlur. Bakað við 200°c. Þegar platan
er tekin út úr ofninum ber að hafa
hraðar hendur við að raða einum
súkkulaðidropa ofan á hverja köku svo
JÓLASMÁKÖKUR
að þeir festist við kökurnar. Bráðnar
smá fyrst svo ekki er hægt að raða þeim
fyrr en súkkulaðið storknar aftur.
Lakkrístoppar
3 eggjahvítur
200 gr. púðursykur
150 gr. rjómasúkkulaði
2 pokar súkkalaðihúðað lakkrískurl
Stífþeyta eggjahvítur og bæta sykri
úti og þeyta áfram þar til sykur er
alveg horfin. Bæta þá söxuðu
súkkulaði + lakkrískurli útí (hræra
með sleif). Set með teskeið á plötu
með bökunarpappír og bakað við
175 gráður í c.a 12-14 mín.
Negulkökur
250 gr. hveiti
250 gr. púðursykur
125 gr. íslenskt smjör (lint)
1 stk egg
1,5 tesk. lyftiduft
0,5 tesk. matarsódi
1 tesk. engifer
0,5 tesk. kanill
0,5 tesk. negull
Öllu skellt saman í skál og hnoðað
rólega saman. Kælt í smá stund. Gerðar
litlar kúlur og settar á bökunarplötu
og síðan þrýst á með fingri eða
gaffli. Bakað við 180 gráður í 8-10 mín.
Amerískar
súkkulaðibitakökur I
2,5 bollar hveiti
1 tesk. matarsódi
1. tesk salt
1 bolli smjör/smjölíki
3/4 bollar sykur
3/4 bollar púðursykur
1 tesk vanilludropar
2 egg
2 bollar súkkulaðibitar, best að
nota eitthvað ekta súkkulaði...
1 bolli heslihnetur eða aðrar
hnetur (má sleppa)
Smjör/smjöríki, púðursykri, sykri og
vanilludropum hrært saman, síðan er
eggjunum bætt útí einu í einu.
Þurrefnunum bætt rólega saman við.
Að lokum er súkkulaið og
hnetum (ef vill) bætt útí.
Sett með teskeið á plötu og
bakað við 180 í um 10 mín.
Amerískar
súkkulaðibitakökur II
1,25 bolli hveiti
1 tesk. matarsódi
1/2 tesk. salt
1/2 tesk. kanill
1 bolli smjör
3/4 bolli sykur
3/4 bolli púðursykur
2 egg
1 tesk. vanilludropar
3 bollar haframjöl
340 g. brytjað súkkulaði, best
að nota gott ekta súkkulaði
Smjör, sykur, púðursykur,
egg og vanilludropar er þeytt
saman og þurrefnunum
(nema haframjöli) bætt smám
saman úti. Að lokum er
haframjöli og súkkulaði
blandað útí degið. Sett með teskeið
á bökunarplötu (með pappír)
þarf að hafa gott bil á milli því
þær renna út. Bakað við 200
gráður í 8 mín ef þær eiga
að vera mjúkar en í 10 mín ef
þær eiga að vera stökkar
Loftkökur
750 gr flórsykur
7 tsk kakó
2 egg
2 tsk hjartasalt
Bakað í 5-6 mín v/200°c
Hálfmánar
250 gr hveiti
100 gr smjör
100 gr sykur
1 egg
1/4 tsk kanill
1/4 tsk kardimommudropar
tæpl. 3/4 tsk lyftiduft
1 msk mjólk
1/4 hjartasalt
Deigið flatt út, skorið út með glasi,
sett smá sulta inn í hverja köku og
lokað með gaffli.
Bakað v/180°c í 8-10 mín
Súkkubitakökur
150 g Suðusúkkulaði
25 g smjör
200 g sykur
1 egg
1/2 tsk vanilludropar
150 g hveiti
1/2 tsk lyftiduft
50 g valhnetur eða peakan hnetur
Bræðið 100 g súkkulaði og 25 g smjör
yfir vatnsbaði.Látið sykur ,egg og
vanillu í skál og blandið bræddu
súkkulaðinu saman við.Hrærið hveiti og
lyftidufti saman við.Blandið brytjuðu
súkkulaði 50 g saman við ásamt
hnetum.Mótaðar kúlur og bakað
ofarlega í 200 gráða heitum ofni í 10 -15
mín.Njótið vel!
Súkkulaði - og hnetusmákökur
2 1/4 bollar hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt
1 bolli mjúkt smjörlíki
3/4 bolli hvítur sykur
3/4 bolli púðursykur
1 tsk vanillu dropar
2 egg
1 bolli saxaðar hnetur
2 bollar súkkulaðibitar
(hvernig sem er...)
Forhitið ofninn í 175 gráður, blandið
saman hveiti, lyftidufti og salti í
litla skál. Blandið svo í aðra stóra
skál smjörlíkinu, sykrinum,
púðursykrinum, og vanilludropunum.
Því næst koma eggin, eitt í einu, og
hrærið vel saman. Þá er að bæta úr
hveitiblöndunni úr litlu skálinni yfir í
stóru skálina, og síðast koma
súkkulaðibitarnir og hneturnar.
Gerið kökurnar hringlaga með hjálp
teskeiðar og raðið á bökunarplötuna.
Bakið þar til kökurnar verða fallega
brúnar og bíðið svo í ca 10 mín eftir
að þær verða kaldar....þá er
bara að smakka á þeim :)
m&m's smákökur
450 g hveiti
250 g sykur
200 g m&m's að eigin vali
200 g smjörlíki
1 dl nýmjólk
1 msk lyftiduft
3 stk egg
Aðferð
Saxið m&m's gróft. Hrærið
saman sykur og smjör þar
til það er létt og ljóst.
Setjið eggin saman við eitt í einu,
hrærið vel á milli. Bætið mjólkinni út
í, síðan lyftidufti og hveiti. Blandið
m&m's varlega saman við. Mótið kúlur
eða setjið deigið með teskeið á
bökunarplötu, klædda bökunarpappír.
Skreytið með m&m's.
Bakstur Bakið kökurnar í 10-15
mín. (eftir stærð) við 180°C.