Ægir - 01.08.2001, Blaðsíða 30
30
S Í L D V E I Ð A R O G - V I N N S L A
Þessi samningur markar ákveðin
tímamót í sölu á síldarafurðum
sem í mörg undanfarin ár hefur
verið nánast á einni hendi. Bauck-
man OY átti í fyrra viðskipti við
SÍF, en kaupir nú saltsíldina af
Sæblikanum ehf. Bauckman vinn-
ur síldina frekar og pakkar henni í
smærri pakkningar.
Mikil vinnslugeta
Björgólfur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað og Sæblikans ehf., er
ánægður með að hafa náð þessum
samningum, en hann er hins veg-
ar ófáanlegur til þess að gefa upp
andvirði samningsins, segir það
trúnaðarmál milli kaupanda og
seljanda.
Undanfarin ár hefur Síldar-
vinnslan verið stór í framleiðslu
síldarafurða og kemur Neskaup-
staður næst á eftir Hornafirði í
þeim efnum. Síldarsöltunin er
umtalsverð, trúlega sú mesta á
landinu, og líka er mikið magn af
síld fryst hjá Síldarvinnslunni.
Vinnslugetan er enda mikil, í
hinu nýja og glæsilega vinnslu-
húsi Síldarvinnslunnar er hægt í
fullum afköstum að keyra um 600
tonn af síld í gegnum vélarnar á
hverjum sólarhring.
Upp í áðurnefndan saltsíldar-
samning við Bauckman í Finn-
landi mun Síldarvinnslan alfarið
vinna. Samherji hf. frystir hins
vegar mikið magn af síld um borð
í fjölveiðiskipinu Vilhelm Þor-
steinssyni EA, sem hefur náð
mjög góðum árangri á þessu sviði.
Frá því í júní hafa verið fryst um
fjögur þúsund tonn af síld um
borð í Vilhelm að verðmæti um
500 milljónir króna. Sæblikinn
ehf. hefur einnig selt þessar síldar-
afurðir.
Tollarnir eru hindrun
Eins og áður segir vinnur finnski
kaupandinn Bauckman íslensku
síldina frekar og pakkar henni í
smápakkningar. Það vaknar því
sú spurning hvort Íslendingar hafi
ekki möguleika á að gera slíkt hið
sama. Björgólfur svarar því neit-
andi, tollar inn á markaði Evrópu-
sambandslandanna komi í veg
fyrir að það sé mögulegt. „Í samn-
ingum sem EFTA-ríkin gerðu við
ESB á sínum tíma eru tollar á
nokkrum vörum, m.a. síldaraf-
urðum. En þó svo að þessir tollar
væru ekki er mér til efs að það
myndi borga sig fyrir okkur að
vinna síldina hér heima í smásölu-
pakkningar. Það tekur mikinn
tíma að vinna ákveðnum vöru-
merkjum sess á markaðnum og
það yrði að gerast í samstarfi við
stóra aðila sem fyrir eru á mark-
aðnum. Ég tek sem dæmi að vöru-
merki Bauckman OY er mjög
þekkt í Finnlandi, enda er fyrir-
tækið með röskan helming af
markaðnum þar í landi. Það væri
því ekkert grín að fara inn á þenn-
an markað,“ segir Björgólfur.
Gamla síldarstemningin
Saltsíldin sem Bauckman OY
kaupir er þessi svokallaða haust-
síld, en Síldarvinnslan getur af-
greitt vöruna fram undir vor. Eins
og áður segir vill Björgólfur ekki
gefa upp andvirði samningsins við
Bauckman, en hann staðfestir að
verð séu að þokast töluvert upp á
við. „Ástæðan er líklega sú fyrst
og fremst að kvótar í síld eru
minnkandi nánast allsstaðar nema
hérna á Íslandi og síðan eru Rúss-
ar aftur að sækja inn á síldarmark-
aðinn,“ segir Björgólfur.
Hann segir því ekki að neita að
þegar síldin fari að berast í mikl-
um mæli á land myndist sérstakt
andrúmsloft í Neskaupstað.
Gamla, góða síldarstemningin er
enn til staðar, þótt hún sé undir
öðrum formerkjum en á velmekt-
arárum íslenska síldarævintýris-
ins. „Þetta er auðvitað ekki eins
og það var, en engu að síður er
síldin mikilvæg hjá okkur og
mikið er að gera á meðan á þessu
stendur. Við höfum ekki farið út í
að vinna allan sólarhringinn þegar
síldarvertíðin stendur sem hæst,
en við höfum verið með það inni í
myndinni í ár ef vertíðin þróast
þannig,“ segir Björgólfur.
Síldarvinnslan framleiðir
fyrir Finnlandsmarkað
- Bauckman OY kaupir um 20 þúsund tunnur af saltsíld af Sæblikanum
Það vakti nokkra athygli að fyrrihluta septem-
ber gekk Sæblikinn ehf., markaðs- og sölufyrir-
tæki í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og
Samherja hf. á Akureyri, frá sölu á tuttugu þús-
und tunnum af saltsíld, flökum og bitum, til
Finnlands. Kaupandi er Bauckman OY sem er
mjög stórt fyrirtæki í Finnlandi með um 50%
markaðshlutdeild þar í landi fyrir saltsíld.
Það verður nóg að gera
á haustmánuðum í salar-
kynnum Síldarvinnslunn-
ar í Neskaupstað. Í það
minnsta verður saltað í
20 þúsund tunnur fyrir
Finnslandsmarkað auk
frystingar á síld.
Björgólfur
Jóhannsson,
framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað.