Neytendablaðið - 01.11.2009, Page 17
Það eru ekki einungis íslenskir neytendur sem klóra sér í
kollinum við lestur orkureikninga. Nefnd á vegum Evrópu-
ráðsins, sem hefur það markmið að bæta réttindi neytenda á
orkumarkaði, hefur lagt fram tillögur sem miða að því að gera
orkureikningana einfaldari og auðlæsilegri fyrir neytendur.
BEUC, evrópusamtök neytenda, hafa bent á að fátt sé flóknara
þegar kemur að orkumálum en sjálfir reikningarnir. Villur
leynist víða og neytendur eigi mjög erfitt með að skilja reikn-
ingana.
Monique Goyens, framkvæmdastjóri BEUC, segir að skiljan-
legir orkureikningar skipti sköpum á markaði þar sem
samkeppni ríkir. Bætt verklag við gerð reikninga sé
því mjög mikilvægt því neytendur verði að geta borið
saman verð hjá seljendum. Goyens segir ennfremur að
ef orkuiðnaðurinn bregðist ekki við þessum tilmælum
muni BEUC fara fram á að þau verði lögfest.
Orkureikningar
eiga að vera skiljanlegir
Eins og fram kemur í fréttinni um snjallmæla ætla bresk stjórn-
völd að nota snjallmæla sem veita ekki aðrar upplýsingar en
álestrartöluna. En krafan er sú að snjallmælar gefi neytendum fleiri
upplýsingar til að gera þeim kleift að bregðast við jafnóðum og
notkunin breytist eða vilji þeir spara rafmagn.
Vilji neytendur taka málin í sínar hendur, og ná þar með forskoti
í orkusparnaði, eru fáanlegar nokkrar tegundir orkuskjáa (energy
monitor). Orkuskjár er samsettur
af skjá, boðsendi og skynjara.
Skynjarinn er klemmdur um kapalinn
frá álestrarmælinum og hann nemur
strauminn (amps). Skjárinn reiknar
úr rauntímanotkun í vöttum, kostnað
í peningum og losun koltvísýrings
(CO2), og ber saman notkun milli tímabila. Flestir skjáir eru
þráðlausir og hægt að nota þá um allt hús.
Gæðakönnun
Which? kannaði sjö orkuskjái og var einkum litið til þess hversu
nákvæmir og notendavænir þeir væru. Þrír þeirra stóðu upp úr, þ.e.
Owl CM119, Eco-eye Elite og Owl CM130 Micro. Þeir kosta 25-40
pund (5.000 – 8.400 kr.). Niðurstaðan var sú að þeir eru vel nothæfir
þó þeir séu ekki eins nákvæmir og fjölhæfir og ef þeir læsu beint af
snjallmælum. Það verður krafan fyrir næstu kynslóð mælitækja.
Orkuskjáir eru fáanlegir á netinu, sjá: www.electricity-monitor.com
og www.energymonitors-direct.co.uk
Snjall leikur
til að fylgjast með orkunotkuninni
1 NEYTENDABLA‹I‹ 4. TBL. 2009