Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 32
32
altalið þá er Namibía alveg á
mörkum þess að geta kallast
þróunarland. Misskipting lífs-
gæðanna er hins vegar mikil.”
Sem fyrr segir lauk Víðir
störfum sínum í Namibíu í
desember sl. og hélt þá heim
eftir störf ytra í hálft sjöunda
ár. Hann er nú kominn á eft-
irlaun er sinnir þó í ígripum
kennslu við Fjöltækniskólann,
áður Stýrimannaskólann. „Það
er ekki spurning að margt í
starfi og áherslum Fjöltækni-
skólans mætti flytja út, enda
óskuðu stjórnendur sjó-
mannaskólans í Walvis Bay
eftir að komast í samband við
systurskóla hér á landi. Nú er
það samband komið á og Jón
B. Stefánsson skólastjóri Fjöl-
tækniskólans kom og heim-
sótti skólann ytra ekki alls
fyrir löngu. Eins er til staðar
samband við stjórnendur
Slysavarnarskóla sjómanna og
þá sem stýra veiðarfærabraut
Fjölbrautaskóla Suðurnesja,”
segir Víðir og minnir einnig á
að allmargir Namibíumenn
hafi komið hingað og stund-
að nám við Sjávarútvegshá-
skóla Sameinuðu þjóðanna
sem hefur höfuðstöðvar hér á
landi og starfar í skjóli Haf-
rannsóknastofnunarinnar.
Að leggja sitt af mörkum
„Starf við þróunaraðstoð er
ákaflega skemmtilegt. Hins
vegar verða menn að vera
undir það búnir að hlutirnir
gangi ekki jafn hratt og þeir
sjálfir kjósa. Starfið er unnið á
forsendum heimamanna á
grundvelli tvíhliðasamnings
milli landanna. Þegar litið er
til lengri tíma sést óneitanlega
mikill árangur af þróunarað-
stoð Íslendinga í Namibíu síð-
ustu ár. Kominn er á fót sjó-
mannaskóli, stundaðar eru
hafrannsóknir sem ef til vill
þyrftu að aukast og þroskast
frekar og fiskveiðistjórnunar-
kerfi hefur verið sett á lagg-
irnar. Það þarf því ekki að
deila um árangurinn og
ánægjulegt er að hafa lagt sitt
af mörkum,” segir Vilmundur
Víðir Sigurðsson að síðustu.
Viðtal: Sigurður Bogi Sævarsson.
S J Á V A R Ú T V E G U R Í N A M I B Í U
Sjómannaskólinn er við höfnina í Walvis Bay. Uppbygging skólastarfsins hefur tekist vonum framar.
aegirJAN2007.indd 32 2/2/07 9:13:07 AM