Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 16

Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 16
16 Færri alvarleg slys til sjós „Ég held að staða öryggismála hjá sjómönnum hér á landi sé alveg þokkaleg,” svarar Hilm- ar þegar hann er í upphafi viðtalsins spurður um hvernig þessum málum sé almennt háttað hér á landi. „En vissu- lega má alltaf gera betur og það segi ég vegna þess að ennþá eru um þrjú hundruð sjómenn sem slasast á ári hverju. Þetta eru vissulega misalvarleg slys, en engu að síður gefa þessar tölur til kynna að flesta daga ársins er sjómaður að slasast við vinnu sína, sem hlýtur að vera mikið áhyggjuefni og okkur ber að vinna gegn þessu eins og við getum. Undanfarin rösk ellefu ár hef ég setið í Rannsóknarnefnd sjóslysa og á þeim tíma hefur helsta Ö R Y G G I S M Á L S J Ó M A N N A Markmiðið er að útrýma slysum úti á sjó - segir Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna Öryggismál sjómanna er verkefni sem aldrei lýkur. Sjómenn verða aldrei fullnuma í þeim fræðum. Ekki svo að skilja að þessi fræði séu það torskilin að menn nái aldrei prófinu. Síður en svo. En það er nauðsynlegt að minna menn stöðugt á að vera á varð- bergi og missa aldrei sjónar á því að búa sér og vinnufélögunum um borð í bátum og skipum sem mest og best öryggi. Hilmar Snorrason hefur stýrt Slysavarnaskóla sjómanna í sextán ár og þekkir því vel til þróunar öryggismála sjómanna hér á landi. Hann hefur sömuleiðis púlsinn á því hvernig við Íslendingar stöndum okkur í þessum efnum í samanburði við aðrar þjóðir. Hilmar er í Ægisviðtali um öryggismál sjómanna. aegirJAN2007.indd 16 2/2/07 9:12:08 AM

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.