Neytendablaðið - 01.09.2007, Qupperneq 15
gleyma fasteignagjöldunum og blessuðum
hússjóðnum.
Er eignaskatturinn enn við lýði?
Fasteignagjöld eru nokkuð sem margir
gleyma að taka með í reikninginn þegar
gerð er fjárhagsáætlun vegna kaupa á
fasteign. Getur þó verið um talsverðar
upphæðir að ræða. Vegna 190 fermetra
raðhúss með bílskýli í Breiðholtinu (fast-
eignamat 33 milljónir) þarf t.a.m. að greiða
163 þúsund krónur á ári. Ef skoðuð er
íbúð í Reykjavík sem er að fasteignamati
23,5 milljónir eru fasteignagjöldin um 113
þúsund krónur á ári. Eigandi 140 fermetra
húss með bílskúr í Hveragerði, húss sem
er einnig 23,5 milljóna virði samkvæmt
fasteignamati þarf svo að greiða litlar 210
þúsund krónur á ári fyrir herlegheitin.
Sé síðan farið yfir í Kópavog kemur
í ljós að þar þarf að greiða 125 þúsund
krónur á ári vegna 105 fermetra íbúðar
með bílskúr. Stærsti hluti þessarar tölu er
tilkominn vegna fasteignaskatts en hann
er reiknaður sem hlutfall af fasteignamati.
Fasteignamat hefur svo hækkað gríðarlega
á síðustu árum og fasteignagjöldin fylgja
með í þeirri hækkun. Holræsagjöld og
lóðarleiga hækka svo líka í hlutfalli við
fasteignamat og því hefur hækkun fast-
eignaverðs víðtækari áhrif en bara á láns-
upphæð og lántökugjöld.
Hússjóður
Þeir sem búa í einbýli losna vitaskuld
við að greiða í hússjóð en á móti kemur
að þeir þurfa sjálfir að standa straum af
öllu viðhaldi og endurbótum á eign sinni.
Það getur verið ansi stór biti ef þakið
byrjar að leka eða skólpið fer. Þá þarf að
halda garðinum við og skvetta svolítilli
málningu á húsið öðru hverju.
Þeir sem búa í fjöleignarhúsum þurfa
hins vegar iðulega að greiða í hússjóð.
Gjaldið er mjög misjafnt eftir umfangi
sameignarinnar, en ef um mikla sameign
er að ræða og ef til vill hlutdeild í bílskýli
getur mánaðarlegt gjald farið vel yfir
10 þúsund krónur. Þá er ótalin söfnun í
framkvæmdasjóð og lántaka vegna meiri
háttar framkvæmda.
Að ógleymdum öðrum kostnaði...
Er þá enn ótalinn kostnaður vegna
rafmagns og hita sem ætla má að sé allt
að tíu þúsund krónur á mánuði í mörgum
tilvikum. Enn fremur er ekki tekið tillit til
símakostnaðar og afnotagjalds RÚV en
þessa þætti má þó telja sjálfsagða í rekstri
heimilis í dag. Að reka látlaust heimili
án alls íburðar í Reykjavík kostar því
væntanlega um 150 þúsund á mánuði og
er þá ótalinn kostnaður við mat, fatnað,
rekstur bifreiðar, tómstundir, ferðalög og
læknis- og lyfjakostnað. Skyldi því engan
undra að nauðungarsölum í Reykjavík
fyrstu sex mánuði ársins fjölgaði um
113% miðað við sama tíma í fyrra. Það
er í raun kraftaverki líkast að hinum al-
menna launamanni takist yfirleitt að eign-
ast og reka fasteign!
– kaup og sala
Dæmi um íbúð í fjölbýli
Ef við skoðum dæmi um fólk sem kaupir
sér íbúð í fjölbýli í Reykjavík á 25 milljónir
(fasteignamat 23,5) og tekur tuttugu milljón
króna lán gæti dæmið litið svona út þegar
allar greiðslur vegna íbúðarinnar eru taldar.
Hér er þó sleppt stimpil- og lántökukostnaði
að upphæð 600 þúsund krónur.
Mánaðarleg afborgun* 100.000
Fasteignagjöld
(meðalgreiðsla á mánuði yfir árið) 9.500
Mánaðarleg iðgjöld vegna
brunatryggingar 1.500
Hússjóður (með bílskýli) 10.000
Mánaðarlegur kostnaður
samtals 121.000
*m.v. samsett lán til 40 ára frá ÍLS (2 millljónir frá
Sparisjóði og 18 frá ÍLS), án uppgreiðslugjalds. Miðað
er við að verðbólga sé engin þessi 40 ár, sem verður
að teljast þó nokkur bjartsýni. Miðað er við vaxtatölur
frá 16.08.2007.
1 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2007