Ægir - 01.08.2001, Síða 41
F I S K V I N N S L A
Óskar Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Kælismiðjunnar Frosts, seg-
ist líta mjög jákvætt á þessar
breytingar. Nú geti fyrirtækið
einbeitt sér að því að vera öflugt
þjónustufyrirtæki á sviði kæli- og
frystikerfa, það stærsta á landinu.
Yfir 80% af verkefnum Kæl-
ismiðjunnar Frosts tengjast sjáv-
arútveginum á einn eða annan
hátt og því á fyrirtækið mikið
undir að hann gangi vel. „Það sem
við erum fyrst og fremst að gera í
dag er að þjónusta frysti- og kæli-
kerfi og hanna ný stærri frysti- og
kælikerfi fyrir frystihús, frystitog-
ara og frystigeymslur,“ segir Ósk-
ar Þórðarson. Hann segir að fyrir-
tækið sinni fyrst og fremst þjón-
ustu- og viðhaldsverkefnum, en
minna sé um framleiðsluverkefni.
„Það sem við smíðum sjálfir er
aðallega dælukútar fyrir ammon-
íak og ýmiskonar búnaður tengdur
ammoníakskerfum,“ sagði Óskar.
24 starfsmenn
Hjá Kælismiðjunni Frosti eru nú
24 starfsmenn. Um tveir þriðju
hlutar starfseminnar eru á Akur-
eyri og þriðjungur hjá starfsstöð
fyrirtækisins í Garðabæ. „Það sem
er svolítið sérstakt hjá okkur er að
starfsmenn uppfylla skilyrði Ll-
oyds-flokkunarfélagins til þess að
taka út skip. Við leggjum mikla
áherslu á gæðamálin og til marks
um það hafði fyrirtækið frum-
kvæði að því að starfsmenn stæð-
ust þessar vottunarkröfur. Starfs-
menn okkar búa yfir mikilli
reynslu, enda hafa margir þeirra
starfað að þessum málum í fjölda
ára. „Áður voru nokkrir starfs-
menn fyrir norðan hjá Slippstöð-
inni-Odda hf. og þar áður hjá
Odda og hér syðra voru starfs-
menn áður starfandi hjá öðrum
kælifyrirtækjum. Ég fullyrði því
að við erum með mjög reyndan og
samhentan mannskap,“ segir
Óskar.
Sérhæfð störf
Viðhald og þjónusta á kælikerfum
er mjög sérhæfð og því er ekki á
færi hvers sem er að taka slíkt að
sér. „Þumalputtareglan er, bæði
hér á Íslandi og erlendis, að það
taki um fimm ár að þjálfa upp
góða kælimenn. Þetta er sérhæfð
vinna og það tekur langan tíma að
byggja upp nauðsynlega þekk-
ingu á þessu sviði,“ segir Óskar.
Kælismiðjan Frost hefur um-
boð fyrir nokkur fyrirtæki á
frysti- og kælikerfamarkaðnum,
þar á meðal York International,
sem er stærsta fyrirtækið á þessu
sviði í Bandaríkjunum og Vestur-
Evrópu.
Eftir nokkurt umrót á undan-
förnum misserum lítur Óskar svo
á að Kælismiðjan Frost sé komin í
bærilega stöðugt umhverfi og
hann er bjartsýnn á framhaldið.
„Ég tel að stærð þessarar einingar
sé heppileg. Fyrirtækið er í
kjarnastarfsemi, í þjónustu og
verktöku sem byggir á því að setja
upp og viðhalda kælikerfum. Ég
tel því að við eigum að vera komn-
ir í nokkuð stöðugt umhverfi með
fyrirtækið,“ sagði Óskar.
Samstarf við innlend
fyrirtæki
Óskar segir að Kælismiðjan Frost
leggi mikla áherslu á náið sam-
starf með fyrirtækjum sem hafa
verið að framleiða ýmsan búnað
fyrir sjávarútveginn, til dæmis
Skagann og Marel. Einnig hefur
Kælismiðjan Frost verið að vinna
ákveðin verkefni fyrir York. „Ég
tel að í samstarfi við öflug innlend
fyrirtækið séu ýmsir möguleikar
fyrir hendi erlendis. Og hér heima
höfum við sterka stöðu og leggj-
um auðvitað áherslu á að hlúa að
þeim viðskiptasamböndum með
því að þjónusta okkar viðskipta-
vini vel,“ sagði Óskar Þórðarson.
Það tekur langan tíma að
þjálfa upp góða kælimenn
- segir Óskar Þórðarson, framkvæmdastjóri Kælismiðjunnar Frosts ehf.
„Áður voru nokkrir starfs-
menn fyrir norðan hjá
Slippstöðinni-Odda hf. og
þar áður hjá Odda og hér
syðra voru starfsmenn
áður starfandi hjá öðrum
kælifyrirtækjum. Ég full-
yrði því að við erum með
mjög reyndan og sam-
hentan mannskap,“ segir
Óskar Þórðarson.
Með breytingum á rekstri Stáltaks nýverið varð
Kælismiðjan Frost að einkahlutafélagi, að fullu
í eigu Stáltaks. Áður var Kælismiðjan Frost
einskonar kælideild innan Stáltaks, en nú
starfar fyrirtækið sjálfstætt með eigin fram-
kvæmdastjórn.
Óskar Þórðarson, framkvæmdastjóri
Kælismiðjunnar Frosts ehf.
Myndir: Sverrir Jónsson.