Víkurfréttir - 04.10.2012, Page 23
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 4. október 2012 23
einn erlendan leikmann inni
á vellinum í einu í vetur.
Keflavík kvenna:
Komnar: Bryndís Guðmunds-
dóttir (KR), Jessica Jenkins (USA),
María Ben Jónsdóttir (Byrjuð aftur),
Ingunn Embla Kristínardóttir
(Danmörk).
Farnar: Ingibjörg Jakobsdóttir
(Danmörk), Helga Rut Hallgríms-
dóttir (Grindavík), Lovísa Falsdóttir
(USA), Jaleesa Butler (Puerto Rico),
Eboni Mangum (Urugay), Marín
Rós Karlsdóttir (Hætt).
Lárus Magnússon er
aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga:
Tökum ekki
mark á þessum
spám
„Þetta er kannski
eðlileg spá miðað við
þær miklu breytingar
sem hafa orðið á
kvennadeildinni.
Við þurfum samt
bara að horfa á spár
síðustu ára en þá var
okkur spáð 5. og 6. sæti, við urðum
Íslandsmeistarar í fyrra og í 2. sæti
þar áður. Þannig að við tökum ekk-
ert mark á þessu og stefnum ótrauð
áfram að okkar markmiðum.“
Lárus og Lele Hardy taka við liði tvö-
faldra meistara sem hefur orðið fyrir
miklu mannfalli en Lárus telur ekki
vera neina sérstaka pressu á liðinu.
„Pressan á okkur er ekkert meiri en
á öðrum þjálfurum deildarinnar. Ég
held að okkar fólk geri sér grein fyrir
því að við erum með mikið breytt
lið, en við eigum haug af ungum
stelpum sem við erum hvergi bangin
við að nota.“ Lárus hrósar Lele í
hástert og segir mikinn feng fyrir
Njarðvík að halda henni. „Hún er
ekki bara frábær leikmaður heldur
er hún gríðarlegur karakter sem
smitar út frá sér.“ Varðandi mark-
mið liðsins þá segir Lárus að þau
séu að komast inn í úrslitakeppni.
Njarðvík kvenna:
Komnar: Heiða B. Valdimarsdóttir
(Grindavík), Karolina Chudzik
(Yngri flokkar), Guðlaug Björt
Júlíusdóttir (Yngri flokkar), Guð-
björg Ósk Einarsdóttir (Yngri
flokkar), Eygló Alexandersdóttir
(Yngri flokkar).
Farnar: Helga Rut Hallgrímsdóttir
(Grindavík), Petrúnella Skúladóttir
(Grindavík), Ólöf Helga Pálsdóttir
(Grindavík).
Einar Árni Jóhannsson þjálfari
Njarðvíkinga:
Njarðvíkingar
vilja gera betur
en í fyrra
Einar Árni Jóhanns-
son þjálfari Njarð-
víkinga er með ungt
lið í höndunum en
miðherjinn reyndi
Friðrik Erlendur
Stefánsson hefur
þó tekið skóna
frægu af hillunni og hyggst leika
með liðinu í vetur. „Friðrik mun
klárlega hjálpa okkur í baráttunni
en það hefur verið ágætis gangur á
honum eftir árs dvala,“ segir Einar
sem vill gera betur en í fyrra, þegar
Njarðvíkingar náðu 8. sætinu. „Við
horfum þannig inn í haustið að við
ætlum okkur að gera betur en í fyrra
en við reiknuðum svo sem með því
að vera á þessum slóðum í spánni.“
Einar á von á jafnri deild í vetur
og finnst persónulega mjög erfitt
að spá fyrir um útkomuna. „Ég
sé ekki fyrir mér að það verði
margir gefins leikir í vetur.“
Einar býst við að Njarðvíkingar
verði sterkari í teignum með komu
Friðriks en erlendir leikmenn
Njarðvíkinga koma einnig með vigt
í teiginn. Einar vonast jafnframt
eftir því að liðið bæti sig varnarlega.
„Þessir ungu leikmenn eru komnir
með aukna reynslu og við ætlumst
til þess að þeir bæti við sig snúningi
og stígi frekar upp. Okkur finnst rök-
rétt að taka skref fram á við í vetur,
ef það tekst þá erum við ánægðir.“
Njarðvík karla:
Komnir: Ágúst Orrason (Breiða-
blik), Kristján Rúnar Sigurðsson
(Augnablik), Magnús Már Trausta-
son (Yngri flokkar), Brynjar Þór
Guðnason (Yngri flokkar), Marcus
Van (Írland), Jeron Belin (Malta),
Friðrik Erlendur Stefánsson (Byrj-
aður aftur).
