Ægir

Volume

Ægir - 01.08.2001, Page 14

Ægir - 01.08.2001, Page 14
14 S M Á B Á T A Ú T G E R Ð „Það er í mínum huga alveg ljóst að ef ekkert verður að gert fara margir smábátasjómenn beint í gjaldþrot. Ég nefni sem dæmi svokallaða þakbáta, þá báta sem voru með 40 róðrardaga og 30 tonna þorskþak. Þeir voru sæmi- lega sáttir í fyrra kerfi og voru smám saman að laga sig að því. Núna eru margir þessara báta með frá einu og upp í fimm tonn. Þú getur rétt ímyndað þér hvað þess- ir menn hafa að gera. Þeir eru bara hættir og þeir sem skulda eru margir í gífurlegum erfiðleikum. Það er gjörsamlega búið að kippa fótum undan yngri mönnum sem ætluðu að koma undir sig löppun- um og finna einhverja inngöngu- leið,“ sagði Arthur. Hann sagði að erfiðleikarnir blöstu víða við. Fram hafi komið að þeir séu miklir á Vestfjörðum, en Arthur segir menn standi líka frammi fyrir alvarlegri stöðu suð- ur með sjó „og ef farið er út í Hafnarfjörð blasir við stærsti smá- bátafloti sem ég hef séð í langan tíma. Karlarnir eru eitthvað að dunda ofan í bátunum, en þeir hafa ekkert á sjó að gera.“ Grafalvarlegt mál Að óbreyttu segir Arthur það blasa við að svokölluðum atvinnu- mönnum í smábátaútgerð muni fækka stórlega. „Fjölmargir fara að óbreyttu á hausinn og það sem við getum gert hjá Landssam- bandi smábátaeigenda í þessari stöðu er að leita allra leiða til þess að finna einhverja leiðir til þess að ná rétti þeirra. Það kann að vera hægt með „lobbyismanum“, eins og við höfum yfirleitt beitt, eða með dómstólaleiðinni. Það hlýtur að vakna sú spurning hvort til dæmis þeir sem voru með þakbáta eigi ekki rétt á skaðabótum. Við erum ekki farnir að skoða það mál lögfræðilega, en við höngum í þeirri von að löggjafinn sjái að sér,“ sagði Arthur og vísar til þess að Alþingi komi saman eins og venja er til þann 1. október. Arth- ur segist vissulega gera sér vonir um að þingmenn muni hnekkja þeim lögum sem tóku gildi á smábátasjómenn þann 1. septem- ber sl. og hann vísar til þess að síðastliðið vor hafi yfirlýsingar þingmanna bent til þess að meiri- hluti væri fyrir því að halda óbreyttu kerfi í smábátaútgerð- inni. „Ég vænti þess að stjórn- málamennirnir fari að átta sig á því hvaða afleiðingar þessi lög hafa í raun og veru og þetta sé ekki bara gaspur í okkur sem ein- hverjum hagsmunapoturum. Þetta er í rauninni alveg grafal- varlegt mál fyrir líf og störf fólks. Í fjölmörgum byggðarlögum er ekki kveikt ljós vegna þess að það er ekkert með það að gera,“ sagði Arthur. Ráðherra vill ekki finna sáttaleið Einar K. Guðfinnsson, fyrsti þingmaður Vestfirðinga og for- maður sjávarútvegsnefndar Al- þingis, hefur í ræðu og riti sagt að hann telji möguleika á ákveðinni málamiðlun sem bæði smábáta- sjómenn og aðrir geti orðið nokk- uð sáttir við. Arthur segir að sú leið sem Einar hafi kynnt sé með öllu óaðgengileg og hann lýsir henni sem yfirklóri. „Lausnin felst ekki í því sem Einar er að tala um,“ segir Arthur en hafnar því að smábátamenn séu ekki til við- ræðu um neitt annað en það kerfi sem gilti til 1. september sl. „Síð- ast þegar ég hitti sjávarútvegsráð- herra á fundi bauð ég honum í fimmgang að setjast yfir þetta mál og finna sáttaleið, en hann hafnaði því. Ástæðan er sú að ráð- herra veit að við viljum fara aðrar leiðir í því að takmarka sóknina. Við viljum fara í sóknartakmark- anir en ekki í kvóta. En ráðherra er svo fastur á sínum hugmyndum að hann hafnar því jafnóðum að fara yfir málið og reyna að leita leiða til þess að finna sáttaflöt. Ef þetta heitir að vera með sáttavilja eða leita friðar í málinu, er mér öllum lokið,“ segir Arthur. Hann ítrekar að margir bíði eft- ir því að Alþingi komi saman og menn trúi því að fram komi frum- varp sem verði samþykkt og hnekki núgildandi lögum. „Ég vil trúa því að fram komi frumvarp í þinginu um breytingar á núgild- andi lögum,“ segir Arthur Boga- son. Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda: Spurning hvort menn eigi ekki rétt á skaðabótum Arthur Bogason vonar að löggjafinn hnekki núgildandi lögum um veiðar smábáta. „Það er allt stopp, flotinn er bara í höfn,“ segir Arthur Bogason, formað- ur Landssambands smábátaeigenda. Eins og fram hefur komið var kvóti settur á veiðar smábáta á ýsu og steinbít frá og með 1. september. Smá- bátasjómenn, ekki síst á Vestfjörðum og Reykjanesi, lýsa þessari ákvörð- un stjórnvalda sem alvarlegum náttúruhamförum af mannavöldum. „Það er í mínum huga alveg ljóst að ef ekkert verður að gert fara margir smábátasjó- menn beint í gjaldþrot. Ég nefni sem dæmi svokallaða þakbáta, þá báta sem voru með 40 róðrardaga og 30 tonna þorskþak,“ segir Arthur Bogason m.a. í viðtali við Ægi.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.