Ægir

Volume

Ægir - 01.08.2001, Page 13

Ægir - 01.08.2001, Page 13
hann sé ánægður með skipið sem slíkt, hönnun þess og lögun, en frágangur á ýmsu um borð sé hreinlega fyrir neðan allar hellur og hann fullyrðir að ýmislegt standist engan veginn hérlenda staðla, sem ákveðnir aðilar eigi þó að ábyrgjast. Til dæmis nefndi Guðmundur að rafvirkjar hafi ver- ið dögum og vikum saman í því að endurnýja ýmislegt í rafkerfi skipsins, nokkuð sem alls ekki hafi verið gert ráð fyrir að væri í ólagi. Ýmislegt ekki eins og það á að vera „Þeir eiga mikið ólært þessir blessaðir Kínverjar og sömuleiðis eiga þeir mikið ólært þessir menn sem eiga að fylgjast með því að þetta sé unnið rétt og samkvæmt öllum stöðlum. Það vantar ein- faldlega mikið upp á að í þessu skipi sé allt eftir þeim staðli sem á að vinna eftir, það er engin ástæða til þess að lúra á því. Ég veit ekki hvort ég nenni að telja upp það sem ekki er í lagi. Það er fljótlegra að telja það upp sem ekki er í lagi í skipinu. Ég get þó nefnt raflagn- ir og ýmsar lagnir að krönum og fleira. Þetta er allt meira og minna í ólagi. Við þurftum til dæmis að endurnýja alla slökkvara og tengla. Mér sýnist að það muni taka fimm til sex vikur að vinna í skipinu og gera það eins og það þarf að vera og því fer það varla á sjó fyrr en um miðjan október“ sagði Guðmundur Rúnar. „Það er ekki bara að þessi slæmi frágang- ur kosti miklar tafir, heldur kost- ar fleiri milljónir króna að laga þetta,“ sagði Guðmundur. Hann sagðist ekki vita hvort eftirmálar yrðu af þessu öllu saman. „Líklega reynir maður að leita réttar síns, en ég veit ekkert hvort það geng- ur.“ Guðmundur sagði að þrátt fyrir mun meiri kostnað en upphaflega var gert ráð fyrir hafi hann orð sérfróðra manna um íslenskan skipasmíðaiðnað fyrir því að ekki hefði verið unnt að smíða slíkt skip hér innanlands fyrir lægri upphæð en 300-350 milljónir króna. Mikill kvótaniðurskurður Kvótinn af gamla Happasæl fær- ist yfir á nýja skipið. Guðmundur segist ekki hafa í hyggju að kaupa viðbótarkvóta, en hins vegar muni hann væntanlega leigja kvóta eins og áður. „Blessaður vertu, það er að verða búið að hirða allan þennan kvóta af okkur,“ sagði Guðmundur. „Þú sérð það að ég er með 422 tonn í þorski, en var með 540 tonn í hittifyrra. Þegar mest var hafði ég 960 tonn í þorski. Forsendur hafa breyst mjög mikið á stuttum tíma. Það er allt annar andi í þessu en fyrir tveimur árum. Þá héldum við að kvótinn væri á uppleið en ekki á hraðri niðurleið. Ég hefði ekki látið mér detta í hug að fara út í þessa fjárfestingu ef mig hefði grunað að kvótinn yrði skorinn svona mikið niður. Ég hefði frek- ar hætt þessu, það er svo einfalt,“ sagði Guðmundur. Bróðurpartur afla Happasæls, þ.e.a.s. þorskurinn, verður eftir sem áður unninn í salt í land- vinnslu fyrirtækisins. Aðrar teg- undir eru seldar á markaði. „Salt- fiskvinnslan gengur ágætlega, það er hátt verð á saltfiski um þessar mundir,“ sagði Guðmundur. Salt- fiskinn selur fyrirtækið mest í gegnum Sölku og Íslensku um- boðssöluna. Eins og áður segir er gert ráð fyrir að Happasæll hinn nýi fari á veiðar um miðjan október. Tíu manns verða í áhöfn, eins og á gamla Happasæl. 13 N Ý S M Í Ð I Eigendur nýja skipsins, hjónin Guðmundur Rúnar Hallgrímsson og Gerða Halldórsdóttir. Mynd: Víkurfréttir.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.