Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 35
35
Þann 5. janúar sl. kom Guð-
mundur VE-29, sem Ísfélag
Vestmannaeyja gerir út, til
Vestmannaeyja eftir gagnger-
ar endurbætur í Nauta skipa-
smíðastöðinni í Gdynia í Pól-
landi, þar sem skipið var lengt
um 12,6 metra og allur
vinnslu- og dælubúnaður end-
urnýjaður. Óhætt er að full-
yrða að skipið hafi tekið mikl-
um stakkaskiptum.
Guðmundur VE-29 var
smíðaður í Noregi árið, en
áður hét hann Grindvíkingur
GK-606. Skipið er nóta- og
togveiðiskip og er gert út á
veiðar á uppsjávartegundum,
fyrst og fremst loðnu og síld.
Að lokinni 12,6 metra
lengingu er skipið 77,6 metr-
ar að lengd. Eftir sem áður er
aðalvél skipsins 4.077 hestafla
Wichmann.
Stóraukin frystigeta
Um borð eru ellefu frystar
sem afkasta 150-160 tonnum
á sólarhring auk frystivéla-
rýmis, sem er nýtt. Áður var
frystigetan á sólarhring 90-100
tonn. Frystigetan hefur því
aukist um sem næst 50%.
Fjórar síldarflökunarvélar eru
um borð, sömuleiðis loðnu-
og síldarflokkari. Hver flök-
unarvél afkastar um 30 tonn-
um á sólarhring og því eru
sólarhringsafköstin um 120
tonn af síld.
Vinnsludekkið hefur verið
endurnýjað og innréttingar og
tæki í eldhúsi eru ný. Eftir
breytingar er unnt að koma
fyrir um 850 tonnum af fryst-
um afurðum í lestum skips-
ins, sem er um helmings
aukning frystirýmis.
B R E Y T T F I S K I S K I P
Endurbættur Guðmundur VE-29 til Eyja
Guðmundur VE-29 við komuna til Vestmannaeyja í byrjun janúar. Myndir: Óskar Pétur Friðriksson/Vestmannaeyjum.
Sturla skipstjóri og Elliði Vignisson bæjarstjóri ræða saman.
Ásbjörn Garðarsson, fyrrverandi útgerðarstjóri Ísfélags Vestmannaeyja.
aegirJAN2007.indd 35 2/2/07 9:13:23 AM