Ægir - 01.08.2001, Síða 8
8
S K I P A L Í K Ö N
Elvar Þór Antonsson
líkansmiður og „lúðu-
pabbi“ á Dalvík byrj-
aði að fikta við smíði
skipalíkana fyrir fjór-
um árum. Hann hefur
miklar taugar til sjáv-
arútvegs og skipaút-
gerðar því hann var í
tólf ár til sjós á skut-
togaranum Björgúlfi
EA á Dalvík.
Við spjöllum yfir tebolla um lík-
ansmíðina og það er greinilegt að
hún á allan hug Elvars. Hann seg-
ir þetta vera sérstaklega skemmti-
lega tómstundaiðju, þótt hún sé
óneitanlega tímafrek. „Það var
enginn einn sem ýtti á mig að fara
út í þetta. Ég vildi bara prófa og
sjá hvort ég gæti þetta ekki,“
sagði Elvar Þór þegar hann var
inntur eftir því hvernig á því hafi
staðið að hann byrjaði að smíða
skipalíkön fyrir fjórum árum. „Ég
hafði áður fengist töluvert við
flugmódelsmíði og það má segja
að grunnurinn hafi komið þaðan.
En ég hef að sjálfsögðu mikinn
áhuga á íslenskum skipum og tel
að saga þeirra sé dýrmæt og henni
verði að sýna þá virðingu sem
henni ber,“ bætir Elvar Þór við.
Tímafrekt áhugamál
Það dylst engum sem skoðar þau
líkön sem Elvar Þór hefur þegar
smíðað að hann er geysilega ná-
kvæmur og hann viðurkennir að
nákvæmnina verði að hafa að leið-
arljósi við smíði skipalíkana ef ár-
angurinn eigi að verða viðunandi.
Illa smíðað skipslíkan sé lítið
augnayndi, en yfir góðu verki sé
hægt að gleðjast og það lifi um
ókomin ár. Elvar byrjaði á því að
smíða líkan af Björgúlfi EA-312,
gamla „tappatogaranum“, sem
kom til Dalvíkur árið 1959, en
var seldur þaðan til Grindavíkur
árið 1973 og sökk tveim árum
síðar. Þetta líkan er hreinasta
Vildi bara prófa og sjá
hvort ég gæti þetta ekki
- segir Elvar Þór Antonsson sem eyðir mörgum frístundum úti í bílskúr og smíðar skipalíkön
„Auðvitað er þetta mjög tímafrek vinna,“ segir líkansmiðurinn Elvar Þór Antonsson,
sem hefur undanfarna vikur og mánuði unnið að því að smíða líkan af Akureyrinni
EA, fyrsta skipi Samherja hf. Mynd: Jóhann Ólafur Halldórsson.
Elvar Þór segist eiga
sér þann draum að
smíða líkan af því
sögufræga skipi, Lofti
Baldvinssyni, sem var
gerður út frá Dalvík
um árabil og var eitt
fengsælasta skip flot-
ans ár eftir ár.
Mynd: Ottó Gunnarsson.