Víkurfréttir - 04.10.2012, Blaðsíða 10
fimmtudagurinn 4. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR10
SAMFÉLAGIÐ
n Framkvæmdum fyrir 122 milljónir króna að ljúka við Grindavíkurhöfn:
J Sigríður er mikil hundakona.
- SiGríður AðAlSteinSdóttir er nýr verkefnastjóri hjá Virkjun mannauðs á reykjanesi:
Sigríður er um þessar mundir að
ljúka námi í stjórnun og stefnu-
mótun við Háskóla Íslands og sótti
um starf verkefnastjóra þegar það
var auglýst í sumar. Sigríður er
menntuð í tónlist og uppeldis- og
kennslufræðum. Meistaraverkefni
hennar frá viðskiptafræðideild HÍ
er rannsóknarverkefni og fjallar
um meðvirkni innan skipulags-
heilda. Sigríður er fædd og uppal-
in í Reykjavík og í Borgarfirði.
Hún þekkir vel til á Suðurnesjum
en hún bjó í Keflavík frá 1988 til
2002. Lauk stúdentsprófi af félags-
fræðibraut Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og eignaðist hér tvö af þremur
börnum sem öll gengu hér í leik- og
grunnskóla. Á námsárunum í Fjöl-
brautaskólanum starfaði Sigríður
við afgreiðslustörf, fiskvinnslu,
hótelstörf í Reykjavík, í Vogum og í
Keflavík. Áður hafði hún starfað við
tamningar og reiðkennslu í Austur-
ríki, við almenn sveitastörf, fram-
leiðslustörf, verksmiðjustörf o.fl.
Fjölbreytt starf Virkjunar
Dagskrá Virkjunar verður eftir sem
áður fjölbreytt og sniðin að þörfum
og óskum fólksins sem hana sækir.
Starfið byrjar rólega en verður
komið á fulla skrið á næstu vikum.
Að mati Sigríðar er mikil þörf á
virkniúrræðum fyrir þá sem eiga
við atvinnuleysi að stríða, eru
óvinnufærir eða þurfa af einhverj-
um ástæðum að virkja sig til at-
hafna og koma sér út úr vítahring
aðgerðarleysis. Enginn velur sér
slíkar aðstæður en því miður getum
við lent í sálarlegu svartnætti þegar
erfiðleikar steðja að. Afleiðingarnar
eru þá oft vonleysi og depurð sem
leitt geti til einangrunar. Hlutverk
Að koma sér út úr víta-
hring aðgerðarleysis
Sigríður Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin verkefna-
stjóri til Virkjunar mannauðs á Reykjanesi og mun
hún veita Virkjun forstöðu. Hún tekur við starfinu af
Gunnari Halldóri Gunnarssyni sem hefur haldið til
starfa á nýjum en þó ekki ótengdum vettvangi.
Virkjunar sem virknimiðstöðvar er
að laða að sér alla sem eru í hættu
að lenda í þeirri gryfju. Þátttaka í
starfsemi Virkjunar getur hjálpað.
Jafnvel bara að skreppa og fá sér
kaffibolla og kíkja í blöð eða sitja
með prjónakonunum og spjalla,
smella sér í billiard, hitta strákana á
smíðaverkstæðinu, taka smá snún-
ing í skrautskrift eða í föndri, læra
að sníða eða eiga stund í skemmti-
legum tölvutíma getur hjálpað og
lyft upp andanum. Flestir ættu
að finna eitthvað við sitt hæfi en
ef ekki þá er ekkert annað en að
smella hugmyndum á borð verk-
efnastjórans.
Sjálfboðaliðar sem gefa af sér
Öflugur föndurhópur er kominn
í gang og verður starfinu þar, sem
og í öðrum hópum stýrt af sjálf-
boðaliðum sem gefa af sér reynslu
og þekkingu á handverki. Fyrir þá
sem farnir eru að brjóta heilann
yfir jólunum og hafa áhyggjur af
jólagjöfum getur föndurstarfið í
Virkjun verið góð lausn. Á smíða-
verkstæði Virkjunar er starfsemin
einnig að fara í gang. Verkstæðið er
opið á þriðjudögum og föstudögum
í haust fyrir þá sem vilja virkja sig í
smíðaföndri. Sníðanámskeið fyrir
byrjendur hófst þann 24. september
og námskeið í fatabreytingum og
viðgerðum hófst þann 26. septem-
ber. Kominn er upp sproti að bóka-
kaffi sem mun þróast áfram næstu
vikurnar. Sigríður hvetur þá sem
luma á bókum sem þeir vilja losna
við að koma með þær í Virkjun
þar sem þeirra verður notið áfram.
Verið er að skipuleggja nýtt barna-
horn og eru þeir foreldrar sem vilja
koma til að taka þátt í starfi Virkj-
unar hvattir til að taka þátt í því ef
þeir hafa áhuga.
Í göngu með hundinn
Það er von Sigríðar að það spretti
aftur upp gönguhópar og hún
hvetur þá sem vilja mynda göngu-
hjóla eða aðra hreyfingarhópa til að
koma með hugmyndir að markvissu
starfi í Virkjun. Einnig þá sem hafa
áhuga á heilsusamlegri og ódýrri
eldamennsku. Sjálf vonast Sigríður,
sem er mikil hundakona, til að þeir
sem eiga hunda hafi áhuga á því
að hittast reglulega í Virkjun til að
fara í göngu með besta vininn einu
sinni til tvisvar í viku.
