Ægir - 01.08.2001, Side 17
17
Æ G I S V I Ð T A L I Ð
Hráefni keypt víða að
GPG fær hráefni víða að og segir Gunnlaugur að
fyrirtækið eigi bein viðskipti við fjölda báta um kaup
á hráefni. „Ég tel mjög mikilvægt að byggja upp per-
sónulegt samband við útgerðarmenn um allt land,
það er lykilatriði að hafa aðgang að góðu hráefni á
hverjum tíma. Ástæðan fyrir því að ég hef kappkost-
að að fá hráefni frá bátum um allt land er einfaldlega
sú að þannig er frekast hægt að tryggja að alltaf sé
nægilegt hráefni fyrir vinnsluna. Það er vel þekkt að
þegar bræla er á einum stað er góð veiði á öðrum.
Landflutningakerfið í landinu er orðið það traust að
það er tiltölulega einfalt og fljótlegt að flytja hráefni
milli landshluta,“ segir Gunnlaugur og áætlar að
hann kaupi hráefni af um 50 aðilum. „Bróðurpartur
af hráefninu kemur af austur-, norður og vestursvæð-
inu, en á vertíðinni fáum við líka mikið hráefni að
sunnan. Megnið af því hráefni sem við kaupum er
óaðgerður fiskur af dagróðrabátum. Við höfum haft
það að leiðarljósi að nýta sem mest af fiskinum.
Þannig hirðum við lifrina og frystum eða söltum
hrogn. Við þurrkum hryggi og hausa, við gellum og
fésum stóra fiskinn. Með öðrum orðum reynum við
að gera verðmæti úr öllu því hráefni sem kemur inn í
húsið.“
Gott starfsfólk
Segja má að saltfiskvinnslan hjá GPG sé nokkuð
hefðbundin þótt vissulega hafi nútíma tækni tekið
yfir nokkra þætti framleiðslunnar sem mannshöndin
sá áður alfarið um. GPG er mjög vel tækjum búið
fyrirtæki og sjálfvirkni er mun meiri en á árum áður.
„Tæknin kemur við sögu á öllum stigum framleiðsl-
unnar frá móttöku til pökkunar. Saltfiskvinnslan
hefur verið einfölduð til muna og að henni koma
færri vinnuhendur en áður þekktist.“
Gunnlaugur segir að lengi hafi verið mikil og jöfn
vinna hjá fyrirtækinu. „Yfir vertíðina vinnum við alla
daga vikunnar ef þess gerist þörf og það má því segja
að þessir vetrarmánuðir séu líka mikil vertíð hjá okk-
ur. Við vinnum þegar þarf að vinna. Það er okkar
gæfa að við höfum mjög gott starfsfólk, sem er allt
héðan af svæðinu. Og á álagstímum á vetrarvertíð
hafa nemendur í Framhaldsskólanum á Húsavík sem
og fleiri vinnufúsar hendur í bænum lagt okkur lið,“
segir Gunnlaugur.
Séð yfir einn af
vinnslusölum GPG á
Húsavík.
Skóflur eru lítið notaðar í tæknivæddri saltfiskverkun eins og hjá GPG á Húsavík. Hér er
Hrannar Gylfason að dæla salti ofan í fiskikarið.