Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.08.2012, Síða 13

Víkurfréttir - 02.08.2012, Síða 13
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 2. ÁGÚST 2012 13 Bibba á Brávalla kom í kaffi! „Áttu tíu dropa essskan“, sagði hún um leið og hún tók upp sígaretturnar. „Er að minnka þennan ósið og er t.d. alveg hætt að reykja heima hjá mér!!“ Bibba mín veit allt, kann allt og gerir allt miklu betur en fúll á móti. Hún er með fimm háskólagráður eins og vinur hennar Georg Bjarnfreðarson, þrátt fyrir að hafa aldrei stigið fæti inn í háskóla. Hún þarf þess ekki! Anna Lóa mín, segðu mér nú hvað þú ert búin að vera að gera í fríinu. Ætluðum við að breyta út af vananum og tala um mig í dag: ég er búin að hjóla mikið, fara í sund, fór svo í ferðalag vestur, búin að spila golf, var viku í RVK og svo auðvitað bara að njóta þess að vera úti í þessu yndislega veðri. Bibba ranghvolfdi í sér augunum meðan hún tók sér smók: Þú ert svo ofvirk – getur aldrei verið kyrr. Ég verð nú bara þreytt að hlusta á þig, ha...... Já þú er örugglega ofvirk, alltaf að hlaupa upp um fjöll og fiðrildi!! Þú ert pottþétt með ADHD, VMST eða eitthvað. Ég þekki einkennin sko – þú ert með þau öll og betur sjá augu en eyru. Elsku Bibba, held ég sé ekkert ofvirk, er bara virk manneskja sem líður vel með að hreyfa mig. Finnst þér þú þekkja þessi einkenni hjá mér út frá sumarfríslýsingunni? Þú veist Bibba mín að maður þarf að uppfylla nokkur greiningarviðmið til að greinast ofvirkur – ekki bara að hreyfa sig mikið! En ég er líka búin að eiga yndislegan tíma með fjölskyldu og vinum. Elska að setjast niður og spjalla við fólkið mitt um lífið og tilveruna, um sorgir og sigra og helst að hlæja helling. Veistu, mig langar að sinna vinum og fjölskyldu betur. Vissi ekki hvert augu Bibbu ætluðu núna: elskan mín, þú ert svo meðvirk, verður að passa þig. Veit að þú vilt vera góður vinur, en halllllóóó, held að þú gerir þér enga veginn grein fyrir hvar þú ert stödd! Jú jú gaman að hitta fólkið sitt – en mig grunar að þú sért allt of innvikluð í líf of margra elskan. Ég þekki þetta svo vel, fólk vill hreinlega líma sig á mig!! Þú vinnur sem ráðgjafi alla daga, er það ekki nóg. Finnst þér þetta nú ekki vera að bera í barmafullan lækinn? Já en Bibba mín, þú veist að það eru líka ákveðin viðmið fyrir meðvirkni? Held að þú sért að alhæfa aðeins of mikið hér því þegar þú ert meðvirkur þá m.a. stjórnar þú eða tekur ábyrgð á gjörðum annarra og hjálpar við- komandi að forðast það að takast á við eigin vandamál. Er eflaust oft meðvirk en held að þetta sé ofnotað orð sem við notum jafnvel yfir góð- mennsku. Ég var bara að lýsa kærleikssambandi við fjölskyldu og vini! Held að ég sé ekkert meðvirkari en flestir Íslendingar. Augun ætluðu út úr Bibbu: herra minn sæll og glaður, klassískt dæmi um afneitun! Það þýðir ekkert að stinga höfðinu í steininn Anna Lóa mín, þú verður að fara að horfast í augu við sjálfa þig og lífið. Þetta kemur ekki á óvart, þú hefur alltaf verið illa haldin af fullkomnunaráráttu og því erfitt að viðurkenna svona veikleika. Engar áhyggjur, ég verð þér innan handar. Verð að drífa mig, Dúna dóttir Bíbíar var að eignast barn fyrirfram og það var sett í súrkassa og allt. Ég er að hjálpa þessari elsku en verð að lauma mér inn í húsið með einhverjum sem kemur heim í hádeginu, hún heyrir aldrei í bjöllunni þessi elska enda andvana heilu og hálfu næturnar! En mundu að þrátt fyrir allt ertu krútt elskan! Ég kæmist illa af án hennar Bibbu minnar! Þangað til næst – gangi þér vel. Anna Lóa Fylgstu með mér - http://www.facebook.com/Hamingjuhornid Fjallalamb hf. Kópaskeri óskar eftir duglegu og reglusömu starfsfólki í sláturtíð frá 12. september til 25., 27. október. Húsnæði frítt ásamt fríu fæði á meðan á vinnu stendur. Vinsamlega hringið í Björn Víking í síma 465 2140 eða sendið tölvupóst á allalamb@allalamb.is fyrir 20. ágúst nk. Aníta Ósk vakti athygli fyrir þátt- töku sína í dans- þætti Ragnhildar Steinunnar á RÚV í vor. Hún ætlar sér að vera í faðmi fjölskyld- unnar um helgina. Anítu finnst ómissandi að hafa söng og gítar við höndina um verslunarmannahelgi. Hvað á að gera um verslunarmanna­ helgina og á að ferðast? Það er ákveðin hefð hjá minni fjöl- skyldu að skella sér upp í bústað í Norðurárdalnum um verslunar- mannahelgina. Þar mun ég einfald- lega bara njóta þess að vera með fjölskyldunni, örugglega syngja þó nokkur lög við brennuna sem er haldin þarna ár hvert og njóta þess vel að vera í smá fríi. Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Já, þegar fjölskyldumeðlimir okkar sem búa í útlöndum komu heim á klakann og voru með okkur yfir verslunarmannahelgina. Það var ekkert smá gaman! Hvað finnst þér einkenna góða verslunarmannahelgi og finnst þér eitthvað vera ómissandi um þessa helgi? Það sem mér finnst einkenna góða verslunarmannahelgi er klárlega góður félagsskapur. Það sem er alveg ómissandi við þessa helgi er auðvitað góða skapið og ekki má nú gleyma gítarnum! *** Guðfinnur Sig- urvinsson, fréttamaður á RÚV er feginn að hafa verið orðinn þrítugur þegar hann fór fyrst á Þjóðhátíð í Eyjum, það segir hann hafa verið einstaka upplifun. Hvað á að gera um verslunarmanna­ helgina og á að ferðast? Það er enn nokkuð óljóst, ég er bú- inn að vera svo mikið á faraldsfæti í sumar. Ég er til dæmis nýkominn úr tjaldútilegu í Fljótum, þá fór- um við og gistum nótt í Flatey á Breiðafirði og þar áður vorum við á Ítalíu. En sennilega er aldrei betra að vera í bænum en einmitt um verslunarmannahelgi. Andrúms- loftið afslappað og mátulega mikið af fólki á götunum. Ég hugsa að við verðum bara heima, grillum ef veður leyfir og höfum það notalegt. Það er þó örlítill möguleiki á að við hendum tjaldinu í skottið og keyrum út á land með hundinn. En þá elti ég ekki útihátíðir, ég fyndi mér frekar rólegan reit með góðum vinum. Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Já, já, það toppar ekkert Þjóðhátíð í Eyjum. Þegar ég var að alast upp þá fór ég bæði í Galtalæk og á Halló Akureyri og fannst ágætt. Það var ekki fyrr en ég var orðinn þrítugur sem ég fór til Eyja og þeirri versl- unarmannahelgi gleymi ég aldrei. Ég er feginn því eftir á að hafa verið orðinn þetta gamall þegar ég fór á Þjóðhátíð. Ég held ég hafi kunnað að meta hátíðina betur fyrir vik- ið. Ég var reyndar vinnandi sem fréttamaður á Sjónvarpinu og við sendum beint út í fréttatímanum frá Herjólfsdal. Árni Johnsen kom í viðtal og tók lagið, svo bauð hann okkur heim til sín í kjötsúpu. Þetta var á sunnudagskvöldinu og það stóð til að við tökumaðurinn fær- um aftur í bæinn beint eftir útsend- inguna. Okkur til happs varð svo ofboðslega lágskýjað í Vestmanna- eyjum þetta kvöld að ekkert var flogið fyrr en daginn eftir og því var ekkert annað að gera en fara í kjötsúpuna til Árna og skemmta sér svo um kvöldið. Ég gleymi aldrei brekkusöngnum, blysunum og gleðinni með heimamönnum í hvítu tjöldunum. Einstök upplifun og mögnuð minning. Hvað