Ægir

Volume

Ægir - 01.08.2001, Page 45

Ægir - 01.08.2001, Page 45
45 F I S K V I N N S L A Niðurlag Óhófleg veiði úr stofni stórra þorska hófst í verulegum mæli þegar veiðar í net með stórum möskvum hófust fyrir nokkrum árum. Þorskurinn er lagskiptur á veiðislóð, þ.e. stór þorskur er á grunnslóð og leitar alveg upp í landsteina til að hrygna. Sjómenn voru hissa á því að fá stóran fisk í stórriðuð net á grunnslóð, en þannig veiðar höfðu ekki verið reyndar áður. Þessi fiskur leggur til stærsta hlutann af nýliðun þorskstofnsins. Notkun á stórriðnum netum hófst við Snæ- fellsnes fyrir um fimm árum og hefur notkun þeirra síðan aukist á öllum miðum og nú má segja að þessi net séu mest notuð á hrygn- ingarslóðunum og veiða vel. Hér er verið að veiða þær hrygnur sem hafa hrygnt oft og kunna að nota vöðvaprótein til að búa til hrogn sem innihalda mikinn fóðurforða fyrir seiði sem hjálpar þeim yfir fyrsta æviskeiðið. Þessi seiði hafa þess vegna miklar lífslíkur. Þess- ir stóru fiskar nota prótein og steinefni til að framleiða hrogn og svil og þar af leiðandi minnkar þurrefni fiskholdsins, en það hef- ur í för með sér að vatnsinnihald eykst. Svona stór þorskur er ein- göngu notaður í saltfiskvinnslu. Minnkandi þurrefni hefur afger- andi áhrif á alla nýtingu í saltfisk- vinnslu en hún byggist mikið á þurrefnisinnihaldi. Samfara minnkandi þurrefnisinnihaldi versnar holdastuðull þorsks og um leið verður vinnslunýting lak- ari. Af þessu sést að skynsamlegt er að stjórna fiskveiðum meira en gert hefur verið hingað til og taka alla þá þætti með í reikninginn við ákvörðun á kvótaúthlutun og leggja jafnframt meira vægi á hagkvæmni og viðkomu stofns- ins, ásamt betri umgengni um aflann. Heimildir: Við samantekt þessa var stuðst við: Greinar eftir Guðrúnu Marteinsdóttur, Hafrannsóknastofnun. R. Malcolm Love, 1988, „The Food Fishes, their intrinsic variation and practical implications“ Bók frá Avi, New York. Greinar eftir Rúnar Birgisson og Jón Heiðar Ríkharðsson, Rf. Skýrslur frá Þjóðhagsstofnun Greinar eftir Jónas Bjarnason, Rf. Einar Jónsson o.fl., 1994, Fjölriti Hafrannsóknastofnunar nr. 42 Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Sigurjón Arason Guðrún Gísladóttir komin frá Kína Tog- og nótaskipið Guðrún Gísladóttir KE kom til heimahafnar í Keflavík að kvöldi 24. september sl. eftir rúmlega 40 daga siglingu frá Kína, en skipið var smíðað í Guangzhou. Á heimleiðinni voru viðkomustaðir skipsins Singapore, Hong Kong og Egersund í Noregi. Guðrún Gísladóttir er fyrsta flottrollsskipið sem Kínverjar sömdu um smíði á samkvæmt vestrænum kröfum. Smíði skipsins hefur tafist nokkuð af ýmsum ástæðum. Eftir að starfsmenn Skagans hafa lokið við að fínstilla vinnslubúnað skipsins er gert ráð fyrir að það verði sent á síldveiðar. Í næsta tölublaði Ægis verður fjallað nánar um þetta nýjasta skip íslenska fiskiskipaflotans. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins http://www.rf.is Upplýsingaveita Rf Skúlagata 4, Pósthólf 1405, 121 Reykjavík, Sími: 562 0240, Fax: 562 0740 Netfang: info@rf.is, Heimasíða: http://www.rf.is Á VÍSAN AÐ RÓA

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.