Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.2007, Qupperneq 42

Ægir - 01.01.2007, Qupperneq 42
42 K R O S S G Á T A N Ý R B Á T U R Seigla hefur smíðað stærsta plastfiskibát landsins, Ebba AK-37, fyrir Eymar Einarsson á Akranesi. Báturinn, sem ber 32 brúttótonn, gengur allt að 29 sjómílur. Hann er með 6,3 metra löngum og 0,5 metra djúpum fellikili. Ebbi kemur í stað sam- nefnds báts í eigu sömu útgerðar, sem er 12 brúttórúm- lestir. Sá bátur hefur verið gerður út á línu og net og verður hafður sami háttur á með nýja bátinn, sem var afhentur Eymari í lok síðasta árs. Vélarrúm er rúmgott. Aðal- vélin er 480 hestafla Caterpillar C 18 frá Heklu. Svefnpláss er fyrr sex í lúkar, fjóra í kojum og tvo á bekkjum. Í lúkarnum er einnig eldhúsaðstaða, borðsalur og aðstaða til að horfa á sjónvarp. Í lest er rými fyrir 16 stór kör eða 32 hálfkör. Vélstjórarými svokallað er undir stýrishúsi og er það manngengt. • Tæki í brú eru frá Sónar. Þau eru: • JRC JMA 5104 ARPA radar. • JRC JFC 130 3 kw. Dýpt- armælir. • JRC Jnav 500 GPS lóran- breytir. • Comnav Vector GPS komp- ás. • SEIWA Explorer 3 Black box plotter. • Comnav Compilot Comm- ander sjálfstýring með aukastjórnborði á dekki. • Myndavélakerfi fyrir tvær myndavélar í vélarrúmi sem og myndavél í mastri og tenging fyrir neðansjáv- armyndavél. • Tölvuplotter með þvívídd. • Immarsat Mini C, sem ann- ast tilkynningaskyldu báts- ins. • Wesmar SS-395 sónartæki. Hefur eiginleika venjulegs sónartækis en getur auk þess sýnt þversnið af botni langt frá bátnum. • Poly Planer MRD 60 útvarpstæki með geislaspil- ara og innbyggðu kallkerfi. • Navicom VHF talstöð með DSC. Sónar sá einnig um upp- setningu á öðrum rafeindabún- aði um borð, svo sem útvarp, sjónvarp, NMT síma og GSM síma. Hrönn Ásgeirsdóttir hjá Seiglu segir að nú sé í smíðum einn Seigur 1250 V bátur og annar Seigur 1000 fyrir aðila í Noregi. Siglufjarðarseigur á Siglufirði er einnig með í smíð- um 1060 bát fyrir aðila í Nor- egi. Á næstu vikum mun starf- semi Seiglu færast norður til Akureyrar, en þar hefur nú verið byggt 700 fermetra hús yfir starfsemina á athafnasvæði Slippsins Akureyri. Nú þegar er starfsemin reyndar hafin að litlu leyti nyrðra, en þrír starfs- menn vinna þar í bráðabirgða- aðstöðu. En til viðbótar munu eigendur Seiglu flytja norður og fjórir starfsmenn til viðbót- ar. Hrönn segir að syðra sé starfsemi Seiglu í um 1000 fer- metra húsnæði, sem nýtist ekki vel. Nýtingin verði mun betri í nýju húsnæði fyrirtæk- isins á Akureyri. Seigla smíðar 32 tonna Ebba AK-37 aegirJAN2007.indd 42 2/2/07 9:13:46 AM

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.