Neytendablaðið - 01.11.2009, Page 14
Evrópsk neytendasamtök ákváðu að kanna hvort staðhæfingar
seljenda eigi við rök að styðjast og könnuðu 17 tegundir af hrukku-
augnkremi sem seldar eru í Evrópu. Hrukkukremin, auk einnar
tegundar af venjulegu rakakremi, voru prófaðar á 110 konum á
aldrinum 35 til 65 ára. Niðurstaðan var sú að ekkert krem kom mjög
vel út, þ.e. minnkaði hrukkur svo einhverju næmi, og munurinn
á þeim kremum sem höfðu mest áhrif og þeim sem höfðu minnst
áhrif var frekar lítill.
Verð og gæði fara ekki saman
Kremin eru misjafnlega dýr og athygli vekur að það virðist ekkert
samhengi á milli verðs og gæða. Reyndar kom venjulegt rakakrem
næstum því jafn vel út og fjögur bestu kremin.
Árangur yfir meðallagi:
Nivea Visage Anti-Wrinkle Q10 Plus fékk bestu einkunn bæði
hjá sérfræðingum og notendum. Sérfræðingar töldu að hrukkurnar
hefðu styst og grynnst og konunum fannst þægilegt að nota
kremið. Um helmingur kvennanna taldi sig sjá mun og níu af ellefu
konum töldu að baugar hefðu minnkað og átta sögðust myndu
nota kremið aftur. Kremið inniheldur ekki ilmefni eða paraben en í
því er hins vegar DMDM Hydantoin sem er rotvarnarefni sem getur
valdið ofnæmisviðbrögðum. Kremið er með þeim ódýrari í þessari
könnun.
L´Oréal Paris Dermo-Expertise Revitalift Double Lifting Eye
Cream fékk einnig ágætis einkunn en helmingur notenda taldi að
hrukkurnar hefðu minnkað. Kremið þótti þægilegt í notkun og hafði
kælandi áhrif á húðina.
Tvær aðrar tegundir komu einnig vel út; Olay - total effects eye og
Dr. Brandt - Lineless Eye Cream.
Árangur í meðallagi:
Clinique repairwear þótti þægilegt í notkun og smaug fljótt og vel
inn í húðina.
Virka hrukkukrem?
Margir eru tilbúnir að leggja mikið á sig til
að halda hrukkunum í skefjum. Þetta vita
snyrtivöruframleiðendur og sjá til þess að
framboðið af hrukkukremum sé nægt.
Hvernig voru kremin prófuð?
Allar konurnar prufuðu tvær tegundir af kremi sem þær notuðu
hvora á sinn andlitshelming. Hvert krem var prufað á 9 til 11
konum sem notuðu kremið bæði kvölds og morgna í sex vikur.
Niðurstaða könnunarinnar byggir bæði á reynslu kvennanna
og áliti sérfræðinga sem skoðuðu myndir af hrukkunum fyrir
og eftir reynslutímann. Hvorki notendur né sérfræðingar vissu
hvaða krem voru notuð hverju sinni.
1 NEYTENDABLA‹I‹ 4. TBL. 2009