Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.2001, Side 32

Ægir - 01.08.2001, Side 32
32 E F T I R L I T andi hreinlætisaðstæður og að merkingar og upplýsingar um þær séu fullnægjandi. Ég tel að hið opinbera eftirlit eigi fyrst og fremst að miða að því að tryggja heilnæmi sjávarafurða gagnvart neytandanum. Annað, sem fram kemur í umræddri lagagrein, eins og fullnægjandi hreinlætisaðstæð- ur og merkingar, eru í raun eitt af skilyrðunum fyrir því að þetta markmið náist. Það að afurðirnar standist settar gæðakröfur er að mínu mati meira á ábyrgð fram- leiðandans og söluaðilans en á ábyrgð stjórnvalda. Það að varan uppfyllir ekki væntingar við- skiptavinarins varðandi t.d. bragð, áferð, lit eða annað leiðir ekki til heilsutjóns. Viðskiptavin- urinn verður einungis fyrir von- brigðum með vöruna og kaupir hana þá væntanlega ekki aftur. Dregið úr umfangi eftirlitsins Með lögunum frá 1993 fóru ís- lensk stjórnvöld nýjar leiðir til að tryggja heilnæmi íslenskra sjávar- afurða. Umfang eftirlitsins var stórlega dregið saman m.a. vegna þess að opinbert gæðamat á fiski og fiskafurðum var lagt niður. Fjölda fiskmatsmanna um land allt var sagt upp störfum. Ríkis- mat Sjávarafurða var lagt niður og í stað þess kom Fiskistofa. Í dag eru gæðaeftilitsmenn á vegum Fiskistofu einungis þrír. Fram- kvæmd eftilitsins var fært yfir á einkareknar faggildar skoðunar- stofur. Þær eru tvær í dag og sam- tals starfa hjá þeim sex eftirlits- menn. Skoðunarstofurnar fram- kvæma 4 skoðanir á ári hjá land- vinnslum og vinnsluskipum auk þess sem skip yfir 10 tonnum eru skoðuð tvisvar á ári og minni skip einu sinni ári. Gæðaeftirlitsdeild Fiskistofu er ætlað að gæta þess að samræmi sé í framkvæmd skoðana hjá skoðun- arstofunum. Í þeim tilgangi hefur Fiskistofa gefið út skoðunarhand- bók þar sem allt er tíundað sem skoða skal og með hvaða hætti lagt er mat á skoðunaratriðið. Eft- irlitsmenn Fiskistofu eru því stundum í fylgd skoðunarmanna til þess að kanna samræmi í vinnulagi þeirra. Þá sér Fiskistofa um eftirfylgni með því að frávik sem fram koma í skoðunum skoð- unarstofanna, séu lagfærð í tíma. Gæðaeftirlitsmenn Fiskistofu eru því oftar í heimsóknum hjá þeim fyrirtækjum sem síður uppfylla settar kröfur eða sem sinna ekki úrbótum, frekar en hinum sem betur standa sig að þessu leyti. Fiskistofa sér einnig um veitingu vinnsluleyfa. Áður en slík leyfi eru veitt skoða gæðaeftirlitsmenn Fiskistofu fyrirtækin sem um þau hafa sótt, en vinnsluleyfi eru þá fyrst veitt að uppfylltar séu þær kröfur sem til fyrirtækjanna eru gerðar um innra eftirlit, búnað og aðstöðu sem og meðferð vörunnar. Þegar leyfi hefur verið veitt, tekur við reglubundið eftirlit skoðunar- stofanna hjá viðkomandi vinnslu- leyfishafa. Breytt hlutverk eftirlitsmanns Hlutverk eftirlitsmannsins breytt- ist mikið við kerfisbreytinguna. Fyrir breytingu beindist skoðunin fyrst og fremst að tvennu, ástandi bygginga og búnaðar og skoðun afurða og vinnsluferils. Ástand bygginga og búnaðar svo og vinnsluferilinn er vissulega skoð- aður í núverandi kerfi, en afurða- skoðunum að mestu hætt. Í stað- inn er lögð sú skylda á herðar vinnsluleyfishafa að koma á innra eftirliti með framleiðslu sinni. Innra eftirlitið byggir á því að greindir eru áhættuþættir í vinnslunni og síðan er beitt fyrir- byggjandi aðgerðum til að varna því að áhættuþættirnir valdi skaða á afurðinni. Skrá þarf nið- urstöður eftirlitsins svo og þær úrbótaaðgerðir sem gripið er til ef farið er út fyrir sett viðmiðunar- mörk. Dæmi um fyrirbyggjandi aðgerð er t.d. hitastig í fiski við geymslu. Það að hitastiginu sé haldið í 0-4°C fyrirbyggir vöxt flestra örvera, sem í þessu tilfelli eru þá áhættuþátturinn. Þessar breytingar kölluðu á breytt vinnubrögð eftirlitsmanns. Í stað þess að skoða og meta þær afurðir sem voru til staðar í vinnslunni á þeim tíma sem heimsóknin fór fram sest hann yfir pappírana og skoðar hvort skráningar úr gæðaeftirlitinu sanni fyrir honum að framleiðand- inn hafi tryggt heilnæmi fram- leiðslunnar með innra eftirliti sínu. Dr. Róbert Hlöðversson telur að til þess að tryggja enn frekar að íslenskar sjávarafurðir standist væntingar viðskiptavina sinna ætti seljandi og/eða kaupandi í ríkari mæli að fela óháðum mats- aðilum að meta gæði afurðanna áður en þær séu sendar úr landi.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.