Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.08.2001, Qupperneq 29

Ægir - 01.08.2001, Qupperneq 29
29 S Í L D V E I Ð A R O G - V I N N S L A „Eftirspurnin er mikil og fyrir því eru nokkrar ástæður. Norðmenn veiða minna en áður, kvótinn í norsk-íslensku síldinni hefur dregist saman. Og síðan hefur það mikið að segja að Rússar kaupa aftur síldarafurðir í töluverðum mæli, fyrst og fremst í heilu síld- inni. Þetta þýðir að tugir þúsunda tonna fara nú inn á Rússlands- markað sem menn hafa verið að reyna að selja á öðrum mörkuð- um. Þetta hefur auðvitað mikið að segja um betri markaðsstöðu. Verðin eru betri en áður og þau gátu reyndar ekki annað en farið upp á við, enda voru þau komin mjög neðarlega. Undir lok síð- ustu vertíðar varð þess þó vart að verð fyrir frysta síld þokaðist hratt upp á við og þetta verð hefur lækkað örlítið aftur. En menn eru almennt á þeirri skoðun að allar líkur séu til þess að vel viðunandi verð fáist á mörkuðum í vetur,“ segir Hilmar. Rússar að taka við sér Ekki þarf að hafa um það mörg orð að hér á árum áður var Rúss- land einn af okkar allra mikilvæg- ustu mörkuðum fyrir saltsíld. Efnahagshrunið í Rússlandi hafði sitt að segja og þessi viðskipti lögðust að mestu af. En Rússar eru allir að braggast og ljóst er að nú kaupa þeir aftur umtalsvert magn af heilli frystri síld. Önnur mikilvæg viðskiptalönd fyrir frysta síld eru til dæmis Eystra- saltslöndin, Pólland, Þýskaland og Frakkland. „Þrátt fyrir að verð hafi hækkað á síldarafurðum er síldin þó ennþá ódýr matvara og í Austur-Evrópu horfa menn til þess að kaupa ódýra, próteinríka matvöru,“ segir Hilmar. Hann segir að tilkoma nýrra og öflugra skipa í uppsjávarveiði breyti „landslaginu“ umtalsvert í sölu á síldarafurðum. Sumarsíldin sé viðkvæmt hráefni og því sé mikilvægt að geta unnið hana strax um borð í öflugum vinnslu- skipum. Vilhelm Þorsteinsson EA hafi þegar náð góðum árangri í þessa veru og vonandi verði það sama uppi á teningnum hjá nýj- um og öflugum skipum eins og Hákoni ÞH og Guðrúnu Gísla- dóttur VE. Samkeppni við Norðmenn Hilmar segir engan vafa á því að Íslendingar eigi í mestri sam- keppni við Norðmenn á síldar- mörkuðunum, bæði í frystri síld og saltsíld. „Að miklu leyti snýst þetta um að geta boðið sam- keppnishæft verð, sérstaklega í frystu síldinni. Menn vita að markaðurinn fyrir saltsíldina í Skandinavíu er nokkuð stöðugur, en meira spurningamerki er með frystu síldina. Þrátt fyrir að Rúss- ar kaupi töluvert magn á þessari vertíð vita menn ekkert hvað kunni að gerast þar á næsta ári,“ segir Hilmar. Hann segir ljóst að eftir nokkur fremur mögur ár í síldinni hafi menn miklar væntingar til kom- andi vertíðar. Verð muni þokast upp á við, en á móti komi að hrá- efnisverð muni líka hækka tölu- vert. Hilmar segir varhugavert að menn séu með óraunhæfar vænt- ingar til markaðsmálanna og hann ítrekar að ekki sé rétt að segja of mikið í upphafi vertíðarinnar, réttara sé að gera upp dæmið þeg- ar vertíðinni ljúki. „En skiljan- lega eru menn nokkuð bjartsýnir og hafa að nokkru leyti ástæðu til. Ef við horfum til sterkra markaða eins og Frakklands, Þýskalands og Englands kemur í ljós að óvenju litlar birgðir eru þar á þessum tíma árs. Það gefur meðal annars tilefni til að ætla að menn séu í þokkalegum málum,“ segir Hilmar Júlísson. Þýskaland er afar mikilvægur síldarmarkaður, líklega má ætla að hann taki við um 200 þúsund tonnum. Síldarneysla er mest áberandi í norðurhluta landsins, í kringum Hamborg, Lubeck og Bremerhaven. Þessi markaður dróst töluvert saman, en Hilmar segir væntingar til þess að Íslend- ingar séu að styrkja þar stöðu sína aftur. Síldarvinnsla nú til dags er mjög tæknivædd, ekki síst í frystingunni. Þessi mynd var tekin í Skinney- Þinganesi á Höfn þar sem lífið er sannarlega síld á haustin. Menn hafa miklar væntingar eftir nokkur mögur ár - segir Hilmar Júlíusson, deildarstjóri uppsjávarfiskadeildar SÍF „Það er alltaf varhugavert að segja of mikið um markaðsmálin í byrjun síldarvertíðarinnar, en mér sýnist að í stórum dráttum séu horfur tölu- vert betri nú en undanfarin ár,“ segir Hilmar Júlíusson, deildarstjóri uppsjávarfiskadeildar hjá SÍF, sem er stærsti seljandi síldarafurða hér á landi. Mynd: Sigurður Mar Halldórsson.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.