Farnir: Rúnar Ingi Erlingsson
(Valur), Sigurður Dagur Sturluson
(Stjarnan), Styrmir Gauti Fjeldsted
(Hættur), Jens Valgeir Óskars-
son (Grindavík), Páll Kristinsson
(Hættur), Travis Holmes (Ísrael),
Cameron Echols (USA).
Bragi Magnússon þjálfari
kvennaliðs Grindavíkur:
Verður áhuga-
vert tímabil
„Það hefði mátt
ganga aðeins betur
á undirbúnings-
tímabilinu,“ sagði
Bragi Magnússon
nýráðinn þjálfari
kvennaliðs Grind-
víkinga í samtali við
vefsíðuna Karfan.is. „Ég hef ekki
haft eins mikinn tíma með liðið
eins og ég almennt myndi vilja og
því mun undirbúningstímabilið
ná aðeins inn í mót hjá okkur.
Tímabilið leggst vel í Braga og telur
hann að veturinn komi til með að
verða skemmtilegur. „Öll liðin í
deildinni standa frammi fyrir öðru-
vísi ákvörðunum og vandamálum
en í fyrra og breyttar reglur þýða að
þetta er ekki bara tækifæri fyrir leik-
menn heldur líka fyrir liðin að upp-
skera eins og þau hafa sáð síðustu ár
í yngri flokkum. Ég tel að komandi
tímabil verði mjög áhugavert.“
Grindavík kvenna:
Komnar: Harpa Rakel Hallgríms-
dóttir (Keflavík), Helga Rut Hall-
grímsdóttir (Njarðvík), Petrúnella
Skúladóttir (Njarðvík), Ólöf Helga
Pálsdóttir (Njarðvík).
Farnar: Heiða B. Valdimarsdóttir
(Njarðvík), Lilja Ósk Sigmarsdóttir
(Valur), Sandra Ýr Grétarsdóttir
(Hætt).
SPORTIÐ
Kraftvélar bjóða upp á heildarlausn í
lyfturum, allt frá vöruhúsatækjum til
stærri dísel- og rafmagnslyftara.
Vertu í sambandi við sölumenn Kraftvéla og fáðu
tilboð í tæki sem hentar þínum rekstri.
D a l v e g i 6 - 8 • 2 0 1 K ó p a v o g u r • 5 3 5 3 5 0 0 • w w w. k r a f t v e l a r. i s
Sverrir Þór Sverrisson þjálfari
karlaliðs Grindvíkinga:
Ætla í baráttu
um titla
„Þetta er nýtt verk-
efni og skemmtilegt.
Ég er bara spenntur
yfir því að mótið sé
að fara af stað. Við
erum vel undir-
búnir og erum
klárir í hörkumót,“
segir Sverrir sem yfirgaf Íslands-
meistara Njarðvíkur í kvennaflokki
til þess að taka að sér starfið
hjá Íslandsmeisturum karla.
„Ég vinn eftir minni línu en það
verða kannski einhverjar áherslu-
breytingar, en við erum að slípast
saman. Það tekur þó tíma en von-
andi verður þetta að smella þegar
tímabilið fer í gang,“ segir Sverrir
sem býst við að deildarkeppnin verði
spennandi og hann telur að deildin
verði skemmtileg í ár. Grindvíkingar
ætla sér að vera í toppbaráttu en þeir
eiga titil að verja frá því í vor. „Við
teljum okkur vera með lið til þess að
keppa um titla og það ætlum við að
sjálfsögðu að gera,“ segir Sverrir.
Komnir: Jens Valgeir Óskarsson
(Njarðvík), Egill Birgisson (Njarð-
vík), Jón Ágúst Eyjólfsson (Valur),
David Ingi Bustion (Geneva),
Sammy Zeglinski (USA), Aaron
Brussard (USA).
Farnir: Páll Axel Vilbergsson
(Skallagrímur), Þorsteinn Finn-
bogason (Haukar), Giordan Watson
(Finnland), J´Nathan Bullock (Finn-
land), Ryan Pettinella (USA).
