Ægir - 01.08.2001, Side 12
12
N Ý S M Í Ð I
Skipstjóri Happasæls á leiðinni til
Íslands var Jón Beck en Hallgrím-
ur Guðmundsson, sonur hjónanna
Gerðu Halldórsdóttur og Guð-
mundar Rúnars Hallgrímssonar,
sem eiga Happa ehf., verður skip-
stjóri á nýja skipinu.
Útgerðin Happi ehf. er fjöl-
skyldufyrirtæki í Keflavík. Guð-
mundur Rúnar annast fram-
kvæmdastjórnina en synir þeirra
hjóna halda um ýmsa þræði fyrir-
tækisins. Hallgrímur verður eins
og áður segir skipstjóri á nýja
Happasæl en hann var áður skip-
stjóri gamla skipsins. Og þrír
bræður hans vinna í landi, þeir
Ívar, Rúnar og Halldór. Einnig
má geta þess að tveir bræður Guð-
mundar Rúnars, Hlöðver og Sig-
urður, starfa hjá fyrirtækinu og
því er ekki ofsögum sagt að hér sé
um að ræða fjölskyldufyrirtæki.
Heildarkostnaður um
190 milljónir króna
Upphaflega var gert ráð fyrir að
skipið myndi kosta um 135 millj-
ónir króna, en ljóst er að heildar-
kostnaður fer upp í um 190 millj-
ónir króna. Ýmsar ástæður liggja
að baki. Þær þó helstar að stöðugt
gengissig á fyrri hluta ársins
hækkaði verðið um tugi milljóna
króna og síðan þurfti að leggja í
verulegan kostnað við að laga ým-
islegt um borð í skipinu þegar til
hafnar var komið hér heima. Guð-
mundur Rúnar tekur fram að
Útgerðarmaður Happasæls KE-94 er óhress með frágang um borð í skipinu:
Þessir blessaðir Kínverjar
eiga margt ólært
Happasæll KE-94 er sérútbúið netaveiðiskip, en unnt er að breyta því til tog- og snurvoðarveiða.
Happasæll KE-94 var smíðaður í Huangpu
skipasmíðastöðinni í Guangzhou í Kína. Skip-
ið kom til heimahafnar í Keflavík 7. september
sl. eftir um sjö vikna siglingu frá Kína. Hinn
nýi Happasæll kemur í stað gamla Happasæls
sem var smíðaður í Noregi árið 1963 og hefur
þjónað útgerðinni, Happa ehf. í Keflavík, afar
Mynd: Víkurfréttir.