Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2001, Síða 26

Ægir - 01.08.2001, Síða 26
26 S Í L D V E I Ð A R O G - V I N N S L A Aðalsteinn Ingólfsson segir að í upphafi þessarar síldarvertíðar sé nokkuð gott hljóð í mönnum. „Það er greinilega mikil spurn eftir síld á öllum mörkuðum, bæði í Skandinavíu og Vestur- og Austur-Evrópu. Skandinavía kaupir fyrst og fremst saltsíldina en fryst síld fer á aðra markaði,“ segir Aðalsteinn. Hann sagði að á fyrstu dögum síldarvertíðarinnar hafi síldin ver- ið ágætlega á sig komin, áta hafi lítið gert vart við sig. „Það sem af er höfum við fyrst og fremst fryst síld, en einnig lítillega saltað,“ sagði Aðalsteinn. Síldin mikilvæg fyrir Hornfirðinga Á þokkalega góðri vertíð er land- að um 20 þúsund tonnum af síld á Höfn og það má skjóta á að í verðmæti fari um 30% af heildar- síldaraflanum um hendur Horn- firðinga. Þessar veiðar skipta vinnsluna á Höfn því miklu máli. „Saltfiskurinn er stærstur hér en síðan kemur síldin,“ sagði Aðal- steinn. „Það er vissulega alltaf mikil stemning sem fylgir síldar- vertíðinni, sérstaklega eftir að síldin fer að veiðast dag eftir dag og mikið magn berst á land,“ bætir hann við. En það heyrir sög- unni til að fólk vinni sólarhring- um saman á síldarvertíðinni, jafn- vel þótt þess kynni að gerast þörf. Vinnutímalöggjöfin leyfir það ekki. „Fólk verður að fá ellefu tíma hvíld. Og okkur myndi heldur ekki takast að manna næt- urvakt, við myndum ekki fá nægilega marga á slíka vakt. Ef nóg er af síld til vinnslu vinnum við frá sex á morgnana til sjö á kvöldin, sem sagt í þrettán tíma. Á móti koma ellefu hvíldartím- ar,“ sagði Aðalsteinn. Framan af september voru tveir bátar Skinneyjar-Þinganess á síld- veiðum, Jóna Eðvalds og Arney. Um mánaðamótin september-októ- ber bættist þriðji báturinn, Ás- grímur Halldórsson, við, en hann hefur verið á kolmunnaveiðum. Margir vinna í síldinni Þegar allt er komið í fullan gang má ætla að um 80 starfsmenn í landi komi að síldarvinnslunni hjá Skinney-Þinganesi. Um er að ræða frystingu, söltun og lítils- háttar niðurlagningu á síld fyrir Danmerkurmarkað. Hin klassíska söltun á haus- skorinni síld hefst jafnan um miðjan október, en Aðalsteinn býst við að ef veiðin verður þokka- lega góð muni söltun hefjast fyrr en venja er til. „Verkunaraðferðir hafa breyst verulega. Síldin er flökuð í auknum mæli og krydduð,“ segir Aðalsteinn. SÍF sér um sölu á stærstum hluta síldarafurða frá Skinney- Þinganesi. Mest fer af frystri síld til Frakklands, Þýskalands, Pól- lands og Rússlands. Skandinavía er hins vegar mikilvægasti mark- aðurinn fyrir saltsíld. Alltaf mikil stemning í kringum síldarvertíðina - segir Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess á Höfn Höfn í Hornafirði er stærsta síldarverstöð landsins og því er haustið tími mikilla umsvifa þar í bæ. Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmda- stjóri Skinneyjar-Þinganess, segir að síldin skipti miklu máli fyrir athafnalíf á Höfn og henni fylgi jafnan mikil stemning í bænum. Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn í Hornafirði. Mynd: Sigurður Mar Halldórsson. Það er nóg að gera þessa dagana í síldarvinnslunni hjá Skinney-Þinganesi. Mynd: Sigurður Mar Halldórsson.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.