Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 25

Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 25
25 lega ekki dugað fyrir tjónum. Þetta segir okkur að slys til sjós eru mörg og alvarleg, sem hafa varanleg áhrif á menn.” Samningur um heilsufars- skoðun sjómanna Til þess að stemma stigu við þessari þróun hefur Trygg- ingamiðstöðin í gegnum tíð- ina gripið til ýmissa ráða í þessum efnum. Það nýjasta er að TM gerði samstarfs- samning við fyrirtæki sem heitir Heilsuverndarstöðin ehf, um heilsufarsskoðun á sjómönnum fyrir þau útgerð- arfélög sem TM vátryggir. Þetta er fyrsti samningur sinnar tegundar sem gerður er hér á landi. Þessi heilsu- farsskoðun felur það í sér að áhafnarmeðlimir fara árlega í heilsufarsskoðun og nýráðnir starfsmenn eru einnig skoð- aðir. „Með þessum samningi viljum við stuðla að bættri heilsu sjómanna, draga úr fjarvistum þeirra vegna veik- inda og slysa og um leið auka öryggi þeirra. Með þessu móti teljum við unnt að fækka slysum til sjós og minnka líkurnar á veikindum sjómanna og það þýðir um leið minni útgjöld fyrir bæði útgerðina og okkur hjá TM,” segir Sigurður, en í heilsu- farsskoðun felst athugun á líkams- og heilsufarsástandi ásamt fræðslu um hvernig efla megi heilsuna. Hver og einn einstaklingur er skoð- aður út frá áhættuþáttum sem tengjast aldri, sögu og starfi. Lögð er áhersla á ráð- gjöf um lífshætti og lífsstíl auk þess sem farið er yfir hreyfingu, svefn og næringu. Áhyggjur af aukinni slysatíðni „Við veitum viðkomandi útgerðarfyrirtækjum afslátt af tryggingariðgjaldinu ef þau gera samning við Heilsu- verndarstöðina um heilsufars- skoðun á sínum sjómönnum. Til þess að njóta þessara afsláttarkjara þurfa útgerðir að vera búnar að ganga frá samningum við Heilsuvernd- arstöðina um heilsufarsskoð- un fyrir 1. mars nk. Við kynntum þetta verkefni fyrir samtökum útgerðar- og sjó- manna sl. haust og það hlaut strax afar jákvæðar viðtökur. Við erum bjartsýnir á að þetta muni þegar til lengri tíma er litið efla öryggisvit- und sjómanna og fækka slys- um,” segir Sigurður og bætti við að auðvitað hafi menn haft áhyggjur af ört fjölgandi tilfellum alvarlegra slysa úti á sjó, sem hafi leitt til varan- legrar örorku. „Fyrir einstakl- inginn sem fyrir slysinu verð- ur hefur þetta í mörgum til- vikum mikil áhrif á lífsgæði til langs tíma litið, fyrir útgerðina þýðir fjölgun slysa til sjós hærri iðgjaldagreiðslur og ráðningar á nýjum mönn- um með tilheyrandi kostnaði, að ekki sé talað um kostnað samfélagsins. Slík slys hafa því margvísleg áhrif í þjóð- félaginu,” segir Sigurður. TM býður launatryggingu TM hóf á síðasta ári, eitt tryggingafélaga, að bjóða útgerðum svokallaða launa- tryggingu, sem hlotið hefur góðar viðtökur. Tryggingin bætir launakostnað vegna sjómanna sem lenda í vinnu- slysum frístundaslysum eða veikindum. Góð staða Í samanburði við þær þjóðir sem við berum okkur gjarn- an saman við eru trygginga- mál í sjávarútvegi á Íslandi í mjög góðu lagi. „Við hjá TM teljum okkur vera mjög vel samkeppnisfæra á trygginga- markaðnum. Tryggingamið- stöðin eignaðist í fyrra trygg- ingafélagið NEMI í Noregi, sem er m.a. öflugt í skipa- tryggingum. Og frá með síð- ustu áramótum höfum við endurtryggt tvö af stærstu bátaábyrgðarfélögum í Nor- egi, sem eru gagnkvæm báta- tryggingafélög, og að sumu leyti sambærileg við gömlu bátaábyrgðarfélögin hér á landi en mun stærri. Norsku félögin höfðu einnig úr að velja endurtryggingu bæði í Noregi og Bretlandi, en þau kusu að leita til okkar. Það tel ég m.a. sýna að við séum vel samkeppnisfærir á mark- aðnum bæði hér heima og erlendis,” segir Sigurður Jónsson. T R Y G G I N G A M Á L „Með þessum samningi viljum við stuðla að bættri heilsu sjómanna, draga úr fjarvistum þeirra vegna veikinda og slysa og um leið auka öryggi þeirra,” segir Sigurður Jónsson m.a. um samning TM við Heilsuverndarstöðina. aegirJAN2007.indd 25 2/2/07 9:12:30 AM

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.