Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.08.2001, Qupperneq 9

Ægir - 01.08.2001, Qupperneq 9
9 augnayndi og ljóst að ófáar vinnu- stundir hafa farið í smíði þess. „Já, auðvitað er þetta mjög tímafrek vinna. Að meðaltali myndi ég ætla að það taki 6-700 tíma að smíða eitt líkan,“ segir Elvar Þór. Hann segir að mestur tími fari í að smíða litlu hlutina ofan dekks, til dæmis spilin, möstur og rekk- verk. „Þetta krefst vissulega mik- illar þolinmæði, en þessi vinna á við mig og gefur mér mikið,“ seg- ir Elvar Þór. Loftur áhugavert við- fangsefni Elvar Þór starfar í eldisstöð Fisk- eldis Eyjafjarðar á Dalvík, er eins- konar „lúðupabbi“. Eins og kunn- ugt er hefur Fiskeldi Eyjafjarðar verið í hröðum vexti og því í mörg horn að líta. Elvar Þór við- urkennir að vegna anna hafi hann ekki gefið sér nægan tíma á síð- ustu mánuðum í skipalíkönin, en hann er engu að síður með eitt líkan í smíðum, af Akureyrinni EA, fyrsta skipi Samherja hf. Nú þegar hefur Elvar Þór lokið við smíði líkana af þrem skipum; Björgúlfi EA, eins og áður segir, Sigurbjörgu ÓF í Ólafsfirði, sem var fyrsta stálskipið sem var smíð- að í Slippstöðinni á Akureyri, og Eyrúnu EA, 8 tonna súðbyrðingi frá Hrísey. Fyrir liggur að smíða líkan af Stefáni Rögnvaldssyni EA á Dalvík og þegar Elvar er spurð- ur um hvort hann geti nefnt eitt- hvert skip sem hann hafi sérstak- an áhuga á að smíða líkan af, þá stendur ekki á svari: Loftur Bald- vinsson EA, eitt allra mesta happaskip sem gert hefur verið út frá Dalvík. Og Elvar Þór nefnir líka að áhugavert væri að smíða líkön af nokkrum Akureyrartog- urunum, ekki síst „Stellum“ Út- gerðarfélags Akureyringa, sem hann segir sérstaklega fallega skuttogara. Teikningar mikilvægar Elvar Þór smíðaði líkan af Eyrúnu frá Hrísey eftir ljósmynd, en yfir- leitt reynir hann að verða sér úti um teikningar af skipunum. Því aðeins segist hann geta verið viss um að öll hlutföll séu rétt og allr- ar nákvæmni gætt. Í sumum til- fellum eiga útgerðarmenn skip- anna teikningar af þeim, en ef ekki segir Elvar Þór að hægt sé að fá teikningar af skipum yfir 12 brúttólestum hjá Siglingastofnun. Elvar Þór segist ekki þekkja til annarra skipalíkansmiða hér- lendra. Hins vegar hafi hann heyrt að í Grindavík sé einn slík- ur smiður og annar í Vestmanna- eyjum. S K I P A L Í K Ö N Líkan af Sigurbjörgu ÓF-1, fyrsta stálskipinu sem var smíðað í Slippstöðinni á Akureyri. Mynd: Elvar Þór Antonsson. Mynd: Elvar Þór Antonsson. Þetta fallega líkan af Björgúlfi EA-312, gamla tappatogara Útgerðarfélags Dalvíkinga, var fyrsta viðfangsefni Elvars Þórs. Hér er líkanið komið á flot í Dalvíkurhöfn. Fjær er núver- andi Björgúlfur EA.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.