Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.2001, Side 49

Ægir - 01.08.2001, Side 49
49 F R É T T I R MD Vélar hf. sem hefur selt og þjónust- að Mitsubishi dísel- vélar og rafstöðvar, auk þess að annast viðgerðir á allflestum tegundum díselvéla til sjós og lands, hafa sameinast Vélalandi ehf. undir nafni Véla- lands. MD Vélar hf. hefur rekið verslun og vélaverkstæði að Smiðjuvegi 28 í Kópavogi en sú starfsemi hef- ur verið flutt í húsakynni Véla- lands að Vagnhöfða 21, Reykja- vík. Í fréttatilkynningu kemur fram að Vélaland ehf. (áður Mótor- verkst. Þ.Jónsson & Co) rekur eitt fullkomnasta endurbyggingar- verkstæði landsins fyrir vélar í bílum, vinnuvélum og tækjum hverskonar. Vélaland selur vélar, vélahluti og varahluti í vélar auk þess að endurbyggja vélar rekur fyrirtækið fullbúið bílaverkstæði og dísilþjónustu. Til viðbótar sérhæfðum tækj- um sem Vélaland hefur yfir að ráða, bætast nú við fullkomin tæki til að sinna viðhaldi á stærri díselvélum til sjós og lands. Á meðal þess sem bætist við hjá Vélalandi með MD Vélum hf. er fullkominn jafnvægisbekkur fyrir þunga og viðamikla hluti sem snúast hratt í vélum, svo sem hverflar í forþjöppum (afga- stúrbínum), anker í rafölum, skil- vindur og fleira sem þarf að vera í nákvæmu jafnvægi til að ekki myndist titringur, en sem kunn- ugt er getur tjón vegna titrings getur orðið mjög mikið. Með samruna fyrirtækjanna eykst jafnframt varahlutaframboð Véla- lands þar sem varahlutir í dísel- vélar, sem MD Vélar hf. hafa selt fram að þessu, verða nú á lager eða sérpantaðir hjá Vélalandi. Hér eftir sem hingað til mun Vélaland bjóða 24 tíma neyðarþjónustu. MD Vélar hf. hafa á undanförn- um árum selt fjölda díselvéla frá Mitsubishi sem nú eru í fiskiskip- um sem aðalvélar og rafstöðvar (ljósavélar). Vélaland mun nú taka við sölu þessara véla auk þess að annast þjónustu við þær. Starfsmenn MD Véla halda áfram starfi sínu hjá Vélalandi. Framkvæmdastjóri MD Véla, Hjalti Sigfússon, mun stjórna skipadeild Vélalands ehf. Eftir sameiningu fyrirtækjanna munu um tuttugu manns starfa hjá Vélalandi. Þrír stjórnendur hins nýja sameinaða fyrir- tækis; Hjalti Sigfússon, framkvæmdastjóri skipadeildar, Sigurður Grétarsson, verslunar- stjóri, og Lúðvík Matth- íasson, framkvæmda- stjóri. MD Vélar og Vélaland sameinast Mynd: Sverrir Jónsson.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.