Kíkið við í kaffi
Sigríður hvetur alla sem hafa áhuga
á því að kynna sér starf Virkj-
unar að kíkja við í kaffi á virkum
dögum á milli 8:00 og 16:00 nema
á föstudögum 8:00-14:00. Dagskrá
vikunnar liggur þar frammi, allir
eru velkomnir og fólk er hvatt til
að nýta sér eigið hugmyndaflug að
verkefnum sem getur aukið við
flóru námskeiða og hópa í Virkjun.
Verkefnastjórinn er alltaf opinn
fyrir hugmyndum. Meginmark-
miðið er að hugmyndirnar virkji
sköpun og fræðslu, séu sjálfbærar
og laði að sér fólk.
Virkjun er með aðsetur í bygg-
ingu 740 á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Heimasíða Virkjunar er komin í
loftið: www.virkjun.net. Starfið í
Virkjun er háð fjárframlögum
opinberra aðila og einkaaðila og
er þeim þakkað af heilum hug.
Bráðlega verður farið af stað með
fjár- og efnisöflun fyrir starfsárið
2013. Sigríður vonast til að Virkjun
muni eftir sem áður njóta velvildar
allra þeirra sem stutt hafa við bakið
á Virkjun og þeim sem nýta sér það
sem hún hefur upp á að bjóða.
N
Mikil þörf á
virkniúrræðum
fyrir þá sem
eiga við atvinnu-
leysi að stríða.
Fré
ttir
Í sumar hefur Hagtak hf. unnið við dýpkun og breikkun innri
rennu í innsiglingunni í Grinda-
víkurhöfn. Að sögn Sigurðar A.
Kristmundssonar hafnarstjóra
hefur dýpkunin gengið sam-
kvæmt áætlun og er áætlað að
framkvæmdunum og frágangi
ljúki á næstunni. Skip verða sífellt
stærri og til þess að missa þau
ekki frá bænum er þessi dýpkun
nauðsynleg. Vefur Grindavíkur-
bæjar greinir frá þessu.
Þrír aðilar buðu í verkið og átti
Hagtak lægsta tilboðið eða 122
milljónir króna. Kostnaðaráætlun
var upp á 132 milljónir. Björgun
bauð 198 milljónir og Ístak 154.
Dýpka átti í 7,5 metra dýpi og
breikka innsiglinguna. Ákveðið var
í samráði við verktaka að dýpka í
7 metra í stað 7,5 metra. Við það
sparaðist um 1.800m3 sem verða
grafnir upp innan hafnar í staðinn,
á svokölluðu snúningssvæði.
Botn hafnarinnar er á klöpp að
mestum hluta og var ekki unnt
að grafa upp efnið sem fjarlægja
þarf án þess að sundra því fyrst. Til
þess voru notaðar kerfisbundnar
sprengingar og notað um eitt tonn
í hverja sprengingu. Þessar spreng-
ingar geta verið óþægilegar fyrir
bæjarbúa en þær gengu vel og ekki
hafa borist kvartanir vegna þeirra.
„Hafnarvigtin er næst sprengi-
svæðinu og við urðum lítið varir
við sprengingarnar, það hreyfist
ekkert á borðum hjá okkur og ég
hef ekki haft fregnir af skemmdum
," sagði Sigurður jafnframt.
Eftir þessar dýpkunarframkvæmdir
verður höfnin enn öruggari en
áður.
„Við erum jafnframt að undirbúa
að ramma betur inn þau svæði sem
skipin geta siglt um innan hafnar-
innar, með baujum og öðrum
merkingum í því skyni að auka
öryggið enn frekar," sagði Sigurður
að lokum.
Dýpkun gekk vel í Grindavík
Jarðboranir
bora tvær til
þrjár holur á
Reykjanesi
Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf., og Ágúst Torfi Hauksson,
forstjóri Jarðborana, undirrituðu
í síðustu viku samning um borun
á tveimur holum á Reykjanesi með
möguleika á borun þeirrar þriðju,
ásamt viðgerð á einni holu.
Samningurinn var gerður að undan-
genginni verðkönnun á verkefninu
hjá Jarðborunum hf. og Borfélagi
Íslands en tilboð beggja aðila voru
mjög hagstæð fyrir HS Orku hf.
Borun á þessum holum er til að
tryggja núverandi rekstur orkuvers-
ins með nauðsynlegu varaafli og um
leið til að leggja drög að orkuöflun
fyrir stækkun orkuversins.
Jarðboranir munu flytja til lands-
ins frá Danmörku Bentec bor sinn
sem er stærsti bor sem hér hefur
borað með 350 tonna lyftigetu.
Borinn er að því leyti sérstakur að
hann verður knúinn með raforku
frá orkuverinu í stað hefðbund-
inna díselvéla. Borinn mun koma
til landsins eftir u.þ.b. mánuð en
reiknað er með að borverkið hefj-
ist um miðjan nóvember, segir á
heimasíðu HS Orku.
Tvímenntu á
rafmagnsvespu
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í síðustu viku tvo
unga pilta sem tvímenntu á raf-
magnsvespu. Þeir sögðust ekki
hafa vitað að bannað væri að
vera með farþega á slíku farar-
tæki. Ætlaði annar þeirra fót-
gangandi heim, en hinn að aka
hjólinu. Haft var samband við
foreldra drengjanna og þeim
sagt frá atvikinu.
Nokkuð hefur verið um að af-
skipti hafi verið höfð af ung-
lingum að undanförnu, sem hafa
verið að reiða félaga sína á raf-
magnsvespum. Lögregla hvetur
forráðamenn barna og unglinga
að brýna fyrir þeim að slíkt sé
óheimilt. Auk þess skal öryggis-
búnaður vera í lagi.
Viðtal