Neytendablaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 15
aldursflokkana miðlungs- eða lága einkunn.
Ef keyrt er inn í hlið bílsins og höfuðpúðarnir
sitja ekki rétt eða eru illa bólstraðir getur
barnið fengið áverka á höfuð, það slengst á
rúðu svo hún brotnar og í versta falli getur
barnið höfuðkúpubrotnað. Öryggi í stól við
hliðarákeyrslur er því atriði sem kaupendur
barnabílstóla ættu að kynna sér fyrst af
öllu.
Isofix
Barnabílstól er smellt á einfaldan hátt í
bíl með Isofix-búnaði. Hann tengist sjálfri
bílgrindinni og er auðveldari í notkun
en ólar og belti. Í nýjum bílum er Isofix-
búnaður en akirðu á eldri bíl þarftu að
láta athuga hvort hægt er að nota Isofix-
stóla í honum. Einnig er hægt að sjá í
leiðbeiningabókinni sem fylgir bílstólnum í
hvaða bílgerðir hann passar.
Eindregið er mælt með því að fyrir börn
upp að 18 kg séu notaðir stólar sem tengjast
Isofix-búnaði þar sem þeir eru traustari
og einnig einfaldari í meðförum. Engu að
síður getur líka verið hætta á því að fólk
setji stólana skakkt á Isofix-standinn. Þessi
tækni á líka með tímanum að auðvelda það
að nota sama stól í mismunandi bílgerðum.
TÍU GÓÐ RÁÐ UM BARNABÍLSTÓLA
• Þegar þú kaupir eða leigir barnabílstól
skaltu mæta með bæði bílinn og barnið
til sölu- eða leiguaðilans. Ekki fara
úr búðinni fyrr en þú hefur fengið
leiðbeiningar um stólinn.
• Stóllinn á að passa við stærð barnsins.
Höfuð þess má ekki ná upp fyrir brúnir
hans.
• Sannreyndu að beltisólar í bílnum sé
hægt að strekkja svo að þær haldi vel að
barninu.
• Veldu ekki bílstóla sem eru ætlaðir
börnum bæði meðan þau eru lítil og
stór. Þeir eru of stórir fyrir smábörn og
henta ekki stálpuðum krökkum.
• Æskilegast er að barnið noti tvo eða
þrjá misstóra bílstóla eftir því sem það
stækkar þangað til það hefur náð 135
cm hæð.
• Öruggast er að nota eins lengi og unnt
er bakvísandi bílstól (sem snýr barninu
í öfuga átt við akstursstefnu). Það er
hægt að nota slíka stóla þar til barnið
vegur um 18 kg (um þriggja ára aldur).
Næstbesti kosturinn – þegar barnið
hefur vaxið upp úr smábarnastólnum
– er að nota góðan framvísandi stól
(andlit barnsins snýr í akstursstefnu).
• Ef þið viljið tala við barnið meðan á
akstri stendur er best að setja bílstólinn
í framsætið. Munið samt að bakvísandi
stól má aldrei setja við virkan loftpúða
(árekstursvörn).
• Notið Isofix-festingar í stóla fyrir 0-18
kg þung börn ef bíllinn gefur möguleika
á því. Það er bæði auðveldast og
öruggast.
• Ef bíll lendir í umferðaróhappi á að farga
öllum barnabílstólum sem í honum
voru.
• Ekki nota gamla, notaða barnabílstóla.
Ódýrari barnabílstólar í gegnum
tryggingafélögin
Öll tryggingafélögin bjóða sumum
viðskiptavinum sínum upp á ódýrari
barnabílstóla. Til þess þurfa þeir oftast
að vera með nokkrar tryggingar hjá
félögunum.
Sjóvá: Þeir sem eru í Stofni fá afslátt af
Britax-stólum hjá N1 og hjá Ólavíu og
Oliver.
Tryggingamiðstöðin: Viðskiptavinir geta
bæði leigt eða keypt Römer-stóla með
afslætti hjá BabySam.
VÍS: VÍS er með BeSafe-stóla sem félagið
bæði leigir út og selur. Allir geta skipt við
VÍS en þeir sem tryggja þar fá betri kjör en
aðrir.
Vörður: Hjá Verði fá þeir sem eru í grunni
afslátt á verði Ferrari-stóla hjá Ólavíu og
Oliver og Móðurást..
Þeim sem vilja nýta sér afsláttarkjör
tryggingafélaga er bent á að í öllum
tilvikum er hægt að fá nánari upplýsingar
á heimasíðum þeirra.
Barnabílstólar
Henta best smábörnum
Topp stóll f. 0-13 kg.
RECARO Young Profi Plus hlaut
háa heildargæðaeinkunn, 4,4 af 5,5
mögulegum, og fékkst á 17.900 kr.
í Fífu, sem er mjög gott verð. Hann
reyndist best allra stóla hvað varðar
öryggi við árekstra og högg. Kaupa
þarf Isofix-búnað sérstaklega, en
án hans fær stóllinn ekki jafn háa
einkunn.
Topp stóll f. 0-13 kg.
AKTA GRACO Logico S HP hlaut háa
heildargæðaeinkunn, 4,4 af 5,5 mögulegum
en er engu að síður einn af ódýrari stólunum,
fékkst á 18.500 kr. í Ólafíu og Oliver. Hann
snýr baki í akstursstefnu með þriggja punkta
læsingu. Kostir hans eru margir, auðvelt að
skilja leiðbeiningar og aðvaranir, hann veitir
mikið öryggi og er mjög auðveldur í notkun,
dregur mjög vel úr höggi að framan og á
hliðum, ólar fara rétt, höfuðstuðningur frábær,
litlir möguleikar á að setja hann skakkt í,
ólar festa stólinn vel við bílinn, auðvelt að
læsa, sætið er létt, veitir barninu mjög góðan
fótastuðning, bólstrun er góð, auðvelt að taka
áklæði af og þvo það. Í eldri bíl án Isofix-
búnaðar er þessi stóll sérlega hagstæður.
15 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2008