Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 20
20
þreyta er einn af helstu óvin-
um manna þegar kemur að
slysum. Þreyta gerir það að
verkum að menn missa ein-
beitinguna og því fylgir aukin
slysahætta. Á sex tíma vökt-
um úti á sjó er hættan sú að
menn nýti ekki frívaktirnar
nægilega vel til þess að hvíl-
ast, sem er þeim bráðnauð-
synlegt. Það er auðvitað ein-
staklingsbundið en almennt
má segja að reglan sé að hver
maður þurfi átta tíma svefn til
þess að geta tekist á við
næstu vinnulotu. Þreyttur
maður tekur meiri áhættu og
gerir frekar mistök. Það vita
allir sem verða langþreyttir að
þreytan getur skapað ergelsi
hjá viðkomandi og ýmsir lík-
amlegir kvillar koma fram.
Auðvitað er það svo að vakta-
vinna þreytir fólk. Ég hef séð
rannsókn á vinnuferli um
borð í kaupskipi þar sem
voru fjögurra tíma rúllandi
vaktir. Eftir þrjátíu daga
úthald komu fram áberandi
þreytueinkenni hjá áhöfn-
inni.”
Um hundrað námskeið á síð-
asta ári
- Hversu margir koma á ári
hverju á námskeið hjá Slysa-
varnaskóla sjómanna?
„Hingað koma að með-
altali um 1300 manns á nám-
skeið á ári. Á síðasta ári
buðum við upp á rúmlega
hundrað námskeið og þau
hafa aldrei verið fleiri. Fjöldi
námskeiða hefur nánast tvö-
faldast frá því ég hóf hér störf
fyrir tæpum sextán árum.
Okkar helsta vandamál er að
menn skila sér illa inn á nám-
skeiðin. Helsta áherslan er á
grunnnámskeið og end-
urmenntun, en við erum líka
með sértæk námskeið. Í því
sambandi get ég nefnt nám-
skeið fyrir áhafnir kaupskipa,
námskeið fyrir áhafnir far-
þegaskipa og farþegabáta o.
fl.
Á hvert grunnnámskeið
skráum við 35-45 manns í
þeirri von að minsta kosti tíu
skili sér á námskeiðið. Þeir
sem hafa skráð sig á nám-
skeið skulu staðfesta þátttöku
sína tíu dögum fyrir nám-
skeiðið. Auk þess hringjum
við í menn til þess að ganga
úr skugga um að þeir mæti
örugglega á námskeiðið. En
það er alltof mikið um að
menn mæti ekki þó þeir hafi
skráð sig. Í dag byrjaði hér
námskeið og á það voru 38
skráðir, en aðeins níu mættu
til leiks. Þetta er vissulega
afar slæmt fyrir okkur, en
ekkert síður er þetta slæmt
fyrir þá sjómenn sem trassa
að mæta á námskeiðin og
hina sem bíða eftir að komast
að hjá okkur. Menn virðast
ekki átta sig á því að þeir
hafa aðeins einn frest til þess
að sækja öryggisfræðslu og
síðan ekki söguna meira. Það
þýðir með öðrum orðum að
sá sem skráir sig á námskeið
en mætir ekki á það fær ekki
lögskráningu fyrr en hann er
búinn að fara á námskeiðið.
Það er því alvörumál að mæta
ekki á námskeið og menn
verða að gera sér grein fyrir
því.
Við eigum ekki í jafn mikl-
um erfiðleikum varðandi
þetta á endurmenntunarnám-
skeiðunum. Engu að síður
voru 106 pláss á endurmennt-
unarnámskeiðunum ónotuð á
síðasta ári. Með öðrum orðum
þá mættu ekki 106 af þeim
sem höfðu skráð sig til leiks á
endurmenntunarnámskeiðin
og því urðu jafnmargir menn
af þeim möguleika að mæta á
slík námskeið. Auðvitað er
þetta afar bagalegt.”
Kunnáttan úr Slysavarnaskóla
sjómanna skilar sér
- Finnst mönnum ef til vill
kvöð að mæta á námskeið hjá
ykkur?
„Nei, það held ég alls ekki.
Ég held að vandamálið sé
frekar að menn finni sér ekki
Ö R Y G G I S M Á L S J Ó M A N N A
Hljómsveitin Roðlaust og
beinlaust í Ólafsfirði, sem að
stórum hluta er skipuð sjó-
mönnum á frystiskipi Þor-
móðs ramma-Sæbergs, hefur í
gegnum árin stutt dyggilega
við bakið á starfi Slysavarna-
skóla sjómanna með fjárfram-
lögum.
Hljómsveitin hefur gefið út
nokkra diska og aldrei hefur
markmiðið verið að græða á
útgáfunni. Hafi einhver ágóði
verið hefur honum verið
varið til björgunar- og slysa-
varnamála. Í það heila hefur
Roðlaust og beinlaust gefið
um fjórar milljónir króna til
þessara mála.
Þann 27. janúar sl. lögðu
þeir félagar í Roðlausu og
beinlausu í samvinnu við
útgáfufyrirtækið Mogomusic
ehf. í Ólafsfirði enn gjörva
hönd á plóg þegar þeir
afhentu Slysavarnaskóla sjó-
manna ávísun að upphæð kr.
1,3 milljónir króna. Þessir fjár-
munir eru ágóði af sölu á nýj-
asta diski þeirra félaga sem
þeir gáfu út sl. haust og er
ennþá í sölu.
Full ástæða er til þess að
taka ofan hattinn fyrir strák-
unum á Kleifaberginu, sem
með þessu vilja efla og styrkja
það starf sem unnið er í
Slysavarnaskóla sjómanna.
Hljómsveitin Roðlaust og beinlaust í Ólafsfirði:
Gaf Slysavarnaskóla sjómanna
1,3 milljónir króna
Í tilefni af afhendingu gjafarinnar tóku nokkrir af strákunum í Roðlaust og bein-
laust lagið.
Sjómenn á Kleifaberginu ásamt fulltrúum Slysavarnaskóla sjómanna með ávís-
unina góðu. Myndir: Rögnvaldur Jónsson/Ólafsfirði.
aegirJAN2007.indd 20 2/2/07 9:12:15 AM