Sigurður Ingimundarson
þjálfari karlaliðs Keflavíkur:
Sigurður
með bæði lið
Keflvíkinga
Sigurður Ingi-
mundarson stýrir
bæði karla- og
kvennaliðum
Keflvíkinga þetta
árið. Ekki hefur
hann verið við
stjórn beggja liða
í einu áður en hann segir verk-
efnið vissulega krefjandi. „Það fer
mikill tími í þetta en það er ekkert
vandamál ef maður skipuleggur
sig. Þetta verður bara skemmtilegt,“
segir Sigurður. En er spáin marktæk
að hans mati? „Fólki finnst þetta
skemmtilegt en þegar mótið byrjar
þá eru menn svo sem ekkert að pæla
mikið í þessu.“ Sigurður telur að
undirbúningstímabilið hafi verið
frekar sérstakt þar sem leikmenn
hafi verið að koma seint inn og
karlalið Keflvíkinga ekki enn full-
skipað því enn er einn erlendur
leikmaður ókominn til landsins.
Keflavík karla:
Komnir: Kevin Glitner (USA),
Darrel Lewis (Grikkland), Michael
Craion (USA), Snorri Hrafnkelsson
(Breiðablik), Aron Ingi Albertsson
(Yngri flokkar), Aron Freyr Krist-
jánsson (Yngri flokkar) Hilmir Gauti
Guðjónsson (Yngri flokkar).
Farnir: Jarryd Cole (Frakkland),
Charles Parker (USA), Halldór Hall-
dórsson (Hættur), Arnar Freyr Jóns-
son (Danmörk), Guðmundur Gunn-
arsson (Hættur), Gunnar Stefánsson
(Hættur).
Spáin kom
Sigurði á óvart
Keflavíkurstúlkum er spáð efsta sæti
deildarinnar en það kom Sigurði
þjálfara nokkuð á óvart. „Það kom
töluvert á óvart þar sem það eru
meira og minna bara stelpur í
stúlknaflokki að spila, en þær eru
góðar þannig að kannski er þetta
bara málið,“ sagði Sigurður en Pálína
Gunnlaugsdóttir sér Keflvíkinga
í toppbaráttu og segir hún það
sannarlega markmið liðsins. „Við
höfum stefnt á alla
titla sem í boði eru
hingað til, þannig
hefur það verið síðan
ég man eftir mér,“
segir Pálína. Þrátt
fyrir að nokkrar
ungar stelpur hafi
komið sterkar til leiks í fyrra hjá
Keflavík þá telur Pálína að fleiri séu
tilbúnar að stíga fram og kveðst
hún afar spennt fyrir því að sjá hvað
búi í þessum ungu leikmönnum.
Hún telur að ungir íslenskir leik-
menn og íslenska deildin eigi eftir
að njóta góðs af nýjum reglum
þess eðlis að einungis megi hafa
KaRFaN aF sTað
Körfuboltavertíðin hófst formlega í gær þegar Dominos-deild kvenna fór af stað með heilli umferð. Ekki lágu úrslit fyrir þegar blaðið fór
í prentun en öll Suðurnesjaliðin léku á útivelli í gær. Íslands- og bikar-
meistarar Njarðvíkur heimsóttu Fjölnisstúlkur, Keflvíkingar léku gegn
Haukum í Hafnarfirði og nýliðar Grindvíkinga hófu leik gegn KR-ingum.
Kunngerðar voru spár sérfræðinga í vikunni en þar var Keflvíkingum
spáð efsta sæti deildarinnar. Njarðvíkingum var spáð 5.-6. sæti og Grind-
víkingum 7. og næst síðasta sæti.
Dominos-deild karla hefst nk. sunnudag en Suðurnesjaliðin hefja leik mánu-
daginn 8. október. Stórleikur umferðarinnar fer fram við Sunnubraut en þá
taka bikarmeistarar Keflvíkinga á móti Íslandsmeisturunum úr Grindavík.
Njarðvíkingar fara á erfiðan útivöll og mæta Þórsurum í Þorlákshöfn. Í
spám sérfræðinga komu Suðurnesjaliðin ágætlega út en þau eiga samkvæmt
henni öll sæti í úrslitakeppni. Grindvíkingum er spáð 3. sætinu. Keflvíkingar
munu lenda í 6. sæti samkvæmt spánni og grannar þeirra í Njarðvík verma
8. sætið.
Hér að neðan eru stutt viðtöl við þjálfara og leikmenn Suðurnesjaliðanna en
einnig er farið yfir mannabreytingar á liðunum.
Sjáið einnig
videoviðtöl á vf.is
J Magnús Gunnarsson, Þorleifur Ólafsson, Kristján Rúnar Sigurðsson, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir,
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir.