Víkurfréttir - 04.10.2012, Qupperneq 24
Heiðursborgari
heiðraður á
tímamótum
Laugardaginn 6. október nk. mun Grindavíkurbær halda
samkomu til heiðurs
Guðbergi Bergssyni
rithöfundi og heið-
ursborgara Grinda-
víkur sem fagnar
áttræðisafmæli sínu
um þessar mundir.
Undirrituð verður viljayfirlýsing
á milli Grindavíkurbæjar og Guð-
bergs um opnun Guðbergsstofu,
sem verður sýning um líf og feril
höfundarins. Guðbergsstofa
verður staðsett í Kvikunni, auð-
linda- og menningarhúsi Grinda-
víkur, og er fyrirhuguð opnun í
mars 2013 í tengslum við menn-
ingarviku Grindvíkinga. Jafn-
framt verður verkum Guðbergs
gerð góð skil í nýju bókasafni
Grindavíkurbæjar sem opnar í
ársbyrjun 2014.
Á laugardaginn mun Guðbergur
lesa upp óútgefna stuttsögu og jafn-
framt mun Hinrik Bergsson, bróðir
Guðbergs, segja frá uppvaxtarárum
þeirra bræðra í Grindavík.
Dagskráin hefst klukkan 14:00 í
Kvikunni, auðlinda- og menningar-
húsi Grindavíkur að Hafnargötu
12a í Grindavík. Allir hjartanlega
velkomnir.
vf.is
Fimmtudagurinn 4. október 2012 • 39. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
Meira í leiðinni
GERÐU BÍLINN KLÁRAN
FYRIR VETURINN
FYRSTA FLOKKS VETRARDEKK Á FRÁBÆRU VERÐI OG FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA
WWW.DEKK.IS
Á DEKKJAHÓTELI N1
BÝÐST ÞÉR AÐ
GEYMA DEKKIN
GEGN VÆGUGJALDI
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1
REYKJANESBÆ | GRÆNÁSBRAUT
SÍMI 440 1372
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
Maður Með MönnuM
Hann var karrýgulur og bogadreginn. Hafði safnað fyrir honum undanfarin sumur, ýmist
í vinnu hjá Jóa Gauk í saltfiski
og skreið eða á golfvellinum í
Leiru, undir styrkri stjórn Harðar
rakara. Lagði aurana samvisku-
samlega inn í Sparisjóðinn hjá
Palla, Gústu og Tomma að beiðni
foreldranna. Fékk augastað á
gripnum nokkrum mánuðum
fyrir bílprófið. Maggi Þorgeirs
bauð mér hann á kostakjörum.
Ekki hægt annað en að ganga að kaupunum. Það var
fiðringur í maganum að kaupa fyrsta bílinn. Ítalskur
Fiat 127. Draumabílinn minn. Engu síðri en ferkant-
aða Ladan, sem var vinsæl hjá öðrum. Það var erfitt
að vera desemberbarn þegar kom að þessum áfanga í
lífinu. Þar að auki í miðjum prófum. Stærðfræðipróf
hjá Gísla Sigurkarls og bílpróf á sama degi reyndi á
þolrifin. Manni kallinn hafði blessunarlega kennt
mér vel í umferðinni. Stimplaði mig inn með stæl.
Það var yndislegt að aka niður Hafnargötuna. Leið eins og kóngi í ríki mínu. Hafði reyndar stolist
einu sinni til þess að taka í hann áður en ég fékk
prófið. Bara stuttan rúnt á milli húsa til þess að fá til-
finninguna fyrir honum. Kúplingin og gírarnir eins
og hugur manns. Rúðuþurrkurnar flunkunýjar og
útvarpið náði Kananum. Pústið svo gott sem nýtt og
ekki riðbóla sjáanleg. Stífbónaður og strokinn, nánast
eins og Eyfi pjakkur hefði komist í hann. Tryggður í
bak og fyrir hjá Gulla í Brunabót. „Svona gullmoli
verður að fara í kaskó, annað ekki í stöðunni,“ sagði
hann ábyggilegur og brúnaþungur á svipinn. Ég leit
út um gluggann á skrifstofunni og var hjartanlega
sammála honum. Jón í Eftirlitinu skoðaði hann líka
gaumgæfilega. Taldi að ég hefði fengið úrvalsbíl. „Þú
færð hvítan miða í rúðuna, drengurinn minn. Kíktu
samt til hans Bjarna á Aðalstöðinni, sjáðu hvort hann
eigi ekki betri skó undir hann.“
Ég ók varfærnislega áleiðis í slyddu og krapa. Framhjóladrifið virkaði vel við svona aðstæður.
„Áttu þrettán tommu vetrardekk undir hann?“
spurði ég borubrattur en auralítill. „Mega alveg vera
lítið notuð, ef þú átt.“ Í húsinu gegnt okkur sátu
leigubílstjórarnir á Stöðinni og spiluðu á spil. Ekkert
að gera. Lilli tengdó leit upp frá spilaborðinu og sá
skólapiltinn harka á dekkjaverkstæðinu. „Láttu hann
hafa ný dekk, ég hjálpa honum með mismuninn.“
Þetta var allt annað. Virkaði aðeins hærri og nú
kæmist ég allt. Ég var orðinn maður með mönnum.
Skrúfaði niður hliðarrúðuna og teygði olnbogann út
í hríðina.
Vildi pen-
ingana strax
Lögreglan á Suðurnesjum var fyrir síðustu helgi kvödd á
veitingastað í umdæminu, þar sem
maður var sagður láta ófriðlega.
Þegar lögreglumenn komu á vett-
vang var þar fyrir erlendur ferða-
maður, ekki sáttur. Hann hafði
smellt sér í spilakassa á staðnum
og unnið 65 þúsund krónur.
Þar sem vinningar hærri en 50
þúsund krónur eru ekki greiddir
út á viðkomandi spilastað heldur
hjá Happdrætti Háskóla Íslands
fékk maðurinn aðeins vinnings-
kvittun í hendur. Með það fyrir-
komulag var hann afar óánægður
og vildi peningana strax. Lögregla
tjáði honum að hann fengi vinn-
inginn greiddan næsta dag, svo sem
reglur HHÍ mæla fyrir um. Við það
róaðist hann og hélt sína leið.
FRÉTTAVAKT VÍKURFRÉTTA Í SÍMA 898 2222
vaktsími allan sÓlarHringinn