Víkurfréttir - 04.10.2012, Side 15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 4. október 2012 15
Styrktarbrunch til heiðurs og styrktar Íþróttsambandi fatl-
aðra sem haldinn var laugardag-
inn 29. september í Bláa lóninu
var afar vel heppnaður. Fjöldi
gesta lagði leið sína í Bláa lónið
til að heiðra íþróttafólkið sem
náði einstaklega góðum árangri á
Ólympíumóti fatlaðra í London.
Gestir nutu góðra veitinga og
söngkonan Bríet Sunna kom
fram.
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður
stjórnar Íþróttasambands fatlaðra,
sagði við þetta tækifæri að það
væri ánægjulegt og hvetjandi fyrir
sambandið og íþróttafólkið að sjá
hversu margir hefðu lagt leið sína
í Bláa lónið. „Samstarf við þekkt
vörumerki eins og Blue Lagoon er
einnig mikilvægt fyrir okkur þar
sem það vekur athygli á Íþrótta-
sambandi fatlaðra.“
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa
lónsins, sagði við þetta tækifæri:
„Við hjá Bláa lóninu erum mjög
stolt af því að vera samstarfsaðili
Íþróttasambands fatlaðra. En Bláa
lónið og Íþróttasamband fatlaðra
hafa gert með sér samstarfssamn-
ing sem gildir fram yfir Ólympíu-
mótið í Ríó, 2016.
Þetta unga íþrótta- og afreksfólk er
jafnframt mikilvægar fyrirmyndir
fyrir okkur öll, hvert og eitt þeirra
náði einstökum árangri í sinni
grein. Öll settu þau Íslandsmet og
Jón Margeir kom heim með gull-
verðlaun auk þess að setja heims-
met,“ sagði Grímur.
Það var mikill kvennafans í Reykjanesbæ um helgina
þegar 36. landsþing Kvenfélaga-
sambands Íslands fór fram.
Þingið var haldið í Kirkjulundi
við Keflavíkurkirkju en um 200
konur alls staðar af landinu voru
viðstaddar þingið.
Þegar blaðamaður Víkurfrétta
leit inn var sálfræðingurinn Jó-
hann Ingi Gunnarsson að halda
skemmtilegan fyrirlestur sem féll
vel í kramið hjá viðstöddum. Með-
fylgjandi myndir voru teknar við
það tækifæri.
MANNLÍFIÐPÓSTKASSINN
Fjölmenni á Blue
Lagoon brunch
til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra
Gaman hjá kvenfélaGs-
konum um helGina
n 36. landsþing Kvenfélagasambands Íslands:
Af hverju?
Af hverju þurfa sveitarstjórnar-mál að leita í þann farveg
sem þingið hefur
því miður farið í
á undaförnum
árum? Hlaðið
óvildarorðum í
garð persóna í
stað efnislegrar
umræðu?
Mér þykir auð-
vitað leitt að maður sem ég sit
með í bæjarráði vikulega og hitti á
fjölmörgum fundum og ég á ágæt
samskipti við á þeim fundum, skuli
svo beita persónuníði í blaðagrein
þegar rökin brestur. Hann les eina
grein eftir mig í VF, þar sem ég leið-
rétti rangar fullyrðingar um að ég
hafi sagt bæinn „skuldlausan“ og
annað viðtal í Reykjanesi, þar sem
ég svara mörgum áleitnum spurn-
ingum, deili á málefni, en ræðst
ekki að persónum, skýri málin af
bestu samvisku. Hann segir grein-
arnar uppfullar af „sjálfshóli, af-
neitunum og sýndarmennsku“. Ég
ætla ekki að svara með því að gefa
þessum manni einkunn í sama stíl.
Eigum við ekki öll að temja okkur
að tala af virðingu um einstaklinga
en geta greint málefni í þaula og
deilt hart um þau ef svo ber undir?
Við getum öll misstigið okkur
á þeirri leið en ef viljinn er fyrir
hendi, ætti okkur að takast það.
Árni Sigfússon
bæjarstjóri