finnst þér einkenna góða versl­ unarmannahelgi? Góð verslunarmannahelgi einkenn- ist fyrst og síðast af gleði. Gleði yfir samverunni með góðum vinum, kraftmiklum söng, ljúffengum mat og almennt gleðinni yfir því að vera fullur af lífi. Mér finnst ómissandi að heyra fréttir af því um verslunar- mannahelgi að hátíðarhöldin fari vel fram og fólkið sé glatt og sjálfu sér og öðrum til ánægju. Ann- ars konar fréttir þessa helgi mega gjarnan missa sín. *** Sævar Freyr Eyj- ólfsson hefur ekki gert neinar sér- stakar fyrirætl- anir þrátt fyrir það að hafa verið að vinna síðustu fjórar verslunar- mannahelgar. Sævar vinnur á SAD cars bílaleigunni uppi á flugvelli en hann segir endalaust að gera á þessum tíma og aukning túrista hafi verið ótrúlega mikil undanfarin ár. „Þannig er mikið álag í vinnunni og í sumar hefur verið nóg að gera. Þetta er því bæði búið að vera gott og erfitt sumar.“ Sævar telur að fólk á hans aldri sé líklega á leið til Eyja. Hann á enn eftir að prufa að fara þangað en annars er Ein með öllu á Akureyri líka frábær hátíð að hans mati. Hvað á að gera um verslunarmanna­ helgina og hvert á að fara? Heyrðu það er bara óplanað, en býst við að það verði góð stund með kærustunni sem verður fyrir valinu. Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Nei, hef verið að vinna síðustu 4 ár um versló svo lítið náð að njóta hennar! Hvað finnst þér einkenna góða versl­ unarmannahelgi, er eitthvað ómiss­ andi um þessa helgi? Að hanga með góðum vinum, gott andrúmsloft og njóta þess að vera til. Einara Lilja Kristjánsdóttir starfar í Njarðvík- urskóla en hún er hásnyrtimeist- ari að mennt. Hún verður á unglingalandsmótinu á Selfossi um helgina með manni sínum ásamt þremur dætrum þeirra. Hvað á að gera um verslunarmanna­ helgina og hvert á að fara? Við fjölskyldan ætlum að skella okkur á unglingalandsmótið á Sel- fossi. Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Það er æskuminning þar sem ég og fimm systkini mín ásamt for- eldrum fórum alltaf um verslunar- mannahelgi í mjög lítinn veiðikofa sem við áttum við Vesturhópsvatn og þar var alltaf gaman að vera. Hvað finnst þér einkenna góða versl­ unarmannahelgi, er eitthvað ómiss­ andi um þessa helgi? Vera í góðum félagsskap og algjör- lega ómissandi að fá gott veður. *** Hallveig Fróða- dóttir á eins og svo margir aðrir ógleymanlegar minningar frá Vest- mannaeyjum um þessa mestu ferða- mannahelgi ársins. Hvað á að gera um verslunarmanna­ helgina og hvert á að fara? Við fjölskyldan ætlum að gera eitt- hvað skemmtilegt saman en aldrei slíku vant stendur ekki til að fara neitt. Aldrei að vita samt hvað manni dettur í hug. Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Ég á mjög margar góðar minning- ar um verslunarmannahelgi, t.d. kynntist ég manninum mínum um versló 1997, svo verð ég bara að nefna þjóðhátíð 1993 sem var ógleymanleg með góðum vinkon- um. Hvað finnst þér einkenna góða versl­ unarmanahelgi og finnst þér eitthvað vera ómissandi um þessa helgi? Góð verlunarmannahelgi fyrir mér er góður félagsskapur og hefur undanfarin 10 ár verið staðsetning- in líka en bústaðurinn sem við höf- um farið í var nýlega seldur og nú taka við nýjir tímar og nýjar hefðir. Annars verð ég alltaf að spila um verlsunarmannahelgi og hlusta á Rás 2 með manninum mínum! Á FERÐ OG FLUGI UM HELGINA Víkurfréttir koma ekki út 9. ágúst vegna sumarleyfa. Fréttavakt verður áfram á vf.is

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.