Víkurfréttir - 21.06.2012, Side 21
21VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012
Sá sem við leitum að býr yfir:
• Óbilandi þjónustulund og hæfni
í mannlegum samskiptum
• Reynslu af stjórnun og skipulagningu vakta
• Samviskusemi
• Áræðanleika
• Mjög góðu valdi á enskri tungu
• Góðri almennri tölvukunnáttu
• Hæfileika til þess að starfa vel undir miklu álagi
Kostur er að hafa:
• Háskólagráðu í ferðamálafræði
eða aðra sambærilega menntun
• Áhuga á upplifun gesta og heilsuferðaþjónustu
• Frekari tungumálakunnáttu
VIÐ LEITUM AÐ AÐSTOÐAR MÓTTÖKUSTJÓRA
Bláa Lónið hefur margsinnis verið valið eitt besta spa á heimsvísu og hlaut nýverið nafnbótina eitt af
25 undrum veraldar hjá National Geographic. Bláa Lónið er einn vinsælasti áfangastaður erlendra
ferðamanna og er í örum vexti.
Við leitum að aðstoðar móttökustjóra sem mun starfa á vöktum í móttöku Bláa Lónsins við sölustörf
og stýringu á hluta af okkar frábæra teymi. Viðkomandi mun leysa móttökustjóra af við vaktaskipulag
ásamt öðrum verkefnum.
Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa að jafnaði 200–250 starfsmenn.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Gísladóttir, mannauðsstjóri Bláa Lónsins,
í netfanginu hulda@bluelagoon.is eða í síma 420-8838 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 2. júlí og eru umsækjendur vinsamlegast beðnir
um að sækja um starfið á heimasíðu Bláa Lónsins:
www.bluelagoon.is/Um-fyrirtaekid/Atvinna/
Að a l f u n d u r V i r k j u n a r mannauðs var haldinn
nýverið og var mæting góð og
Jónas Jónsson sjálfboðaliði bauð
fundargestum upp á frábæra
kjötsúpu a la Jónas.
Formaður stjórnar bauð fólk
velkomið og síðan voru kosnir
fundarstjóri og fundarritari.
Formaður, Ólafur S. Magnússon,
f l u t t i s k ý r s l u s t j ó r n a r o g
forstöðumaður Virkjunar Gunnar
H. Gunnarsson flutti skýrslu um
starfsemi Virkjunar fyrir árið 2011
og kynnti reikninga félagsins.
Í máli formanns stjórnar kom
m.a. fram að starfsemin hafi
verið mjög öf lug á árinu og
ánægjulegt að geta greint frá því
að í byrjun þessa árs (2012) var
Virkjun úthlutað veglegum styrk
frá Velferðarráðuneytinu undir
liðnum Endurhæfing, til reksturs
miðstöðvar fyrir atvinnuleitendur.
Þessi styrkur gefur okkur byr undir
báða vængi og viljum við líta svo á
að þetta sé viðurkenning á því starfi
sem fram fer í Virkjun.
Í máli forstöðumanns Virkjunar
kom fram að aðsóknin í Virkjun
hefur vaxið á árinu. Heimsóknir
á árinu voru 14.911 og komu þó
nokkrir fleiri á seinni hluta ársins
miðað við þann fyrri. Í haust
byrjuðum við einnig að flokka
heimsóknir eftir kynjahlutfalli og
samkvæmt því þá eru 62% karlar
og 38% konur sem heimsækja
Virkjun.
Eftir umræður f lutti Þórunn
Lindberg ræðu um sína sýn á
starfsemi Virkjunar. Síðan voru 5
sjálfboðaliðum afhent þakkarskjal
fyrir vel unnin störf. Þar segir; Með
framlagi þínu hefur þú lagt dýrmæt
lóð á vogarskálarnar í því starfi
sem fram fer í Virkjun. Markmið
miðstöðvarinnar er að flestir megi
finna sér uppyggjandi vettvang til
að efla getu sína til þátttöku í leik og
starfi. Í Virkjun á hver og einn að
geta miðlað af hæfileikum sínum
og lært af öðrum. Þú hefur lagt
þitt af mörkum til að efla starfsemi
virknimiðstöðvarinnar Virkjunar.
Þakklætisskjal fengu:
Jónas H. Eyjólfsson
Sif Jónsdóttir
Jón Arason
Kristín Sveinsdóttir
Jósep Valgeirsson
Og fara þau á sérstakan heiðurslista
Virkjunar mannauðs á Reykjanesi.
Fundi var síðan slitið og fólki boðið
upp á kaffi og spjall.
Fengu viðurkenningu fyrir
sjálfboðaliðastarf
Gustar um í Garðinum
stórmerkilegt að Ferskir vindar
og Garður bjóði listamönnum að
koma alls staðar að úr heiminum
til að vinna skapandi verk á borð
við verkið Hiroshima 66 sem var
unnið á Ferskum vindum 2010-11
og felur í sér 66 hnefastóra steina
á stóru steinborði. En það vísar í
að það voru 66 ár liðin frá því að
kjarnorkusprengjunni var varpað
á Hiroshima og Nagasaki. Mikio
Kawasaki skapaði verkið og vonar
að með því hjálpi hann fólki til
að muna eftir þessum sögulega
harmleik og að öll kjarnorkuvopn
hverfi í þeirri von að harmleikurinn
endurtaki sig aldrei aftur. En Mikio
biður fólkið í Garði um að bæta
við einum steini á ári í verkið svo
steinarnir séu jafnmargir og árin
frá því að sprengjunni var varpað.
Þessum japanska ferðalangi, sem
er að heimsækja Ísland í fyrsta
skiptið, finnst stórkostlegt hvernig
listamenn Ferskra vinda koma á
framfæri í list sinni ábendingum
um að það sé eitthvað rangt í
heiminum. Henni finnst eins og
listamennirnir í Garði séu ekki bara
að skapa list heldur séu þeir að gefa
heiminum skilaboð. Chieko segist
vonast til þess að Ísland verði hið
fullkomna land sem gæti verið góð
fyrirmynd fyrir önnur lönd.