Neytendablaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 17
Neytendasamtökin fá fjölmargar kvartanir
vegna fatnaðar sem hefur hlaupið eða
skemmst í þvotti eða í hreinsun. Vegna
þessa er rétt að benda á það er ýmislegt
sem hafa ber í huga þegar föt eru þvegin,
þurrkuð eða hreinsuð.
Ágætt að hafa í huga:
• Þurrkið ekki hvít ullarföt úti í sól því þau
geta gulnað.
• Látið ullarföt ekki liggja í bleyti og vindið
þau gætilega, t.d. með því að leggja þau
á handklæði og rúlla þeim upp og kreista
varlega. Ekki er ráðlagt að hengja ullarföt
upp á snúru; best er að leggja þau flöt á
handklæði.
• Ef strik er undir balanum á þvottamerki
þýðir það að þvo verður með meiri
gætni en venjulega. Til dæmis. ætti að
þvo á styttra þvottakerfi (prógrammi) og
þeytivinda í stuttan tíma.
• Bali með kross yfir þýðir að ekki má þvo
flíkina
• Bómullarföt geta hlaupið en mismikið
þó. Sum bómullarföt má sjóða án þess
að nokkuð gerist á meðan sumar flíkur
geta minnkað um eina stærð við þvott
á 40°C. Ef um er að ræða nýja eða dýra
bómullarflík getur borgað sig að þvo
hana á 30°C.
Mikilvægt að þekkja þvottamerkin
Að gefnu tilefni er rétt að minna á
mikilvægi þvottaleiðbeininga sem eru á
öllum flíkum. Leiðbeiningastöð um ráðgjöf
heimilanna, sem kvenfélögin reka, lét
prenta spjald með góðum leiðbeiningum í
samvinnu við Hagkaup. Spjaldið kostar 300
krónur og má panta í síma 552 1135 eða
á leiðbeiningar@kvenfelag.is Tilvalið er að
setja spjaldið upp við þvottavélina.
Pallíettur þoldu ekki hreinsunina
Í einu máli sem Neytendasamtökunum
barst var um var að ræða jakka sem á
voru límdar pallíettur. Þegar jakkinn fór í
hreinsun bráðnuðu pallíetturnar og duttu af.
Jakkinn var þó merktur með P sem þýðir að
flíkin þolir ekki sterkara efni en perklór sem
er algengasta hreinsiefnið í efnalaugum.
Málið var sent fyrir úrskurðarnefnd
efnalauga og var niðurstaða nefndarinnar sú
að jakkinn væri í raun rangt merktur. Þrátt
fyrir að jakkann mætti hreinsa með perklór
þoldi límið sem hélt pallíettunum á sínum
stað ekki efnið og því duttu pallíetturnar af
og límið klíndist út í jakkann.
Setja 3 hreinsunarmerki
Svona gerum við
er við þvoum okkar þvott...
Algengt er að harðviður sé notaður í
garðhúsgögn enda þolir slíkur viður vel
raka og vætu. Því miður er oft gengið
á mikilvægt og dýrmætt skóglendi við
skógarhögg til að afla harðviðarins og
þá jafnvel í óþökk íbúa viðkomandi
svæðis. Til dæmis er tekkviður fluttur
út frá Burma í stórum stíl þrátt fyrir
að herstjórnin í landinu hagnist á
viðskiptunum og nokkurs konar
viðskiptabann eigi að ríkja á landið.
Ólöglegur viður er því oft notaður í
húsgögn án þess að neytendur, sem
margir hverjir kæra sig lítt um að
kaupa slíkan varning, hafi hugmynd
um það.
Til að svara kröfum neytenda hafa
óháð samtök, Forest Stewardship
Council, komið á fót vottun sem
húsgagnaframleiðendur geta sett á
vörur sínar ef viðurinn er unninn úr
nytjaskógi. Merkið er orðið þó nokkuð
útbreitt og húsgögn sem bera merkið
má finna í verslunum hér á landi. t.d. í
Rúmfatalagernum.
Vottuð
tekkhúsgögn
17 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2008