Víkurfréttir - 02.08.2012, Qupperneq 11
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 2. ÁGÚST 2012 11
Hlévangur
Eldhús
Viljum ráða matráð til starfa á hjúkrunarheimilinu Hlévangi sem fyrst í 70% starf.
Verksvið: matreiðsla, stjórnun og innkaup.
Laun skv. kjarasamningi Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis.
Upplýsingar gefur Sigurjón Gunnarsson í síma 421 5704 f.h.
eða í gsm 820 7494. Einnig Finnbogi Björnsson, frkv.stj. í síma 422 7422.
Dvalarheimili Aldraðra
Suðurnesjum D.S.
Hjúkrunarheimilið Garðvangur Garði / Hjúkrunarheimilið
Hlévangur Reykjanesbæ
Atvinna
Veitt verða verðlaun fyrir efstu 5 sætin og
nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins.
Dregið úr skorkortum í leikslok.
Vilhjálmsbikarinn 2012
Íslandsmót í Greensome
Þriðjudaginn 7. ágúst á Hólmsvelli í Leiru
Mæting kl. 15:00 - Ræst út af öllum teigum kl. 16:00
Leikið verður með Greensome fyrirkomulagi,
tveir saman í liði.
Skráning er hafin á www.golf.is
Verð kr. 4.000 á mann
Hundruð grindhvala voru í heimsókn undir Stapanum neðan við byggðina í Dalshverfi Í Innri Njarðvík á laugardaginn var
og vakti hópurinn mikla athygli bæði hjá Suðurnesjamönnum sem og landsmönnum öllum. Áætlað er að þarna hafi verið á
milli 2-300 hvalir en ekki liggur fyrir ástæða þess af hverju hvalirnir hafi verið svo nálægt landi. Sérkennileg hljóð berast frá
hvalavöðunni en fjölmargir lögðu leið sína til að berja hvalina augum en sýn sem þessi er sjaldgæf á þessum slóðum. Einnig
gerðu hvalirnir viðkomu í smábátahöfninni í Keflavík.
Það voru morgunskokkarar sem urðu hvalanna fyrst varir en það var um klukkan átta að morgni.
Hundruð grindhvala heimsóttu Reykjanesbæ
›› FRÉTTIR ‹‹
Friðrik Friðriksson
leikari hleypur fyrir
frændur sína
Friðrik Friðriksson leikari mun taka þátt í Reykjavíkurmara-
þoninu í ár eins og svo margir en
hann ætlar að láta gott af sér leiða.
Friðrik mun hlaupa fyrir Duc-
henne-samtökin á Íslandi en tveir
systursynir hans eru með vöðv-
arýrnunarsjúkdóminn DMD.
Friðrik er alinn upp í Njarðvík og
frændur hans, þeir Sigurður og
Friðrik Guðmundssynir eru einnig
Njarðvíkingar og hann ætlar sér að
hlaupa fyrir þá. „Ég á tvo frændur
með DMD og ég hleyp fyrir þá,“ seg-
ir Friðrik á vefsíðunni hlaupastyrkur.
is en þar er hægt að leggja málefninu
lið með því að heita á Friðrik.
Duchenne Muscular Dystrophy,
DMD, er arfgengur sjúkdómur
sem leiðir til vaxandi vöðvamátt-
leysis en aðeins drengir geta fengið
sjúkdóminn. Í kringum 10-12 ára
aldur eru þeir nær alfarið komnir
í hjólastól samkvæmt upplýsing-
um frá Duchenne-samtökunum á
Íslandi en sjúkdómurinn leiðir til
hjarta- og öndunarbilunar. Í dag er
engin lækning til við DMD. Friðrik
er 23 ára og bróðir hans, Sigurður,
er 28 ára en báðir eru þeir bundnir
við hjólastól.
Á dögunum skrifaði Grinda-víkurbær undir samning
við Malbikunarstöðina Hlað-
bær-Colas hf. um malbikun á
göngustígum víða í Grindavík.
Samningurinn markar tímamót
í malbikun á Íslandi því í fyrsta
skipti verður lagt „grænt“ um-
hverfisvænna malbik á stígana en
um endurvinnslu eldra malbiks er
að ræða en það dregur verulega úr
hráefnisnotkun og sparar flutn-
ingskostnað. Auk þess er það tals-
vert ódýrara.
Malbikunarstöðin Hlaðbær-Colas
hf. hefur verið að þróa sig áfram í
endurvinnslu malbiks en þetta hef-
ur verið gert víða, m.a. á hinum
Norðurlöndunum undanfarin ár og
er reynsla af endurvinnslunni góð.
Mikið átak er nú í göngustígagerð
í Grindavíkurbæ. Græna umhverf-
isvæna malbikið verður notað á
göngustíga sem liggja frá Grindavík
og langleiðina í Bláa lónið. Jafn-
framt við höfnina og með Austur-
vegi, frá tjaldsvæðinu og að Þór-
kötlustaðahverfi. Um 7 km verða
lagðir með þessu nýja og umhverf-
isvæna malbiki í þessum áfanga.
Rétt er að taka fram til að forðast
misskilning að þrátt fyrir að mal-
bikið sé umhverfisvænna er það
ekki grænt á litinn!
„Ég fagna því að Grindavík skuli
vera fyrsta bæjarfélagið sem er
svo framsýnt og umhverfisvænt
að leggja „grænt“ malbik á nýju
GRæniR umHveRfisvæniR
malbikaðiR GönGustíGaR
göngustígana,“ sagði Sigþór Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Hlað-
bær-Colas hf í samtali við heima-
síðu Grindavíkurbæjar.
„Grindavík er matvælavinnslu- og
ferðamannabær með sjálfbærni og
umhverfisvernd að leiðarljósi. Þeg-
ar okkur var kynntur þessi mögu-
leiki á endurunnu malbiki var það
algjörlega í takt við okkar framtíð-
arsýn,“ segir Róbert Ragnarsson,
bæjarstjóri Grindavíkur.
Efnið er kallað kaldblandað mal-
bik með 100% endurunnu efni og
er blandað með bikþeytu sem er
umhverfisvæn blanda af stungubiki
og vatni. Við blöndun og vinnslu
brotnar vatnið frá bikinu og gufar
upp og eftir verður malbiksmassi
sem er áþekkur venjulegu malbiki.
Sambærileg vara var fyrst þróuð hjá
Colas í Sviss en MHC hefur aðlagað
vöruna að íslenskum aðstæðum.
Sannarlega er hægt að kalla þetta
„grænt“ malbik.
Þess má geta að Vegagerðin hefur
einnig ákveðið að kaupa þetta efni
og verður það lagt á kafla á Krísu-
víkurvegi síðar í sumar.